Handboltinn okkar

KA/Þór stóðst prófið fyrir norðan - Suðurlandsbrautin hlustaði


Listen Later

Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í kvöld þar sem að umsjónarmenn þáttarins fjölluðu um fyrsta leik á milli KA/Þórs og Vals í úrslitaeinvíginu í Olísdeild kvenna.

Það var boðið uppá háspennu leik í KA-heimilinu þar sem að liðin sýndu góðan handbolta. Það vakti sérstaklega athygi þrautseigja norðanstúlkna sem hætta aldrei og eru ótrúlega skynsamar í sínum sóknarleik. Það er ljóst að nú eru Valsstúlkur komnar með bakið uppvið veggin fræga þegar þær fara á sinn heimavöll á sunnudaginn og þær þurfa að finna leiðir til þess að koma Theu Imani Sturludóttur meira inní sóknarleik liðsins ef þær ætla sér að eiga möguleika að fara í oddaleik.

Þá vildu þeir hrósa Stöð2Sport fyrir þeirra framlag í umgjörðinni í þessum leik þar sem þeir mættu á staðinn og voru með flottan panel með tveimur sérfræðinum og lýsarar voru á staðnum.  Og þeir vona svo innilega að þetta sé sá metnaður sem koma skal hjá fólkinu á Suðurlandsbrautinni.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Handboltinn okkarBy Handboltinn okkar