Kratinn

Kratinn

By SamfylkinginNewsPolitics
Download on the App Store

Kratinn episodes

  • S309: Gervihagræðingarhópur, farsahöfundurinn Sigurður Ingi og menntamál

    Hlaðvarpsþáttur vikunnar er kominn út á öllum helstu veitum. Í þættinum voru helstu mál vikunnar tekin fyrir. Nýjasti kaflinn í farsahandriti Sigurðar Inga og stjórnarandstöðunnar varðandi stjórn Landsvirkjunar voru í deiglunni eftir að í ljós kom að fjármálaráðherrann fyrrverandi ber ábyrgð á fyrirkomulaginu sem hann hefur kvartað sig hásan yfir og neitaði svo að taka ábyrgð á því í viðtali. Þáttastjórnendur ræddu úrsögn Péturs Marteinssonar úr hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar og fóru yfir ferðir sínar í baðlón á síðustu árum. Þá var umferðarteppan sem stíflað hefur borgina síðustu daga greind og leynivopn gegn umferðinni opinberað.


    Í síðari hluta þáttarins mættu Anna María Jónsdóttir, kennari og varaþingmaður og Arna Lára Jónsdóttir, þingkona og Ísfirðingur langt aftur í ættir, í spjall til Arnars Þórs og Þórhalls Vals. Þær ræddu fundi í málefnanefndum flokksins sem eru allar mjög virkar um þessar mundir. Anna María lýsti fundi málefnanefndar um menntamál sem haldinn var á heimavelli hennar, Háteigsskóla, fyrr í vikunni. Þá fór hún yfir sína sín á menntastefnu flokksins og hvernig þróa þurfi hana til framtíðar. Arna Lára fór yfir byggðaáætlun sem rædd var í þinginu í vikunni og þau góðu verk sem ríkisstjórnin hefur leitt og er að setja á dagskrá fyrir byggðir landsins.


    Við hvetjum hlustendur til að taka virkan þátt á fundum málefnahópa flokksins sem eru á fleygiferð þessi misserin. Samfylkingin er sterkust þegar hún stendur saman. Hægt er að fylgjast með fundum á heimasíðu flokksins, Facebook eða með því að skrá sig á póstlista Samfylkingarinnar.

    1 hr 4 min
  • S308: Ýkt hægrisveifla, fæðingarorlofsmál og nýi Pírataflokkurinn

    Í hlaðvarpsþætti vikunnar voru stóru málin tekin fyrir,góðri venju samkvæmt.

    Í fyrri hluta þáttarins ræddu Þórður Snær, Ásta Guðrún, Arnar Þór og Þórhallur Valur um hvort tölvur ættu heima í pontu Alþingis. Ótrúverðug atlaga stjórnarandstöðunnar gegn Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra vegna uppsagnar forstjóra Landsvirkjunar var krufin og framganga nýja Pírataflokksins, sem áður var kenndur við sjálfstæði, var gagnrýnd. Þórður Snær greindi fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar af sinni alkunnu snilld og kosningasigur Demókrata í nýliðnum þingkosningum í Bandaríkjunum var tekinn fyrir.

    Í síðari hluta þáttar mættu þau Ragna Sigurðardóttirþingkona og Egill Hermannsson, ritari Ungs jafnaðarfólks og varabæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, í viðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals og var stúdíóið því fullmannað mis-ungu jafnaðarfólki. Egill fór yfir efni greinar sinnar umhægrisveifluna ýktu, aðdraganda hennar og viðbrögð. Ragna fór vel yfir þingsályktunartillögu sína um viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna, viðbrögð ráðherra og stjórnarandstöðu við henni, ýmsa aðra bresti í kerfinu ogreynslu sína af því að taka fæðingarorlof. Þá ræddu þau stöðu umhverfismála í umræðunni og hvort samfélagið væri að missa augun af umhverfisboltanum.

    Umræðan var innihaldsrík, lífleg og vonandi upplýsandi fyrirjafnaðarfólk um allt land.

