Jóns

Jóns

By Óli JónsBusiness
Download on the App Store

All Jóns episodes

  • 130. Þórhildur Laufey Sigurðardóttir
    Þórhildur Laufey bókmenntafræðingur, grafískur hönnuður og brandari er gestur Óla Jóns í þessum páskaþætti.
    Þórhildur stofnaði fyrirtækið Kúper Blakk fyrir nokkrum árum, um fyrirtækið segir á kuperblakk.is
    "Hvað er þetta Kúper Blakk?
    Kúper Blakk er skapandi stofa sem eeeelskar að auka vörumerkjavirði fyrirtækja og færa brandið "heim í hús". Galdurinn liggur í að skapa heilsteypta sögu, einfalda skilaboð og setja sig í spor viðskiptavina.
    Hvaða sögu segir brandið þitt? Gæti skapandi hugsun verið það sem vantar inn í jöfnuna við að byggja upp metnaðarfullt vörumerki?
    Knúsum þetta saman - það ber árangur."
    Þórhildur segir okkur frá hvað kom til að hún lærði bókmenntafræði og síðar grafíska hönnun. Við ræðum líka Branding, markaðsmál, skapandi hugsun og margt fleira.
    Þórhildur hefur komið að branding verkefnim hjá Krónunni, Íslandsbanka og Orku náttúrunnar svo eitthvað sé nefnt.
    54 min
  • 129. Svanhildur Hólm Valsdóttir
    Svanhildur Hólm er framkæmdastjóri Viðskiptaráðs sem er líkt og segir á vi.is 
"Sameiginlegur vettvangur íslensks viðskiptalífs í rúma öld
Heildarsamtök fyrirtækja, félaga og einstaklinga í íslensku atvinnulífi sem telja að heilbrigt og kraftmikið atvinnulíf skapi forsendur til framfara og bættra lífskjara hér á landi."
    Í þessu spjalli segir Svanhildur okkur lítillega frá sér s.s. menntun og fyrri störf en hún lærði lögfræði í eftir menntaskóla. Svanhildur hefur starfað í fjölmiðlum, sem framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og sem aðstoðamaður Bjarna Benediktssonar.
Við ræðum einnig hlutverk og tilgang Viðskiptaráðs, helstu verkefni þess ásamt þeim áskorunum sem Covid hefur haft á starfsemina og aðila inn félagsins.
Ferðaþjónusta, eldgos, veitingastaðir og kattarmyndbönd koma einnig við sögu í þessu viðtali.
    34 min
  • 128. Unnur & Sigrún Vefverðlaunin og Iceweb 2021
    Þær Sigrún Tinna Gissurardóttir forritari hjá Sendiráðinu og Unnur Sól Ingimarsdóttir forritari hjá ORIGO og stjórnarmeðlimir SVEF kíktu í stutt spjall og ræddu m.a. Iceweb 2021 og Íslensku vefverðlaunin.
    Á svef.is segir um samtökin
"Hvað er SVEF?
Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi. Samtökin hafa það að markmiði að miðla þekkingu og efla fagleg vinnubrögð í greininni, vera samræðuvettvangur félagsmanna og andlit stéttarinnar út á við.
SVEF sér árlega um framkvæmd Vefverðlaunanna, en fyrsta verðlaunaafhendingin var haldin árið 2000. Félagið stendur árlega fyrir ráðstefnunni IceWeb, sem er metnaðarfull alþjóðleg ráðstefna um vefmál, auk fjölda smærri fyrirlestra, umræðufunda og mannfagnaða fyrir félagsmenn.
Félagsmenn SVEF eru um 300 talsins en og koma úr ýmsum sviðum vefheima en meðal félagsmanna má m.a. finna vefara, ráðgjafa, forritara, hönnuði, vefstjóra, prófara, markaðsstjóra, framkvæmdastjóra, kennara o.s.frv."
    Iceweb 2021 verður haldin á netinu þetta árið líkt og vefverðlaunin
Dagskrá Iceveb:
Mánudagur 22. mars: Valgerður Pétursdóttir – Reykjavíkurborg
Þriðjudagur 23. mars: Hjörtur Hilmarsson – 14islands
Miðvikudagur: 24. mars: Hjálmar Gísla – Grid
