Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Tölvuleikjablöndun, sundlaugar og Queens of the Stone Age
    Tölvunördar leika sér nú að því sameina tvo ólíka tölvuleiki með nýrri tækni. Aðferðin felst í að afbyggja leikina (e. reverse engineer) og byggja þá svo upp aftur sem einn leik. Þetta þótti áður óhugsandi en með tilkomu gervigreindar getur hver sem er gert tilraunir heiman frá. Ljóst að þessi tækni getur afbyggt ýmis forrit og komið þeim upp annars staðar með breytingum. Nú hefur opnast fyrir möguleika sem ekki var fyrirséður.
    Við fáum Gunnar Arnar Sigmundsson, netöryggissérfræðing, til að ræða málið við okkur.
    Birgitta Björg færir okkur sinn síðasta pistil um einkarýmið. Hún hefur í pistlaröð sinni fjallað um bíla, farsíma og heyrnartól en snýr sér nú að sundlaugum.
    Á laugardaginn fara fram stórtónleikar Queens of The Stone Age í Laugardalshöll. Löngu uppselt er á tónleikana enda er sveitin eitt vinsælasta rokkband síðari ára. Lestin ræddi við adáanda hljómsveitarinnar Daða Jónsson.
    55 min
  • Mótmæli, Primetime og óþarft mannkyn
    Z-kynslóðin mótmælir nú í Evrópu eftir bylgju mótmæla ungs fólks víða um heim á undanförnum árum. Það var í september sem mótmæli nemenda gegn lélegum aðbúnaði í skóla sínum í Suðaustur-Frakklandi hröttu af stað mótmælahreyfingu menntaskólanema í landinu. Mótmælin hafa breiðst út og núna um helgina náðu þau hámarki þegar meira en hálf milljón manna fór út á götur Parísar og annarra borga Frakklands. Það kom til harðra átaka og ýmis konar skemmdarverk framin. Í Lestinni dag ætlum við að skoða tákn Z-kynslóðar mótmælendanna í Frakklandi og víðar, sem gjarnan eru fengin úr internetmenningu, og förum yfir önnur einkenni sem mynda rauðan þráð milli mótmæla sem fara fram á mjög ólíkum stöðum.
    Svo er það bíó um sjónvarp. To catch a predator nefndust vinsælir þættir sem sjónvarpsmaðurinn Chris Hansen stýrði í upphafi aldarinnar – en þar var notast við tálbeitu til að koma upp um fullorðna menn sem héldu að þeir væru að fara að hitta einstaklinga undir lögaldri. En hversu langt er í lagi að ganga í gerð sjónvarpsefnis og í nafni skemmtunar? Að þessu er spurt í kvikmyndinni Primetime sem byggir lauslega á sögu Hansen, mynd í leikstjórn hins unga og umtalaða Lance Oppenheim. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina.
    Við fáum pistil frá Hauki Má Helgasyni rithöfundi og heimspekingi um augnablikið þegar gervigreindin leysti einhverjar þekktustu óleystu stærðfræðigáturnar, kláraði stærðfræðina á einu bretti og gerði þar með alla mannlega stærðfræðinga óþarfa.
    56 min
  • Popplagakrufning: Kominn heim + Bestu evrópsku útvarpsþættirnir
    Popplagakrufning Lestarinnar snýr aftur í þætti dagsins. Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónskáld og tónlistarmaður, kryfur lag sem hefur verið mikið spilað að undanförnu, Kominn heim, með Kristmundi Axel og Bubba Morthens. Hljómar lagið eins og AI eða er þetta áhrifarík einlægni?
    Við hringjum svo til Berlínar og forvitnumst um bestu evrópsku útvarspþættina þetta árið en fjömiðlaverðlaunin Prix Europa for fram í síðustu viku. Lóa Björk Björnsdóttir segir okkur meðal annars frá áhrifaríku viðtali við stríðsglæpamann sem starfar við ræstingar og frönskum þáttum um fíkn og fjölskyldulíf.