    1 hr 16 min
  • S307: Öxin hennar Hildar, Alþýðusambandið og meintur miðjuflokkur

    Vegna tæknilegra örðugleika er hlaðvarpið seint á ferðinni þessa vikuna. Í fyrri hluta þáttar mættu til Þórðar Snæs og Þórhalls Vals þær Bjarnveig Birta Bjarnadóttir og Regína Ásvaldsdóttir úr borgarstjórnarhópi flokksins. Þær höfðu ýmislegt að segja um uppsagnir Reykjavíkurborgar, enda með fjölbreyttan bakgrunn úr rekstri. Framsóknarflokkurinn var afhjúpaður sem stækur hægri íhaldsflokkur og rekstur Reykjavíkurborgar var krufinn af fagmanni í rekstri sveitarfélaga, líklega í fyrsta sinn í sögu íslenskra hlaðvarpa.


    Í síðari hluta þáttarins kom Georg Páll Skúlason, nýkjörinn forseti Alþýðusambands Íslands, í viðtal til Þórhalls Vals og Arnars Þórs. Hann fór yfir feril sinn í verkalýðsmálum, hver hann er og hvað hann hefur fram að færa auk þess að tíunda hvaða framtíð hann sér Alþýðusambandið sigla inn í með sjálfan sig við stýrið. Þeir ræddu hvaða samlegð er með sterkum jafnaðarflokki og verkalýðshreyfingunni, hvernig þessi öfl geta snúið bökum saman og náð árangri fyrir íslenska alþýðu. Stemningin á nýliðnu þingi ASÍ var krufin og hvernig sameina þurfi hreyfinguna. Þá var hinni klassísku spurningu velt upp: Hvernig virkjum við fólk til þátttöku í verkalýðsbaráttu og stjórnmálum?

    55 min
  • S306: Er ofurkonan að örmagnast?

    Í þætti vikunnar mættu Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður í viðtal. Þær gerðu upp vel heppnaðan fund Kvennahreyfingarinnar í vikunni sem bar yfirskriftina „Ofurkonan vs. tradwife“.

    Í viðtalinu ræddu þær við Sonju og Þórhall Val um jafnréttisbaráttuna, uppgang úreltra kynjahugmynda, ýmsar ranghugmyndir um leikskólavist, þátttöku karla í jafnréttisumræðunni og margt fleira.

    Í fyrri hluta þáttarins ræddu Ásta Guðrún, Þórður Snær og Þórhallur Valur um lélegustu reiknivél sögunnar sem Framsókn kynnti til leiks í vikunni, villandi framsetningu kvótakóngs um þróun veiðigjalda, hvað ríkisstjórnin hefur gert í málefnum barna og bjartsýna hagspá Landsbankans.

    1 hr 2 min
  • S305: Jafnaðarstefnan kjörnuð og drottningarviðtal við Guðmund Ara

    Í hlaðvarpi vikunnar mætti nýr varaformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, í sannkallað drottningarviðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals. Drengirnir gengu hart að honum og kröfðu hann um að útskýra sína pólitísku sýn, hvað hann langaði að afreka sem varaformaður og hvernig hann fór frá því að vera utangátta unglingur yfir í að öðlast tilgang og finna til ábyrgðar gagnvart samfélaginu.


    Það er óhætt að segja að þema þáttarins hafi verið jafnaðarstefnan, hvað í henni felst og hvernig hún spilar þátt í því þeim aðferðum sem Samfylkingarfólk beitir í stjórnmálum.


    Í fyrri hluta þáttarins ræddu starfsmenn þingflokks Samfylkingarinnar helstu mál vikunnar en þar má nefna hertar reglur um au-pair dvalarleyfi og hvernig hátekjuhópar brugðust við því, líflegar og upplýsandi umræður um erfðafjárskatt í pontu Alþingis, augljóst handbragð jafnaðarmanna á kjarasamningagerð og nýliðinn flokksstjórnarfund í Sandgerði.

    56 min
  • S304: Kolbrún Bergþórsdóttir í viðtali við meintan fjölmiðil

    Í inngangi þáttar ræddu Þórhallur Valur, Arnar Þór og Ásta Guðrún um skráningarskyldu fjölmiðla en Kratinn hefur óskað eftir áliti fjölmiðlanefndar um skráningarskyldu sína til að friða sinn virkasta hlustendahóp, þingmenn Sjálfstæðisflokksins.

