Sign up to save your podcasts
Or

Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu út sinn 62.þátt í dag og umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarsson og Arnar Gunnarsson. Þeir byrjðu á því í þessum þætti að fara yfir oddaleik KA/Þórs og ÍBV í undanúrslitum í Olísdeild kvenna ásamt því kíkja á möguleika KA/Þórs og Vals í úrslitaeinvíginu sem framundan er.
Því næst kíktu þeir félagar á leikina sem eru framundan í 8-liða úrslitum í Olísdeild karla en þeir eru sammála því að nýtt fyrirkomulag bjóði uppá að það gætu orðið óvænt úrslit og þeir geta hreinlega ekki beðið eftir að úrslitakeppnin fer af stað.
Að endingu kíktu þeir aðeins yfir umspilið um laust sæti í Olísdeild karla þar sem að Víkingur og Kría eigast við. Það kom þeim mjög á óvart að Kría hafi unnið fyrsta leikinn í því einvígi.
By Handboltinn okkarStrákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu út sinn 62.þátt í dag og umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarsson og Arnar Gunnarsson. Þeir byrjðu á því í þessum þætti að fara yfir oddaleik KA/Þórs og ÍBV í undanúrslitum í Olísdeild kvenna ásamt því kíkja á möguleika KA/Þórs og Vals í úrslitaeinvíginu sem framundan er.