Jóns

Jóns

By Óli JónsBusiness
Download on the App Store

All Jóns episodes

  • 38. Jonathan Gerlach
    Jonathan Gerlach hjá Kolibri og SVEF.
    Jonathan starfar sem Digital product designer hjá Kolibri og er formaður SVEF samtaka vefiðnarins.
    Hann hefur starfar mörg undanfarin ár að vefmálum og komið að mörgun verkefnum stórum og smáum.
    Á vefsíðu Kolibri má fá frekari upplýsingar um hluta af þeim verkefnum sem Jonathan hefur komið að.
    Við ræðum vefbransann, vefverðlaunin sem eru næst 26. janúar, fræðumst um starfsemi SVEF og ýmislegt fleira.
    38 min
  • 37. Lárus Halldórsson Actica
    Í þessu þætti heyrum við viðtal sem ég tók við Lárus Halldórsson hjá Actica.
    Á vef Actica segir um Lárus
    Lárus Halldórsson er stofnandi og af ráðgjöfum Actica. Lárus hefur starfað í áratugi við sölu- og markaðsmál og þekkir þau mál frá öllum hliðum. Lárus hefur verið framkvæmdastjóri hjá ýmsum fyrirtækjum og verið í þeirri stöðu að semja við auglýsingastofur, birtingafyrirtæki og fjölmiðla. Lárus hefur einnig verið framkvæmdastjóri hjá fjölmiðlafyrirtækjum sem bjóða auglýsendum auglýsingaleiðir og Lárus hefur einnig stýrt öllum þáttum netmiðla, efnisgerð, markaðssetningu, og söluaðgerðum á fjölmörgum mörkuðum.
    39 min
  • 36.Páll Guðbrandsson framkvæmdastjóri Hype auglýsingastofu
    Páll Guðbrandsson fyrrverandi járnabindingamaður og núverandi framkvæmdastjóri.
    Í þessum þætti fáum við að kynnast Páli og auglýsingastofunni Hype.
    Hann segir okkur frá hvað honum finnstr um  auglýsinga og hvernig er staðið að markaðssetningu fyrirtækja á Íslandi í dag og hvað hann sér fyrir sér í þeim málum á næstunni.
    Páll tók nýverið við sem framkvæmdastjóri hjá Hype, það sem þeir leggja áherslu á meðal annars er að bjóða sínum viðskipta uppá það besta í boði er í hvert skipti.
    Á vefsíðu Hype segir um Pál
    "Páll hefur áralanga reynslu úr auglýsingabransanum og hefur unnið að öllum mögulegum og ómögulegum verkefnum með fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Páll hefur setið í fjölmiðlanefnd SÍA og sinnt dómnefndarstörfum fyrir Ímark – Lúðurinn og hefur sjálfur komið að ófáum verkefnum sem hafa unnið til verðlauna þar. Páll unir sér best með veiðistöng í hönd á fallegum árbakka og þarf ekki einu sinni að sjá fisk til að upplifa þar sitt Nirvana."
    41 min
  • 35. Þáttur Hlaðvarpið á jons.is Sófús Hafsteinsson
    Sófús er verslunarstjóri hjá Elko í Lindum.  Verslunarstjórastarf í stærstu raftækjaverslun á Íslandi er fjölbreytt og skemmtilegt starf en jafnframt krefjandi.
    Sófús fer yfir með okkur hvernig þjálfun starfsfólks er háttað, helstu verkefni sem hann þarf að sinna áskoranir í starfi og fleira. Við ræðum einnig starf sölumanna og menntun fólks í verslunargeiranum almennt.  Förum yfir hvernig Elko fundar með sýnum starfsmönnum, hvernig þau nota Workplace frá Facebook og margt fleira.
    Ég spyr Sófús út í áhrif Coctco á Elko, áhugaverð viðbrögð í því.Fyrir þá sem eru að hugsa verlsunarstörf og þá sem reka fyrirtæki er þetta viðtal mjög nytsamlegt.
    26 min
  • 34. þáttur Hlaðvarpið á jons.is Ragnar Bjartur Guðmundsson
    Ragnar Bjartur Guðmundsson hjá vefgreining.com kíkti á mig til þess að ræða vefmælingar.
    Afhverju að mæla, hvernig, afhverju og með hverju?
    Ragnar  hefur yfir 15 ára reynslu af vef- og markaðsmálum.
    Hann hóf ferilinn sem vefstjóri Torg.is og fór í framhaldi af því í bankageirann þar sem hann starfaði til ársins 2007.
    Þá flutti hann sig um set til Marel, þar sem hann stýrir greiningu á árangri af markaðsstarfi, auk þess að sinna framsetningu á fjármálalegum upplýsingum.
    Ragnar heldur ennfremur úti vefnum Vefgreining.is og hefur komið að greiningu á vefmálum og uppsetningu stafrænna mælinga hjá fyrirtækjum á borð við Capacent, Húsgagnahöllina, Betra bak og Dorma. Þá hefur hann verið gestafyrirlesari í Háskóla Íslands.
    35 min
  • 33. Þáttur Hlaðvarpið á jons.is María Björk Ólafsdóttir
    María Björk Ólafsdóttir er sölustjóri hjá TripCreator.
