Sign up to save your podcasts
Or

Áttundi þátturinn af hlaðvarpsþættinum Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.
Viðmælendur Hjörvars í þessum þætti eru þær Ragnhildur Haraldsdóttir og Glódís Rún Sigurðardóttir. Þær hafa báðar náð frábærum árangri í hestaíþróttinni og var Ragnhildur útnefnd íþróttaknapi ársins 2020 og Glódís Rún efnilegasti knapi ársins 2020. Þær lifa báðar fyrir hestamennskuna og eyða öllum sínum stundum í það að spá í hestum og hvernig þær geta hámarkað árangur sinn í greininni.
Spjall þeirra við Hjörvar var áhugavert og það er gaman að kynnast þessum afrekskonum betur og heyra þeirra sögu.
By EiðfaxiÁttundi þátturinn af hlaðvarpsþættinum Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.