Jón Ólafs á spjallinu

Jón Ólafs á spjallinu

By Jón ÓlafssonSociety & CultureLeisure
Download on the App Store

Jón Ólafs á spjallinu episodes

  • 48.þáttur: Elísa Viðarsdóttir

    Þessi frábæra knattspyrnukona lagði skóna á hilluna á dögunum og ferlinum lauk hún sem Íslandsmeistari með Breiðabliki eftir að hafa lengstum spilað með Val. Þar var hún hluti af frábæru og oft ósigrandi liði en viðskilnaðurinn við klúbbinn var ekki á þeim nótum sem hún hefði óskað sér. Elísa ólst upp í Vestmannaeyjum og hennar helsta fyrirmynd var systir hennar, Margrét Lára Viðarsdóttir, ein dáðasta knattspyrnukona okkar Íslendinga. Elísa starfar sem næringar- og matvælafræðingur auk þess hún hefur menntað sig í íþróttasálfræði. Hún er með margt skemmtilegt á prjónunum, m.a. að rannsaka skólamáltíðir í grunnskólum Garðabæjar.

    2 hr 6 min
  • 47.þáttur: Vilhjálmur Guðjónsson

    Það er óhætt að segja að Vilhjálmi Guðjónssyni sé margt til lista lagt. Hann teflir 3-4 skákir á hverjum degi og þeysir þess á milli á mótorhjólinu út um allar koppagrundir. Vilhjálmur nýtur mikillar virðingar í íslenskum tónlistarheimi enda einn fjölhæfasti tónlistarmaður sem Ísland hefur alið. Nánast öll hljóðfæri leika í höndunum á honum þó saxófónninn og gítarinn séu þar fremst í flokki. Hann hefur stjórnað fjölda hljómsveita, allt frá rokktríóum til stórsveita; samið fyrir leikhús og kvikmyndir auk þess sem hann átti um árabil 80-90% allra auglýsingastefja sem við heyrðum á öldum ljósvakanna. Vilhjálmur er einn af frumherjum Tónlistarskóla FÍH og þeir eru ófáir tónlistarmennirnir sem hann hefur kennt á löngum ferli.

    1 hr 54 min
  • 46.þáttur: Sr. Davíð Þór Jónsson

    Davíð Þór Jónsson varð fyrir einelti þegar hann flutti, ungur drengur, í Hafnarfjörðinn og því linnti ekki fyrr en hann skipti um lið og gerðist gerandi sjálfur. Hann fann hamingjuna í Flensborgarskóla þar sem hann kynntist sínum bestu framtíðarvinum við félagsmálastörf. 18 ára gamall eignaðist Davíð sitt fyrsta barn og var í litlu sambandi við dóttur sína lengi framan af ævi hennar en í dag eru þau góðir vinir. Þrisvar sinnum sótti hann um inngöngu í Leiklistarskóla Íslands en var hafnað í öll skiptin. Þeir Steinn Ármann fóru svo í útvarpið og þátturinn þeirra hlaut nafnið Radíus og til urðu þá Radíusbræður sem skemmtu landsmönnum í mörg ár með húmor sem í dag þætti með öllu óviðeigandi. Nú starfar Davíð Þór Jónsson sem prestur í Laugarneskirkju og en sinnir jafnframt kveðskapnum sem hann hefur stundað í áratugi. Svo fer hann stundum í Taekwondo.

    2 hr 30 min
  • 45.þáttur: Karen Kjartansdóttir

    Kjarnorkukonan, Karen Kjartansdóttir, vakti líklega fyrst athygli sem fréttamaður og í því starfi undi hún sér æði vel í áratug áður en hún spreytti sig í almannatengslum og fleiru. Hún var óhrædd að liðsinna umdeildum fyrirtækjum og samtökum og er með tandurhreina samvisku. Í dag starfar hún hjá Veðurstofu Íslands og unir sér vel. Skrif hennar á fésbók um ólíklegustu málefni eru eftirtektarverð enda á hún til að greina hlutina í þaula áður en hún lætur eitthvað frá sér. Karen gekk fyrir skemmstu yfir Grænlandsjökul og gerir ekki lítið úr þeirri þrekraun.