    Síðar mætti Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður til áratuga, með hnífabrýnið á lofti í viðtal til strákanna. Kolbrún lýsti því yfir að hún upplifði ekki meintar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar í heimilisbókhaldinu. Valur krafðist afsökunarbeiðnar vegna skrifa Kolbrúnar um fótbolta í gegnum tíðina, erfðafjárskattur bar á góma, hvernig woke-ið fældi Kolbrúnu frá Samfylkingunni og að allir stjórnmálamenn ættu að hafa upplifað að eiga ekki fyrir leigu um mánaðarmót.

    Kolbrún fór yfir feril sinn á fjölmiðlum, en hún hefur starfað á flestum fjölmiðlum sem reknir hafa verið á Íslandi síðustu áratugi, nú síðast á Morgunblaðinu og DV. Að endingu fengu strákarnir ábendingar um bækur sem allir jafnaðarmenn þurfi að lesa.

    41 min
  • S303: Making Reykjavík boring again og kálfarnir á Ulf Kristersson

    Þessa vikuna fengu Arnar og Valur góða gesti í hús, tvo ung-krata, þá Arnar Inga Ingason, tónlistarmann og Jóhannes Óla Sveinsson, forseta Ungs jafnaðarfólks.

    Til umræðu voru tímamótaræða Andy Burnham, yfirlýsing formanns Sjálfstæðisflokks um að það styttist mögulega í kosningar, staðan í stjórnarmyndun hjá sænsku Sossunum og því tengt, kálfarnir á Ulf Kristersson, úttekt Vinnueftirlitsins á stólum borgarfulltrúa og tilraunir nýs meirihluta í Reykjavíkurborg til þess að gera borgina leiðinlegri með því að vísa listamönnum á dyr.

    Löngu-tímabært framlag Kratans til manosphere-bylgjunnar.

    54 min
  • S302: Lygar, afbakanir og möguleg endalok Pírata?

    Tíu milljarðar fóru til bílaleiganna, en lítill árangur hefur náðst hjá þeim í að fækka bílum sem ganga fyrir jarðefniseldsneyti.

    Ásta veltir fyrir sér hvort endalok Pírata séu í sjónmáli, en í nýjustu könnun Maskínu mælist flokkurinn með 3,5% fylgi.

    Bókun 35, Miðflokkurinn og fjármál sveitarfélaga koma líka við sögu, ásamt ýmsu fleiru.




    50 min
  • S301: Hanskarnir af

    Kratinn mætir úr lærdómsríku sumarfríi með hanskana af.

    Þjóðaratkvæðagreiðslan var gerð upp og því velt upp af hverju stjórnarandstaðan hættir ekki að tala um hana eins og hún lofaði.

    Skattastefna Sjálfstæðisflokksins var tekin fyrir og af hverju í ósköpunum Vinstri græn samþykktu 330 milljarða skattalækkanir á meðan þau skiluðu 866 milljarða halla á ríkissjóði.

    Fyrsta umræða fjárlaga var dregin saman og teymið ræddi hræðslu sína við amerísku úthverfahugsjónina sem er að baki útvíkkuðum borgarmörkum.

    38 min
  • S301: Hanskarnir af

    Kratinn mætir úr lærdómsríku sumarfríi með hanskana af.

    Þjóðaratkvæðagreiðslan var gerð upp og því velt upp af hverju stjórnarandstaðan hættir ekki að tala um hana eins og hún lofaði.

    Skattastefna Sjálfstæðisflokksins var tekin fyrir og af hverju í ósköpunum

    Vinstri græn samþykktu 330 milljarða skattalækkanir á meðan þau skiluðu 866 milljarða halla á ríkissjóði.

    Fyrsta umræða fjárlaga var dregin saman og teymið ræddi hræðslu sína við amerísku úthverfahugsjónina sem er að baki útvíkkuðum borgarmörkum.

    38 min

About Kratinn

From the publisher's feed

Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.