    Hún hefur starfað m.a. hjá Grayline í markaðsmálum og hjá CP Reykjavík.
    Hún segir okkur frá því hvað varð til þess að hún fór eftir að hafa tekið BS í líffræði og Master í líf og læknavísindum yfir í Master í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum. 
    María starfar líka við startup á Íslandi og leiðir hún okkur aðeins í þann heim.
    Við ræðum um fyrirtækið sem hún starfar hjá í dag, söguna og hvað þau eru að gera í sölu og markaðsmálum.
    Á vefsíðu TripCreator segir um fyrirtækið
    How It All Began
    Our journey began with one man’s frustration over the overwhelming task of travel planning.We all know the feeling of excitement when you have chosen your destination, only to be discouraged by the hassle of having a dozen tabs open on your computer, trying to mix and match everything together. There are so many things that need attention, the availability of your accommodation, how to get around, what to see and where to eat, to name a few.
    All this led our founder and CEO to think: "This shouldn’t be this complicated!" The thought stuck with him until he decided to create a state of the art trip planner, making the whole process effortless and enjoyable, for both businesses and travellers.
    And TripCreator was born.
    24 min
  • 32. þáttur Hlaðvarpið á jons.is Kristín Guðmundsdóttir
    Kristín Guðmundssdóttir hjá dóttir webdesign er gestur minn í þessum þætti og er umræðuefnið er Wordpress.
    Wordpress vefumsjónarkerfið er vinsælasta vefumsjónarkerfi í heimi og er sérstaklega þægilegt að vinna með sérstaklega fyrir byrjendur.
    Kristín hefur unnið að vefhönnun í mörg ár og sérhæft sig að vinna með Wordpress og Woocomerce  netverslunarkerfið.
    Í þessu spjalli kemur hún inná ferlið við gerð á vefsíðum, hvað henni finnst mikilvægt að hafa í huga og fleira.
    Á vef Kristínar segir um hana
    Ég heiti Kristín Guðmundsdóttir og er grafískur- og vefhönnuður og eigandi Dóttir vefhönnun.
    Ég lærði margmiðlunarhönnun í Kaupmannahöfn og hef starfað í greininni sjálfstætt og sem ráðinn starfskraftur síðan 2008, bæði í Kaupmannahöfn og á Íslandi. Ég stofnaði Dóttir vefhönnun í október 2016 í Kaupmannahöfn eftir að hafa starfað þar sjálfstætt undir eigin nafni í nokkur ár. Frá og með júlí 2017 eru höfuðstöðvar mínar á Íslandi.
    Ég bjó til mína fyrstu heimasíðu fyrir 20 árum síðan, hún bar nafnið Súperkisi.. ekki spyrja. Það liðu síðan þónokkuð mörg ár þangað til að ég gerði vefhönnun að starfi mínu og ég sé alls ekki eftir því. Að hanna, setja upp og sjá um vefi er eitt það skemmtilegasta sem ég geri.
    Verkefnin sem ég tek að mér eru bæði stór og smá, ég kann mjög vel við áskoranir sem kalla á að ég fari út fyrir þægindarammann. Ég hef trú á að það geri mig að betri manneskju og færari vefhönnuði.
    Fyrir þá sem vilja ná í Kristínu er best að senda póst á [email protected]
    27 min
  • 29. þáttur Hlaðvarpið á jons.is Tryggvi Freyr Elínarson
    Tryggvi Freyr Elínarson framkvæmdastjóri Innut ehf.
    Tryggvi hefur alla tíð verið í sölu og markaðsmálum. Byrjaði að selja súkkulaðidagatöl, klósettpappír og ljósaperur fyrir Lions, þar fann hann sig strax í þessum geira. Í kjölfarið af því varð hann sölustjóri á unlingsárum og stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki nýskriðinn úr menntaskóla.
    Eftir að hafa starfað hjá ýmsum fyrirækjum meðal annars Adidas, stofnaði hann ráðgjafafyrirtæki árið 2007 sem fljótlega tók stefnu í átt að digital marketing, í ljósi þess sem var að gerast þá.
    Fyrir um einu og hálfu ári stofnaði Tryggvi svo Innút ásamt nokkrum öðrum.
    Innút er í eðli sýnu ráðgjafa fyrirtæki sem sinnir ráðgjöf í stafrænni markaðssetningu og stýra birtingum. Innút vinna bæði með stórum og litlum aðilum í ferðaiðnaðinum og þá mest í Google Adwords. Tryggvi og félagar hjá Innút eru líka mikið að vinna með “business intelligence” deildum hjá stærri fyrirtækjum, oft eru til mikil og verðmæt gögn sem hægt er að nýta meira að sögn Tryggva.
    35 min