Fimmtudagur: 25. mars: Erla María – Hvíta Húsið
Föstudagur 26. mars: Pablo Stanley – Fyrrum yfirmaður hjá InVision, hönnuður hjá Lyft og einn stofnanda Blush hönnunartólsins
    Á svef.is segir um vefverðlaunin
„Vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.“
    Um viðburðin segir;
"Íslensku vefverðlaunin verða haldin með hátíðlegum hætti föstudaginn 26. mars kl 19. Við munum halda viðburðinn á live streymi þetta árið og hvetjum fyrirtæki og einstaklinga til að halda gleðskap (innan takmarkana þó) á meðan viðburði stendur. Við munum bjóða upp á að vera með live vefmyndavélar í samkvæmunum og getum skipt yfir á vinningshafa til að keyra upp stemninguna!Við lofum frábærri skemmtun þótt hún verði með öðrum hætti en áður hefur verið. Spennan er mikil gagnvart verðlaununum og er óhætt að segja að samkeppnin um bestu vefnina hafi sjaldan verið meiri.Sendur verður linkur á viðburðinn og honum streymt á vefnum okkar sem og á facebook.Hlökkum til að sjá þig og fyrirtækið þitt í banastuði."
    21 min
  • 127. Hjörvar Hermannsson
    Hjörvar Hermannsson framkvæmdastjóri Smartmedia
    Hermann er stúdent frá MK og kláraði síðan viðskiptafræði í HÍ með áherslu á markaðsmál. Eftir HÍ ákvað hann að leggja land undir fót og fór í mastersnám í markaðsfræðum í Gold Coast , Ástralíu.
    Eftir það nám kom Hermann aftur til Íslands og hóf störf hjá auglýsingastofunni Pipar.
    Hermann ásamt félaga sínum settur á laggirnar fjaroflun.is sem kveikti áhuga hans á vefverslunum og í framhaldi á því hóf hann störf hjá Smartmedia
    Um fjaroflun.is segir
    Með þjónustu okkar viljum við gera einstaklingum og hópum auðveldara fyrir að stofna fjáraflanir ásamt því að auðvelda skipulag og spara útgjöld fyrir vörum.
    Aðstandendur síðunar hafa starfað umtalsvert að íþrótta og æskulýðrsmálum og þekkja því vel þær raunir sem fylgt geta fjáröflunum af þeim toga. Síðunni er ætlað að koma til móts við þarfir foreldra, kennara, þjálfara og annara sem þekkja til eða vilja styrkja ungt fólk til góðra verka.
    Um SmartMedia
Áratugareynsla í gerð vefverslana
    SmartMedia hefur frá stofnun byggt upp góð og náin viðskiptasambönd við fjölda fyrirtækja. Í dag þjónustum við 156 íslensk fyrirtæki með sínar netverslanir og fer þeim fjölgandi
    35 min
  • 126. Jón Trausti Ólafsson
    Jón Trausti er framkæmdastjóri Öskju, hann ólst upp við bíla á bílasölu sem pabbi hans á svo hann á ekki langt að sækja bílasöluáhugann þrátt fyrir að vera ekki svokallaður bíladellukall.
    Jón Trausti starfaði sem fararstjóri og var í Portúgal eftir menntaskóla. En mömmu hans fannst hann farinn að vera full mikið í burtu og skráði hann því í skólann á Bifröst.
    Jón Trausti hóf svo störf hjá Heklu 1998 sem sölustjóri í notuðum bílum og starfaði þar þangað til Askja var stofnuð.
    Jón segir okkur frá hvernig það er að vinna með þekkt stór alþjóðleg vörumerki líkt og Mercedes Bens, KIA og Honda og hvaða áhrifa Covid hafði á þeirra rekstur.
    Markaðssmál, mannauðsmál, rútur, rafmagnsbílar og félagsstörf hjá Bílgreinasambandinu bera einnig á góma.
    29 min
  • 125. Victor Pálmarsson
    Victor Pálmarsson er einn af stofnendum 1819 og er markaðsstjóri fyrirtækisins, á 1819.is segir um fyritækið;

