Handboltinn okkar

Landsliðið vonbrigði – Getuleysi ÍR-inga -  Næstu leikir


Listen Later

51.þáttur í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange og Arnars Gunnarsson.  Í upphafi þáttar fóru þeir yfir landsleiki Íslands gegn Litháen þar sem þeir voru sammála því að þetta hafi verið léleg frammistaða og hreinlega krefjast að íslenska landsliðið geri betur. Eins vilja þeir sjá liðið spila annað varnarafbrigði því þeir telja að þetta vera fullreynt með þessa vörn.

Svo fóru þeir yfir leikina í 17.umferðinni í Olísdeild karla. Þar sem þeir voru ánægðir með það hvernig Valsmenn svöruðu eftir tapið gegn Þór á dögunum og leikmenn liðsins sýndu sitt rétta andlit. Þá voru þeir ekki eins ánægðir með frammistöðu Þórsara gegn Haukum þar sem leikmenn liðsins voru eins og byrjendur í íþróttinni á tímabili.

Að lokum fóru þeir yfir hvað væri framundan í Olísdeild karla og völdu hvaða leikmenn koma til greina sem BK leikmaður 17.umferðar.  Þeir sem eru tilnefndir að þessu sinni eru, Björgvin Hólmgeirsson (Stjörnunni), Orri Freyr Þorkelsson (Haukum), Martin Nagy (Val), Einar Sverrisson (Selfoss) og Stefán Huldar Stefánsson (Gróttu)

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Handboltinn okkarBy Handboltinn okkar