KA Podcastið

KA Podcastið

By Knattspyrnufélag AkureyrarSports
Download on the App Store

All KA Podcastið episodes

  • KA Podcastið - Óli Stefán um sumarið til þessa
    Hjalti Hreinsson fær Óla Stefán Flóventsson þjálfara KA til sín í spjall þar sem þeir félagar fara yfir sumarið til þessa og stöðuna sem liðið er í nú þegar sumarið er rétt rúmlega hálfnað.
    Óli Stefán ræðir meðal annars David Cuerva nýjasta meðlim KA sem og hina einstöku stemningu sem er í kringum KA.
    39 min
  • KA Podcastið - Óli Stefán og Jonni Magg (29/05/19)
    Siguróli og Hjalti fá til sín þá Óla Stefán Flóventsson og Jónatan Magnússon og ræða þeir félagar ýmsa kanta á sínu starfi hjá KA.
    Óli Stefán fer yfir síðustu leiki sem og framhaldið í fótboltanum og þá ræðir Jonni nýliðinn vetur hjá KA/Þór sem og komandi tíma hjá karlaliði KA í handboltanum.
    43 min
  • KA Podcastið - Grímsi ræðir sigurinn á Val
    KA Podcastið er komið aftur í gang og Hallgrímur Mar Steingrímsson mætir í stúdíó-ið til þeirra Siguróla og Hjalta þar sem hann ræðir frábæran sigur KA á Val og framhaldið hjá KA liðinu.
    Þeir Siguróli og Hjalti fara svo yfir víðan völl er tengist fótboltanum hjá KA.
    48 min
  • KA Podcastið - 15. febrúar 2019
    Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA í knattspyrnu mætir til þeirra Siguróla og Hjalta og ræðir byrjunina á þjálfaraferli sínum með KA sem og komandi sumar. Þeir félagar fara yfir víðan völl í skemmtilegu spjalli og um að gera að kynnast betur þjálfaranum okkar.
    45 min
  • KA Podcastið - 30. janúar 2019
    Siguróli Magni og Ágúst Stefáns mæta aftur með KA Podcastið eftir smá frí og fara þeir yfir stöðu mála í fótboltanum, handboltanum og blakinu.
    Gestir þáttarins að þessu sinni eru tveir en Stefán Árnason þjálfari KA í handbolta ræðir mikilvægan leik liðsins gegn Fram á sunnudaginn og þá mætir Daníel Hafsteinsson leikmaður KA í fótbolta sem var nýlega á reynslu hjá SønderjyskE
    47 min
  • KA Podcastið - 27. október 2018
    Siguróli Magni og Ágúst Stefáns renna yfir stöðuna í handboltanum en KA gerði jafntefli við ÍR á dögunum eftir stórt tap gegn Stjörnunni þar áður. KA/Þór hefur farið vel af stað en tapaði þó síðasta leik á ævintýralegan hátt.
    Gestur þáttarins er enginn annar en Sævar Pétursson framkvæmdarstjóri félagsins og ræðir hann um rekstrarumhverfi KA auk þess sem hann fer yfir þær breytingar sem orðið hafa á félaginu undir hans stjórn.
    36 min
  • KA Podcastið - 12. október 2018
    Siguróli Magni og Hjalti Hreins hefja þáttinn á yfirferð yfir stöðu mála í Olís deildum karla og kvenna hjá KA og KA/Þór. Þá er farið að styttast í blaktímabilið og af því tilefni mæta þau Arnar Már Sigurðsson og Elma Eysteinsdóttir í spjall og ræða spennandi tíma í blakinu.
    Að lokum kíkir Áki Egilsnes í heimsókn en hann var nýverið kjörinn besti leikmaður septembermánaðar í Olís deild karla. Ekki missa af flottum þætti þessa vikuna!
    44 min
  • KA Podcastið - 4. október 2018
    Eftir smá pásu eru Siguróli og Ágúst mættir aftur með KA Podcastið. Þeir byrja á að renna yfir lok knattspyrnusumarsins hjá KA og Þór/KA og slá á þráðinn til Elvars Geirs Magnússonar ritstjóra Fotbolta.net
    Því næst fara þeir yfir handboltann hjá KA og KA/Þór og fá til sín Katrínu Vilhjálmsdóttur leikmann KA/Þór í spjall en stelpurnar taka á móti ÍBV í KA-Heimilinu í kvöld. Ekki missa af flottum þætti!
    59 min
  • KA Podcastið - 14. september 2018
    Þeir Siguróli Magni og Ágúst renna yfir opnunarleik Olís deildar karla þegar KA vann Akureyri 28-27 og rýna í deildina. Þá hita þeir upp fyrir Olís deild kvenna og fá til sín Ásdísi Guðmundsdóttur leikmann KA/Þórs.
    Þór/KA hefur staðið í ströngu að undanförnu og kemur fyrirliði liðsins, Sandra María Jessen, í heimsókn og ræðir stórleikinn gegn Wolfsburg og fleira.
    47 min