"1819 er upplýsinga og þjónustufyrirtæki sem leitast við að aðstoða einstaklinga sem og fyrirtæki í upplýsingagjöf og aukins sýnileika. 1819 heldur uppi heimasíðu sem líkja má við rafræna símaskra, en í raun er heimasíðan leitarvél þar sem hægt er að finna ýmsar upplýsingar um fyrirtæki, opnunartíma, símanúmer og heimilisföng.
Upplýsinganúmer 1819 hefur það markmið að veita hraða, hágæða þjónustu við upplýsingagjöf ásamt því að starfsfólk okkar sérhæfir sig í símsvörun og ritarastörfum fyrir allr stærðir fyrirtækja. Markmið okkar allra hjá 1819 er að auðvelda aðgengi að upplýsingum sem leiða til einfaldari samskipta einstaklinga og fyrirtækja á Íslandi. Okkar hæfileikaríka starfsfólk gerir þitt daglega líf auðveldara."
    Í þessu spjalli segir Victor okkur frá því hvað kom til að ráðist var í að stofna 1819 og hvaða áskoranir hópurinn stóð fyrir. Victor fer einnig yfir það með okkur hvernig fyrirtækið hefur þróast og hvaða vörur og þjónustu fyrirtækið bíður upp í dag.
    33 min
  • 124. Baldur Rafn Gylfason
    Í þessum þætti ræðir Óli Jóns var Baldur Rafn Gylfason hjá Bpro.is
    Baldur segir okkur frá því hvar hann lærði að vinna á Fellsströnd þar sem hann var vinnumaður í mörg sumur. Við fáum líka að vita hvernig það kom til að smiðssonurinn sem byrjaði að nema smíði í Iðnskólanum útskrifaðist svo af hárgreiðslubraut eða klippari eins og hann segir sjálfur úr sama skóla.
    Baldur segir okkur líka frá Mojo tímanum hárgreiðslustofu sem hann rak og mörgum "markaðsstöntum" sem hann og félagar hans voru með. Í dag á Baldur með eiginkonu sinni Sigrúnu Bender Bpro en á bpro.is segir um fyrirtækið;
    Bpro er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað af þeim hjónum Baldri Rafni Gylfasyni og Sigrúnu Bender árið 2010. Bpro er heildverslun með fagvörur fyrir hárgreiðslu- og snyrtistofur og leggjum við mikinn metnað í að bjóða einungis upp á hágæða vörur og setjum fagmennskuna í fyrsta sæti.
    Baldur telur sérstaklega mikilvægt að byggja upp sterk viðskiptasambönd við sýna viðskiptavini og fer yfir það í þessu viðtali hvernig og afhverju.
    Skemmtilegt og hressandi viðtal við Baldur svo ekki sé meira sagt.
    54 min
  • 123. Ása Tryggvadóttir
    Í þessum þætti er það Ása Tryggvadóttir segir markaðsstjóri Bestseller okkur frá sinni vegerð. Ása fór í Versló og HR, þar á eftir réð hún sig í markaðsdeild Heklu. Ása sem er Ísfirðingur og mikil útivistarkona vann einnig á Hvíta húsinu sem tengill svo hún þekkir vel til markaðsmála frá flestum hliðum.
    Í þessu viðtali fyrir Ása yfir það hvernig þau hjá Bestseller markaðssetja sýnar vörur með mikla áherslu á samfélagsmiðla og í samvinnu við markaðsfyrirtækið Digido.
    35 min
  • 122. Auður Inga Einarsdóttir
    Í þessum þætti höldum við áfram að ræða það þegar fyrirtæki ráðast sjálf í að framleiða sitt markaðssefni.
    Til þess að ræða það fékk ég til mín Auði Ingu Einarsdóttur hjá Advania.
    Ég spurði hana meðal annars hvort Advania framleiðið mikið efni innanhúss og þá hvernig efni?
    Hvernig þau ákveða hvaða efni á að gera s.s. myndbönd, hlaðvörp, "livestream" oþh. 
    Hvernig þau mæla árangur af þeirri vinnu til að sjá hvað á að gera meira af?
    Við förum einnig í þjálfun starfsfólks, því ekki er sjálfgefið að það sé til starfsfólks sem er til í að tala í myndavél?
    Ræðum einnig búnað og þekkingu á honum?
    Advania hélt haustráðstefnu sýna alfarið á netinu 2020 og fer Auður einnig yfir þá vinnu, undirbúning, framkvæmd og eftirfylgnina af þeirri vinnu.
    39 min
  • 121. Sigurður Hannes Ásgeirsson
    Í þessum þætti ræðir Óli Jóns við Sigurð Hannes Ásgeirsson en hann starfar við efnissköpun hjá Icepharma. Sigurður sem menntaði sig í kvikmyndagerð í New York hefur komið víða við á sínum ferli þar má meðal annars nefna heimildamyndagerð í Afríku, hjá sjónvarpsstöð í Canada ásamt því að hafa starfað hér á landi. Sigurður er eins og hann segir klippari í grunninn en er í starfi sínu í dag jafnt tökum bæði og ljósmyndum og myndböndum ásamt eftirvinnu. Sigurður talar líka um hversu mikilvægt það er fyrir fólk í hans starfi að fá að vera með frá upphafi á mótun hugmynda að markaðsefni eða herferðum. Þetta er að í annað sinn sem Sigurður kemur í þáttinn en hann kom í þátt 17 með Herði félaga sínum sem hann rak með framleiðslufyrirtækið Skuggaland.
    36 min