Jóns

Jóns

By Óli JónsBusiness
Download on the App Store

All Jóns episodes

  • 68. Bergur og Andri Virkja

    Bergur og Andri hjá Virkja er gestir mínir í þessum þætti. Þeir segja okkur frá þeirra fyrirtæki, þeirra hugsjónum ásamt því hvað þeir hafa verið að gera undanfarin ár.
    Um Virkja segir á virkja.is
    "Sprottið af ástríðu
    Virkja var stofnað af Laufeyju Haraldsdóttur í byrjun árs 2018. Laufey lærði markþjálfun hjá Evolvia og þekkir það af eigin reynslu hvað markþjálfun getur gert fyrir fólk sem vill ná lengra á sinn eigin mælikvarða. Laufey er frumkvöðull og hefur komið víða við í atvinnulífinu. Ástríða hennar fyrir markþjálfun hefur spilað stóran þátt í lífi hennar og í dag er hún starfandi ACC markþjálfi. Hún vinnur með einstaklingum, hópum og fyrirtækjum ásamt því að halda uppbyggjandi námskeið og fyrirlestra. Hún er einnig í frábæru kennara teymi Profectus og kennir þar gunnnám markþjálfunar."

    Námskeið sem eru komin á dagskrá hjá Virkja er meðal annars byrjenda námskeið í Wordpress

    "WordPress námskeið fyrir byrjendur
    Vefsíða frá grunni
    Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja komast hratt af stað í vefsíðugerð. Þátttakendur læra að setja upp eigin vefsíðu frá grunni í WordPress vefumsjónarkerfinu og enda á því að setja vefinn upp á eigin hýsingu. Vefsíðugerð er orðið mjög vítt hugtak í dag. Mikil þróun hefur átt sér stað síðasta áratuginn á því sviði og teygir vefsíðugerð anga sína margar áttir þ.á.m hönnun, forritun, umsjón, markaðssetningu o.fl. WordPress hefur staðist þolraunir þessarar þróunar með mikilli prýði og keyrir drjúgan hluta af vefsíðum internetsins í dag, og ekki af ástæðulausu. WordPress er mjög sveigjanlegt á þann hátt að hægt er að nota það sem umsjónarkefi fyrir vefsíður, vefverslanir, blogg, samfélagssíður og margt fleira. En það er einnig einfalt í notkun og gerir fólki kleyft að smíða alvöru vefsíður án þess að þurfa að kunna forritun eða vefkóðun. Mörg fyrirtæki leitast eftir því að ráða starfsfólk með almenna þekkingu á WordPress. Á þessu námskeiði grisjum við leiðina að því að læra uppsetningu og viðhald vefsíðna á mjög hnitmiðaðan hátt og án ónauðsynlegra útúrdúra.
    "

    25 min
  • 67. Rúna Magnúsdóttir
    Rúna Magnúsdóttir, alþjóðlegur fyrirlesari og leiðtogaþjálfi, stofnandi og framkvæmdastjóri The Change Makers,með-stofnandi #NoMoreBoxes Viðhorfsvakningarinnar, höfundur bókanna; Branding Your X-Factor og The Story of Boxes, The Good, The Bad and The Ugly, hefur frá árinu 2007 starfað á bæði innlandsmarkaði sem og alþjóðamarkaði við leiðtogaþjálfun, ráðgjöf og markþjálfun með það m.a. að leiðarljósi; Að hjálpa fólki að verða sú breyting sem það vill sjá í heiminum sínum í dag.
    32 min
  • 66. Steinar Þór Ólafsson Skeljungi
    Steinar Þór Ólafsson markaðsstjóri Skeljungs er meðal annars menntaður íþróttakennari og rak Crossfitstöð í Lúxemburg.
    Í þessu í viðtali segir hann okkur frá þeim áskorunum sem liggja fyrir hjá markaðsstjóra í fyrirtæki einsog Skeljung, sem reka sínar bensínstöðvar undir merkjum Orkunnar.
    Steinar hefur líka verið mjög duglegur að nýta sér Linkedin, hans mat er að Linkedin sé einn vanmetnasti samfélagsmiðilinn. 
Hann segist vera óhræddur við að setja inn þar það sem honum finnst og að segja sýnar skoðanir.
Mark Ritson barst líka í til en Steinar kláraði nýverið Mini MBA námskeið hjá honum sem hann mælir sérstaklega með.
    Á Linkedin hjá Steinari segir um hann og Skeljung:
    Ábyrgð á öllu markaðsstarfi Skeljungs á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði á Íslandi sem og hluta af alþjóðlegri sölu félagsins til skipa í N-Atlantshafi.
    Skeljungur starfrækir 65 bensínstöðvar á Íslandi undir vörumerkinu Orkan. Á fyrirtækjamarkaði selur og dreifir Skeljungur skipaolíu, eldsneyti, efnavöru og áburði til fyrirtækja og einstaklinga í atvinnustarfsemi ásamt því að reka olíuprammann Bark sem þjónustar m.a. olíu til erlendra skemmtiferðaskipa í Reykjavíkurhöfn.
    Skeljungur er móðurfélag Magn, fyrrum Shell í Færeyjum, með 135 starfsmenn og 690 milljón DKK í árlega veltu. En einnig á Skeljungur þriðjungshlut í WEDO eiganda vefverslunarinnar Heimkaup.is
    27 min
  • 65. Geirlaug Jóhannsdóttir Hagvangi


