KA Podcastið

KA Podcastið

By Knattspyrnufélag AkureyrarSports
Download on the App Store

All KA Podcastið episodes

  • KA Podcast - Upphitun fyrir bikarúrslit í blaki 2023
    Jólin eru framundan í blakinu þegar úrslitahelgi Kjörísbikarsins fer fram í Digranesi 9.-12. mars og eru bæði karla- og kvennalið KA í eldlínunni. Auk þeirra á KA þrjú yngriflokkalið í úrslitum yngriflokka á sunnudeginum.
    Þeir Ágúst Stefánsson og Arnar Már Sigurðsson formaður blakdeildar KA ræða hér helstu hlutina í blakheiminum á sama tíma og þeir renna leiðina suður.
    56 min
  • KA Podcastið - Arnar Grétars mættur norður
    Hlaðvarpsþáttur KA snýr aftur eftir nokkra pásu en að þessi sinni fá þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Hjalti Hreinsson til sín Arnar Grétarsson nýráðinn þjálfara KA í knattspyrnu til sín. Arnar er þrautreyndur í knattspyrnuheiminum og er heldur betur ástæða fyrir KA fólk að kynnast nýja stjóranum okkar.
    Sem leikmaður lék Arnar alls 71 landsleik fyrir Íslands hönd auk þess sem hann lék í atvinnumennsku með Rangers, AEK Aþenu og Lokeren. Þá gegndi hann stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá stórliðunum AEK Aþenu sem og Club Brugge en hann hefur einnig þjálfað Breiðablik og Roeselare í Belgíu.
    Þeir félagar fara yfir hina ýmsu hluti í spjalli sínu og klárt að þú vilt ekki missa af þessum þætti!
    44 min
  • KA Topp 5 - Mesti Karakter
    Pétur Heiðar Kristjánsson og Siguróli Magni Sigurðsson sjá um nýjan lið hjá KA sem ber nafnið Topp 5. Í fyrsta þætti fá þeir félagar til sín Skúla Eyjólfsson fyrrum leikmann KA og núverandi stjórnarmann.
    Í þessum fyrsta þætti renna þeir yfir mestu karakterana í knattspyrnuliði KA frá árinu 2000 til ársins í ár.
    52 min
  • KA Podcastið - Sævar um uppbyggingu KA svæðisins
    Sævar Pétursson framkvæmdarstjóri KA ræðir meðal annars nýja skýrslu um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri en Sævar segir til að mynda að hagkvæmast væri að byggja upp aðstöðu KA í einu.
    Þá ræðir hann einnig stöðuna á knattspyrnuliði KA en liðið hefur leik á Bose mótinu á laugardaginn þegar strákarnir sækja Breiðablik heim. Einnig fer hann yfir nokkra möguleika er koma að því að lengja tímabilið í fótboltanum sem hefur verið þó nokkuð í umræðunni að undanförnu.
    Við hvetjum ykkur eindregið til að hlusta á þetta áhugaverða spjall sem skiptir okkur að sjálfsögðu miklu máli.
    46 min
  • KA Podcastið - Donni gerir upp Þór/KA tímann
    Halldór Jón Sigurðsson eða Donni eins og hann er iðulega kallaður mætti í KA Podcastið og gerir upp þriggja ára tíma sinn með Þór/KA. Auk þess spjallar hann um innkomu sína inn í þjálfarateymi karlaliðs KA um mitt sumar og er alveg ljóst að enginn ætti að láta þennan þátt framhjá sér fara.
    43 min
  • KA Podcastið - Almarr og Jón Heiðar
    Almarr Ormarsson og Jón Heiðar Sigurðsson líta við í KA Podcastinu þessa vikuna en báðir fögnuðu þeir góðum sigri um helgina.
    Almarr ræðir 2-3 sigur KA á Víkingum í fótboltanum sem og sumarið til þessa. Jón Heiðar spjallar hinsvegar um 25-32 sigur KA á Fjölni í handboltanum sem og stemninguna í hópnum.
    38 min
  • KA Podcastið - Elfar Árni, Gunnar Líndal og Henry Birgir
    Hjalti Heinsson fær til sín góða gesti í KA Podcastinu þessa vikuna en Elfar Árni Aðalsteinsson ræðir magnaðan sigur KA í Grindavík en hann er nú orðinn markahæsti leikmaður í sögu KA í efstu deild.
    Gunnar Líndal Sigurðsson ræðir komandi tímabil hjá KA/Þór í handboltanum og spjallar um aðkomu sína að liðinu en hann tók við liðinu nú í sumar.
    Að lokum hringir Hjalti í Henry Birgi Gunnarsson sem mun sjá um Seinni Bylgjuna í vetur og spyr hann spjörunum úr hvað varðar komandi handboltatímabil. Ekki missa af skemmtilegum þætti!
    35 min
  • KA Podcastið - Jonni, Stebbi og Óli Stefán
    Það er heldur betur góð stjórn á hlutunum í KA Podcastinu þessa vikuna. Jónatan Magnússon og Stefán Árnason þjálfarar meistaraflokks KA í handbolta fara yfir stöðuna fyrir Opna Norðlenska mótið sem hefst á morgun.
    Þá mætir Óli Stefán Flóventsson þjálfari meistaraflokks KA í knattspyrnu í gott spjall um stöðuna og komandi leiki í Pepsi Max deildinni. Ekki missa af skemmtilegum þætti!
    34 min
  • KA Podcastið - Ívar Örn og Donni
    Hjalti Hreinsson fær þá Ívar Örn Árnason og Halldór Jón Sigurðsson (Donna) í skemmtilegt spjall.
    Ívar Örn sem hefur komið af krafti inn í lið KA ræðir innkomuna inn í KA-liðið sem og Bandaríska háskólaboltann þar sem hann hefur leikið listir sínar undanfarin ár.
    Donni fer yfir sumarið hjá Þór/KA og þau verkefni sem upp hafa komið. Hann er spenntur fyrir því að klára sumarið af krafti og halda áfram að gefa ungum leikmönnum tækifærið.
    49 min