    1 hr 26 min
  • 44.þáttur: Eyþór Gunnarsson

    Eyþór Gunnarsson hefur í áratugi verið einn fremsti hljómborðsleikari þjóðarinnar. Hann vakti ungur athygli fyrir hæfileika sína og 16 ára gamall var hann farinn að leika á böllum með hljómsveitinni Tívolí. Þar kynntist hann Ellen Kristjánsdóttir sem síðar varð eiginkona hans. Saman hafa þau hjón gengið í gegnum súrt og sætt og kvöddu Bakkus fyrir margt löngu sem var þeirra besta ákvörðun. Á næsta ári verða liðin 50 ár frá því að þeir Eyþór, Friðrik Karlsson, Gunnlaugur Briem og Jóhann Ásmundsson stofnuðu hljómsveitina Mezzoforte og stendur ýmislegt til.

    2 hr 2 min
  • 43.þáttur: Lalli töframaður

    Lalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim. Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann tengir við greiningar sínar, adhd, lesblindu og tourette. Hann er menntaður smiður en undanfarin ár hefur hann nær eingöngu starfað sem skemmtikraftur á eins marga vegu og sá starfstitill rúmar. Lalli hefur gefið út plötu, skrifað bók og er ávallt reiðubúinn í sínum grunnbúning að skemmta fólki - stundum með nær engum fyrirvara!

    1 hr 46 min
  • 42.þáttur: Rán Flygenring

    Rán Flygenring ólst upp á heimili arkitekta og fyrir vikið var hún síteiknandi sem barn og sér ekki fyrir endann á þessu. Hún ákvað að ferðast um heiminn og sjá hvort hún gæti framfleytt sér á meðan sem teiknari og höfundur. Þetta gekk aldeilis upp en eftir tæpan áratug flutti hún aftur heim til Íslands, reynslunni ríkari. Rán hefur sent frá sér fjölda bóka og myndskreytt fyrir sjálfa sig og aðra. Hún er að læra á píanó auk þess sem hún spilar á selló. Rán er mikill hvalavinur og hefur beitt sér gegn hvalveiðum á Íslandi. Sundfíkn hefur litað líf hennar en hún ber höfuðið hátt.

    1 hr 51 min
  • 41.þáttur: Margrét Valdimarsdóttir

    Við höfum öll sögu að segja og Dr. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur er ekki þar undanskilin. Æskuárin í Breiðholti voru erfið og hún varð vitni að ýmsu sem hún gat svo sannarlega nýtt sér síðar meir í afbrotafræðunum. Hún vann í nokkur ár sem barþjónn áður en hún sótti um starf á útvarpsstöðinni FM 957 án þess að hafa nokkurn tímann hlustað á útvarpsstöðina. Við tóku nokkur ár á ljósvakamiðlum en um þrítugt skellti hún sér í háskólanám. Margrét hefur fjallað um viðkvæm málefni afbrotafræðinnar og er eftirsóttur álitsgjafi á sínu sviði.

    1 hr 40 min
  • 40.þáttur: Jónatan Garðarsson

    Jónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við. Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði og byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna og geisladiska. Jónatan lærði á hljóðfæri og söng með unglingahljómsveitum en fannst óspennandi að spila á böllum fyrir drukkið fólk og fann sér því aðra leið í faðm tónlistargyðjunnar. Í áratugi hefur hann frætt okkur um tónlist á margvíslegan hátt í ljósvakamiðlum RUV, í dagblöðum og ritstýrt menningarþáttum. Jónatan fellur seint verk úr hendi og hann hefur setið í hinum ýmsu nefndum og ráðum og koma þar trúmál, tónlist og náttúruvernd helst við sögu.

    1 hr 53 min
  • 39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson

    Óskar Hrafn er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik. Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri flokkunum en var svo færður í vörnina í 2.flokki. Eftir nokkur ár í meistaraflokki KR hélt hann til Noregs í atvinnumennsku en þurfti að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára gamall. Þá hóf hann að skrifa um knattspyrnu í dagblöð og sinnti með tíð og tíma ýmsum yfirmannsstörfum í fréttamennsku og var hvað lengst hjá 365 miðlum auk þess sem hann skrifaði skáldsögu árið 2010. Óskar Hrafn var ekkert á leiðinni í þjálfun þegar hann fékk afdrifaríkt símtal úr vesturbænum og síðan hefur þjálfunin átt hug hans allan.

    2 hr 27 min

About Jón Ólafs á spjallinu

From the publisher's feed

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og…