    Um Geirlaugu segir í umfjöllun Viðskiptablaðsins vegna eigendaskipta hjá Hagvangi;
    "Geirlaug hefur lokið MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á mannauðsstjórnun og BS gráðu í rekstrarfræðum frá Háskólanum á Bifröst. Hún starfaði áður við Háskólann á Bifröst sem aðjúnkt á viðskiptasviði Háskólans á Bifröst og kenndi þar m.a. mannauðsstjórnun. Hún var um árabil forstöðumaður símenntunar Háskólans á Bifröst og síðar verkefnastjóri tilraunaverkefnis um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi. Áður starfaði Geirlaug sem fræðslustjóri hjá álverinu í Straumsvík. Geirlaug hefur reynslu af sveitarstjórnarstörfum og setið í ýmsum stjórnum, ráðum og nefndum. Geirlaug gekk til liðs við Hagvang árið 2015 og hefur unnið mikið fyrir sveitarfélög og setið í valnefndum vegna ráðninga stjórnenda og sérfræðinga hjá opinberum stofnunum og fjölmörgum fyrirtækjum.


    Á hagvangur.is segir um fyrirtækið;
    "Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum. Hjá Hagvangi starfa 9 sérfræðingar, annars vegar við ráðningar og hins vegar við stjórnenda- og mannauðsráðgjöf. Hagvangur hefur alla tíð einbeitt sér að faglegum ráðningum og starfsmannaleit og árið 2013 var endurvakið ráðgjafasvið fyrirtækisins. Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við ráðningar, ráðgjöf, persónuleika- og hæfnipróf  og margt fleira. 
    Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi. Áralöng þekking og reynsla af atvinnulífi á Íslandi, breytt tengslanet og gott orðspor eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.  Við höfum það að leiðarljósi að leggja stöðuga áherslu á nýjungar í þjónustu og áreiðanleika í öllum þeim störfum sem við tökum okkur fyrir hendur.
    Í upphafi beindust sjónir Hagvangs mest að ráðningum. Fyrst í stjórnunar- og sérfræðistörf en fljótlega fór Hagvangur að bjóða viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu við ráðningar á öllum sviðum atvinnulífisins."

    30 min
  • 64. VigdísJóhannsdóttir Pipar/TBWA
    Vigdís er gestur Óla Jóns í þessum þætti. Umræðuefnið er sú þjónusta sem Pipar/TBWA býður uppá ásamt því hvað Vigdís finnst hafa breyst í markaðsmálum á hennar ferli sem spannar nú um tuttugu ár. Við ræðum einnig Krossmiðlum sem er ráðstefna sem haldin er núna 13. september 2019.
    Á þá ráðstefnu mæta meðal annara John Hunt og Mark Schafer, Bylgja Pálsdóttir, Stella Samúlesdóttir og Ólafur Steinarsson.
    25 min
  • 63. Arnar Gísli Hinriksson Digido
    Arnar starfar hjá Digido, á vef Digido segir um fyrirtækið;
DigiDo er netmarkaðsstofa sem hjálpar fyrirtækjum að ná betri árangri í netmarkaðsmálum með auknum sýnileika á leitarvélum, skilvirkari vefauglýsingum, bestunaraðgerðum á vefsíðu, nýtingu gagna í markaðsaðgerðum og vefmælingum. Okkar áhersla er árangursmarkaðssetning (e. Performance Marketing) þar sem gögn og mælingar eru notuð til árangurs í markaðsstarfi.

