Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Landsbyggðir er vikulegur viðtalsþáttur á N4, þar sem kastljósinu er beint að áhugaverðum samfélagsmálum, með áherslu á sjónarmið landsbyggðanna.Þættirnir höfða því einstaklega vel til allra sem áhu... more
FAQs about Landsbyggðir:How many episodes does Landsbyggðir have?The podcast currently has 155 episodes available.
October 29, 2020#116 Ásthildur Sturludóttir - Bæjarstjóri á Akreyri„Við erum að upplifa eina dýpstu kreppu frá stofnun lýðveldisins og öll sveitarfélög landsins þurfa að fara í algjöra uppstokkun á næstu tveimur til þremur árum. “ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akreyri. Að óbreyttu verður halli aðalsjóðs bæjarins á þriðja milljarð króna á þessu ári.Hún var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4.Víða er komið við í þættinum, svo sem viðbrögð við áhrifum vegna heimsfaraldursins, skipulagsmál, öldrunarþjónustu og fleira....more29minPlay
July 29, 2020#115 Halla Eiríksdóttir - stjórnarmaður í Bændasamtökum ÍslandsEr matvælaöryggi mikilvægt fyrir okkur Íslendinga?Hvernig þróast íslenskur landbúnaður?Er umræðan um landbúnað alltaf sanngjörn?Halla Eiríksdóttir stjórnarmaður í Bændasamtökum Íslands er gestur Karls Eskils að þessu sinni í Landsbyggðum á N4....more28minPlay
July 29, 2020#114 Kristín Ágústsdóttir - forstöðumaður Náttúrustofu AuturlandsNáttúrustofa Austurlands gegnir mikilvægu hlutverki. Kristín Ágústsdóttir forstöðumaður Náttúrustofu Auturlands var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4, þar sem farið var yfir ýmsar merkilegar rannsóknir á vegum stofunnar.„Vertíðin hjá náttúrufræðingum er yfir sumartínann. Veturinn fer svo í að greina rannsóknir sumarsins og skrifa skýrslur.“Hún segir að GPS tæknin hafi gjörbreytt vísindarannsóknum.„Já, já, tæknin hefur breytt ýmsu. Ég man þá tíð þegar við stóðum úti með blauta pappíra og svart/hvítar myndir af svæðunum sem við vorum að kortlegga og rannsaka. Í dag erum við með tölvur og skráum allt inn í þær, sem gerir það meðal annars að verkum að niðurstöðurnar liggja fyrr fyrir hjá okkur.“...more17minPlay
July 29, 2020#113 Jón Björn Hákonarson - forseti bæjarstjórnar FjarðabyggðarSveitarfélögin þurfa að horfa til framtíðar, meðal annars hvernig bregðast á við tækni- og samfélagsbreytingum. Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar er gestur í Landsbyggðum.Byggðapólitík, atvinnulífið, sameining sveitarfélaga, uppbygging innviða á landsbyggðunum og fleira....more28minPlay
July 29, 2020#112 Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir - sveitarstjóri í Húnaþingi vestraÍbúum Húnaþings vestra fjölgar umfram landsmeðaltal.Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir er sveitarstjóri, hún var gestur í Landsbyggðum á N4, þar sem meðal annars var rætt um uppganginn í sveitarfélaginu, byggðastefnu, fjölgun opinberra starfa og fleira....more23minPlay
July 29, 2020#111 Hjördís Albertsdóttir - varaformaður Félags grunnskólakennara og kennari í MývatnssveitStarf kennarans hefur tekið miklum breytingum„Já, kennarastarfið hefur breyst mikið á undanförnum árum og áratugum, breytingarnar hafa verið hraðar á allra síðustu árum,“ segir Hjördís Albertsdóttir varaformaður Félags grunnskólakennara og kennari í Mývatnssveit.Hún var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4.„Í dag er staðan sú að kennarar og nemendur eru í samvinnu við að leysa ákveðin rauntengd verkefni, kennarinn er nemendum til stuðnings.“...more26minPlay
July 29, 2020#110 Sumarnámskeið Háskólans á Akureyri 2020"Við erum mjög ánægð með viðbrögðin, skráningar sýna að fólk hefur áhuga á þessum leiðum sem í boði eru"Fjallað er um sumarnámskeið Háskólans á Akureyri í Landsbyggðum á N4....more27minPlay
July 29, 2020#109 Ásmundur Einar Daðason - félagsmálaráðherraStarfsemi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Sauðárkróki verður efld og verður auglýst eftir starfsfólki á næstunni. Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra er gestur þáttarinns að þessu sinni. Hann segir fyrirhugað að setja á laggirnar nýtt svið innan stofnunarinnar sem sinni sérstaklega brunavörnum og starfsemni slökkviliða í landinu....more29minPlay
July 29, 2020#108 Hólmfríður Sveinsdóttir - doktor í lífvísindum og næringarfræðingur„Já, frumkvöðla- og nýsköpunarstarf er í genum okkar Íslendinga. Við höfum lifað við erfiðar aðstæður í gegnum tíðina og höfum þurft að aðlaga okkur að náttúrunni,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir doktor í lífvísindum og næringarfræðingur.Nýsköpun og frumkvöðlastarf skipar stóran sess i endurreisn efnahags- og atvinnulífsins í kjölfar kórónaveirufaraldursins. Hún ræddi mikilvægi þessara mála í Landsbyggðum á N4....more27minPlay
July 29, 2020#107 Eyþór Ingi Jónsson - fuglaljósmyndirEyþór Ingi Jónsson á Akureyri er einn fremsti fluglaljósmyndari landsins. Safnið hans er gríðarlega stórt. Eyþor Ingi sýndi nokkrar vel valdar myndir í Landsbyggðum og sagði skemmtilegar sögur af hverri mynd. Þáttinn sjálfan má nálgast á N4.is, Facebooksíðunni N4 Sjónvarp og Youtube til þess að sjá myndirnar sem um ræðir....more29minPlay
FAQs about Landsbyggðir:How many episodes does Landsbyggðir have?The podcast currently has 155 episodes available.