Lélega Fantasy Podcastið

Lélega Fantasy Podcastið

By Útvarp 101ComedySports
Download on the App Store

Lélega Fantasy Podcastið episodes

  • Gameweek 36 - Að kúka í sturtu

    Þeir eru komnir aftur. Þrír lélegustu Fantasy spilarar landisins. En það eru stór tíðindi. Strákarnir sem enginn trúði á eru að vinna leikinn. G. Fel eða eins og við köllum hann Playitsafe KÓNGURINN er í topp 50 á íslandi. Mun hann halda því? Hvernig fer hann að því? Allt þetta og ekkert það mikið meira í þætti vikunnar.


    Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    48 min
  • Gameweek 33 - Strákurinn sem vildi aldrei eiga afmæli

    Strákarnir halda áfram á lokametrunum. Eftir niðurlægjandi spuurningakeppni þá reyna strákarnir að halda andliti sem fótboltasérfræðingar landsins. Geinar kemur seint, því Geinar kemur alltaf seint. Einu sinni ætlaði Geinar að fara í bíó klukkan 8 en endað með að fara í sund kl 7 því hann gleymdi hvað hann var að fara að gera. Algjör Geinar sko. Núna var hann á einhverjum "fundi." Ekki satt. Líklega sofandi. Hann sefur MJÖG mikið. Sérstaklega á daginn. Allt þetta og svo miklu fleira í Lélega Fantasy Podcastinu.


    Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    1 hr 15 min
  • Gameweek 32 - Heimskustu menn í heimi

    Sko.. í þessum þætti eru eiginlega engin ráð í Fantasy, eiginlega engar góðar pælingar um fótbolta og spurningakeppni sem okkur langar eiginlega bara að enginn heyri. Það eru greinilega engin takmörk fyrir því hversu lítið um fótbolta tveir Guðmundar geta vitað. Ef þú veist mikið um fótbolta og hatar þegar fólk veit lítið um fótbolta, ekki hlusta á síðasta hlutann í þessum þætti. Hlustunin verður bara of sársaukafull. 


    Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    1 hr 4 min
  • Gameweek 31 - Villi Hneta

    Villi Neto er gestur þáttarins þessa vikuna. Fjögurra leikja blank gameweek að baki og margir héldu að þeir hefðu náð slæmum árangri en fáir geta væntanlega toppað hræðilegan árangur Villa sem fékk heil 8 stig í umferðinni. Umræður um portúgalska leikmenn og hvað nöfnin þeirra þýða, Eurovision hornið er að sjálfsögðu á sínum stað og líklega eitt versta lag sem búið hefur verið til í þessum þáttum.


    Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    1 hr 8 min
  • Gameweek 29 - Foreldrafrí 2 - Dorothy snýr aftur

    Það er enginn forráðamaður (Gummi) í stúdíóinu í dag og börnin leika lausum hala. Þeir vita eiginlega ekki hver neinn leikmaður er og kunna ekki að bera nöfnin þeirra fram, en hey, þetta er ekki GÓÐA fantasy podcastið er það?? 


    Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    49 min
  • Gameweek 28 - Ellefu Pálmar með aflitað hár

    GJAFALEIKUR HÉR FYRIR NEÐAN. 


    SÁ FYRSTI SEM LES ÞENNAN TEXTA OG SENDIR OKKUR SKILABOÐ Á INSTAGRAM FÆR LAG. VIÐ ERUM BÚNIR AÐ VERA MEÐ ÞENNAN LEIK Í NOKKRAR VIKUR OG ENGINN HEFUR BEÐIÐ OKKUR UM LAG. SEM ÞÝÐIR ÞAÐ AÐ ENGINN LES ÞENNAN TEXTA.


    Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    1 hr 1 min
  • Gameweek 25 - Fantabrögð crossover!!!

    CROSSOVER EPISODE!!! Já báturinn hjá okkar mönnum er mannaður en stundum verður maður að hoppa yfir í annan bát og manna hann. Því Lélega fantasy podkastið fór í vettvangsferð yfir í Fantabrögð og fóru yfir málin. Strákarnir ræða hver er hvað í hverju podcasti og svo segir Pálmi mjög kúl sögu um að hann hafi verið eins og aðalsöguhetjan i Good Will Hunting í rock ‘n roll pub quiz-i þar sem hann vann næstum því þrátt fyrir það að vera EINN í liði. OG AFTUR EF EINHVER ER AÐ LESA ÞENNAN TEXSTA MÁ SÁ HINN SAMI BIÐJA UM LAG ÞVÍ ENGINN LES ÞETTA. En já fysti sem sendir skilaboð fær lag. En já þetta og svo miklu fleira i þætti vikunnar


    Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    1 hr 10 min
  • Gameweek 24 - Lélega eftirhermupodcastið
    Hvenær er næsti leikur? Er þetta tvöföld umferð eða blank gameweek hjá Tottenham mönnum? Bíddu hvenær var eiginlega síðasta umferð? Já strákarnir eru ruglaðir í öllum hamagangnum sem er í gangi. Þeir vita ekkert og eru á barmi uppgjafar. En þá snúa þeir sér að því sem þeir eru bestir í, að vera lélegir í Fantasy. Þeir henda í nokkrar eftirhermur, Gummi virðist vera nálægt því að slá eitt virtasta metið í lélega fantasy podcastinu og Martial, hvað verður um Martial?
    Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
    53 min
  • Gameweek 22 - Kalkúnn í einangrun

    Ókei, sko. Fantasy er bara ekki skemmtilegt lengur. Endalausar frestanir og eitthvað rugl. En hér í Lélega Fantasy Podcastinu höfum við skyldum að gegna og hér er þáttur. Extra stuttur þáttur með extra lélegum ráðum. Phil Jones hornið lítur dagsins ljós í fyrsta skiptið og Pálmi segir frá masterplaninu sínu að taka -4 til að kaupa Benrahma rétt áður en hann hóf leik á AFCON. 


    Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    37 min
  • Gameweek 20/21 - Pósturinn Pálmi

    Strákarnir koma aftur endurnærðir eftir stutt jólafrí. Það er overtime baby. Pálmi segir frá ævintýrum sínum á pósthúsinu og Gummi reynir að fara yfir tvær umferðir í einum þætti. Geinar er fjarri góðu gamni því, í alvöru les einhver þennan texta, ég trúi því ekki, ef þið eruð ennþá að lesa sendið okkur random broskall á instagramið okkar. Allt þetta og svo miklu fleira í þætti vikunnar.


    Fylgdu okkur á Instagram og Twitter (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    1 hr 10 min

About Lélega Fantasy Podcastið

From the publisher's feed

Þrír vinir hafa gríðarlega ástríðu fyrir Fantasy Premier League en eru samt ekkert sérstaklega góðir í leiknum. Þeir láta þó ekki vankunnáttu stoppa sig og bjóða þér að hlusta á léleg ráð og lélegar pælingar um FPL í hverri viku.