Arnar sem starfaði hjá CCP og WOW segir okkur frá Growth Hacking er og hvernig það var nýtt hjá CCP og átti að gera hjá WOW. Við ræðum líka Google Ads, samfélagsmiðla, retargeting, vefborða, adblockers,youtube og fleira.
    44 min
  • 62. Valdimar Sigurðsson Háskólanum í Reykjavík
    Viðtal við Dr. Valdimar Sigurðsson
    Prófessor við viðskiptadeild HR. PhD
    Dr. Valdimar Sigurðsson er prófessor í markaðsfræði og neytendasálfræði við viðskiptadeild HR. Valdimar lauk doktorsprófi sínu við Cardiff University.
    Valdimar hefur birt fjölda greina og bókakafla og unnið til rannsóknarstyrkja. Hann hefur unnið með fjölmörgum fyrirtækjum í markaðsmálum bæði á Íslandi sem og erlendis.
    45 min
  • 61. Oddur & Ægir hjá Key Of Marketing
    Í þessum þætti komu í spjall hjá Óla Jóns þeir Oddur Jarl Haraldsson og Ægir Hreinn Bjarnason en þeir eiga Key Of Marketing sem sérhæfir sig í að finna bestu leiðirnar fyrir fyrirtæki að markaðssetja sig á samfélagsmiðlum.
    Á keyofmarketing.is segir;
"Hvernig byrjaði þetta?
„Þetta byrjaði allt fyrir um ári síðan þegar Oddur Jarl Haraldsson, sem sjálfur stóð í eigin sölurekstri ásamt mér, Ægi Hreini Bjarnasyni og öðrum félögum sínum, byrjaði að sjá um auglýsingar hjá öðru fyrirtæki meðfram eigin rekstri. Vinir Odds og vandamenn, sem sjálfir áttu fyrirtæki, sáu hversu vel gekk hjá Oddi að markaðssetja og réðu Odd til að sjá um markaðssetningu fyrir sig,“ segir Ægir. Eftir það fór markaðsfyrirtækið Key of Marketing á flug og fluttist eftir stutta starfsemi í glæsilega skrifstofuaðstöðu í Ármúlanum. Ægir kom inn sem sölustjóri fyrirtækisins og réðu þeir inn fleiri starfsmenn til þess að verða við vaxandi eftirspurn. 
Hvað gerum við?
Við sjáum um auglýsingar á Facebook, Instagram, Google, Youtube og Email.Við notum Facebook Pixel-inn mjög mikið sem er hugbúnaður til að finna líklegustu kaupendur. Vefsíðugerð, auglýsingar, portrait myndir, logo, plaggöt, albúm cover, 3D vinnu, animation og fleira.Það eru auðvitað margar leiðir til að gera þetta, en við gerum þetta rétt :)
    31 min
  • 60. Friðrik Larsen Brandr
    Friðrik Larsen hjá Brandr, Larsen Energy Branding og Háskóla Íslands í góðu spjalli um vörumerki.
    Hvað er vörumerki og hvað er ekki vörumerki, starfsemi Brandr og kennslan hjá HÍ er meðal annars það sem við förum yfir.
    Friðrik segir okkur líka frá bók sem hann skrifaði og er hægt að nálgast á Amazon Energy Branding: Harnessing Consumer Power.
    32 min
  • 59. Magnús Árnason - Nova
    Það þarf líklega ekki að kynna Nova fyrir neinum á Íslandi í dag, stærsta skemmtistað í heimi. Sama má segja um Magnús Árnason sem er með titilinn CHIEF DIGITAL OFFICER hann þarf ekki að kynna fyrir markaðsfólki á Íslandi.
    Magnús hefur unnið hjá fyrirtækjum einsog Íslandssíma, Latabæ, OZ og sat í stjórn Cintamani. Einnig stofnaði Magnús og rak auglýsingastofuna Vatíkanið ásamt félaga sínum.
    Magnús segir okkur frá hvernig Nova stærsti skemmtistaður í heimi vinnur að sýnum markaðssmálum.
    Mjög gott spjall sem enginn áhugamaður um markaðsmál má láta framhjá sér fara.
    37 min