Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Kórónulestur:How many episodes does Kórónulestur have?The podcast currently has 40 episodes available.
April 29, 2020Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1973 (1.lestur)Hjörtur E Þórarinsson ritar Árbók FÍ 1973 og fjallar um heimaslóðir sínar í Svarfaðardal. Fjallað er um landslagið, fjöll þess, ár, tún, sögu, fólk og ýmsan fróðleik. Stóllinn, Kerling, Skíðadalur, gulstör, aðalbláber, Gljúfráin, ofl...more45minPlay
April 28, 2020Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1972 (1.lestur)Árbók FÍ 1972 fjallar um Rangárvallasýslu austan Markarfljóts, svæði sem ég rek ættir mínar til og leyfi mér að minnast fólks og fjalla frá persónulegum sjónarhóli. Skriðuhlaup og langlífur verslunarrekstur, stórbýli og frægasti hreppsfundur Íslandssögunnar, allt í ritstjórn Páls Jónssonar...more51minPlay
April 27, 2020Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1966 (1.lestur)Árbók FÍ árið 1966 fjallar um Rangárvallasýslu vestan Markarfljóts, og er efnið í höndum d. Haraldar Matthíassonar. Sérstök áhersla lestursins í dag er á Markarfljótið sem farartálma sem og tenging svæðisins við Njálu. ...more48minPlay
April 26, 2020Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1960 (1.lestur)Suðurjöklar er nafn Árbókar Ferðafélags Íslands árið 1960, eftir Guðmund Einarsson, með vísan í Eyjafjallajökul, Mýrdalssjökul og Tindfjallajökul. Lesturinn vísar í þann síðastnefnda, sökum nálægðar við sumarbústað sem ég dvaldi í fyrir nokkrum dögum. Sömuleiðis er Fjallabaksleið Syðri til umfjöllunar í árbókinni, og hljómar niður Eystri Rangár við lok þáttar, enda samsíða þessari fornu leið að hluta. ...more42minPlay
April 25, 2020Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1995 (2.lestur)Annar lestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1995 um Heklu. Lesturinn er tekinn upp í sumarbústað suðaustan við Heklu svo tengingin er sterk, en hljóðgæðin síðri! Ég biðst afsökunar á seinkun í nýjum lestri síðustu daga en tæknileg vandamál hömluðu mér. Vona að þið njótið. ...more27minPlay
April 23, 2020Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1995 (1.lestur)Árbók FÍ árið 1995 fjallar um Heklu, umhverfi hennar og áhrif. Efni bókarinnar er tekið saman af Árna Hjartarsyni, en fyrri Kórónulestur tók til árbókar 1945 þar sem Hekla var sömuleiðis til umfjöllunar. Í þessum lestri ber Selsund helst á góma auk þess sem fjallað er um dularfullt hvarf bæjar við rætur fjallsins. ...more42minPlay
April 21, 2020Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1994 (1.lestur)Guðrún Ása Grímsdóttir miðlar landslagi, náttúru, sögu og veðri Ystu Stranda í Árbók FÍ árið 1994. Svæðið er einna þekktast fyrir friðlandið Hornstrandir, en á þessum útnára byggðar má finna fjölbreytta sögu fólks í sambúð við óblíða náttúru. ...more1h 6minPlay
April 20, 2020Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1978 (1.lestur)Jóhann Skaptason, fyrrverandi sýslumaður á Húsavík, ritar árbók FÍ 1978 með Suður Þingeyjarsýslu sem viðfangsefni. Fjallað er um Reykjadal og Aðaldal, bæi þeirra og búendur við lok 8. áratugarins. ...more37minPlay
April 18, 2020Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 2001Það er Kjöllur og kjalverðir (jöklar) sem eru viðfangsefni Arnórs Karlssonar og Odds Sigurðssonar í árbók FÍ 2001. Í þessum lestri verður farið yfir vatnasvið Kjalar (hér er Kjölur um Kjöl frá Kili til Kjalar!), landmótun og gróður. ...more36minPlay
April 17, 2020Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1979 (2.lestur)Annar lestur úr árbók FÍ 1979 þar sem Sigurður Björnsson frá Kvískerjum fjallar um Öræfasveit. Hrikalegt landslag og fegurð Skaftafells, Morsárjökuls og Skeiðarár eru viðfangsefni lestursins. ...more31minPlay
FAQs about Kórónulestur:How many episodes does Kórónulestur have?The podcast currently has 40 episodes available.