    56 min
  • Beðið eftir Grand Theft Auto VI
    Grand Theft Auto er einhver vinsælasta, söluhæsta, áhrifamesta og alræmdasta tölvuleikjasería heims. 19. Nóvember kemur GTA6 út, en það eru 13 ár frá siðasta leik og eftirvæntingin því gríðarleg. Sögusvið leiksins er sólríka syndabælið Vice City og verður borgin sem er fyrirmyndin - Miami í Florida - undirlögð auglýsingum og kynningargjörningum næstu vikur. Stikla fyrir leikinn kom út fyrr í dag og hafa milljónir skoðað hann nú þegar. Það eru rétt tæplega 30 ár frá því að fyrsti leikurinn í seríunni kom út á vegum lítils leikjaframleiðanda í Dundee í Skotlandi. Eins og nafn leiksins gefur til kynna, “stórfelldur bílaþjófnaður” fengu spilarar færi á að leika smákrimma og framkvæma hin ýmsu glæpaverkefni, en einnig flakka frjálsir umi í umfangsmiklum og opnum leikjaheimi.
    Við ræðum við tölvuleikjafræðing um seríuna og spennuna eftir GTA6, einn af höfundum fyrsta GTA leiksins, og fáum sögur og minningar frá fjölbreyttum hópi fólks.
    52 min
  • Digger og einkarými farsímans
    Í Lestinni í dag fjöllum við um nýja kvikmynd sem gagnrýnendur geta ekki verið sammála um. Digger, í leikstjórn Alejandros Inárritu, fjallar um olíujöfurinn Digger Rockwell, sem leikinn er af Tom Cruise. Þrátt fyrir stórleikara og gríðarlegt fjármagn gekk opnunarhelgin vægast sagt illa en Björn Þór Vilhjálmsson, dósent í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands er ekki sama sinnis.
    Myndin er þess eðlis að erfitt er að ræða hana án þess að spilla söguþræðinum og því setjum við viðvörun á umfjöllun okkar í dag, vilji hlustendur láta koma sér á óvart í bíó.
    Rithöfundurinn og skáldið Birgitta Björg Guðmarsdóttir flytur nýjan pistil í pistlaröð sinni um einkarýmið. Að þessu sinni er það farsíminn sem er henni hugleikinn.
    56 min
  • Bottarnir sprengdir, Widows bay, Gervigreind til góðs
    Sjónvarpsþættirnir Widows Bay fjalla um illa vætti sem ásækja heimamenn og túrista í samnefndum smábæ. Þetta er grín-hryllingur sem hefur sankað að sér verðlaunum að undanförnu. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi rýnir í þættina.
    Við fáum svo pistil frá Hauki Má Helgasyni rithöfundi og heimspekingi. Að þessu sinni gluggar hann í nýrri skýrslu sem nefnist hinu upplífgandi titli: “Gervigreind til góðs” en hana skrifaði starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar. Norsk bókhilla, Project panama og frelsisbarátta málma koma meðal annars við sögu í pistli Hauks Más.
    En við ætlum hins vegar að byrja á fréttum dagsins.
    Í gær bárust fregnir af því að enn eitt rússneskt gagnaver hefði verið sprengt í loft upp af Úkraínumönnum - það þriðja á einni viku. Gagnaverið var í eigu Yandex sem er eitt stærsta rússenska tæknifyrirtækið, og heldur meðal annars út vinsælli leitarvél og ýmiskonar þjónustu sem lá niðri í kjölfarið. En það sem hefur vakið meira athygli er sú staðhæfing Zelensky Úkraínuforseta að vegna árásarinnar hafi virkni rússneskra vef-botta sem dreifa áróðri og misvísandi upplýsingum á samfélgsmiðlum minnkað til muna. En hvað er hæft í því?
    56 min
  • Költmyndin Hlemmur og verðlaunasaga eftir gervigreind
    Grunur leikur á því að verðlaunasaga hinna afrísku smásagnasamkeppni Caine hafi verið unnin af gervigreind. Lestin kannaði málið og leitaði upplýsinga hjá Forlaginu um það hvernig þau leggja mat á sögur, myndefni og ljóð sem þeim berast í samkeppnum. Þá kemur gömul smásaga eftir Roald Dahl við sögu auk þess sem við ræðum önnur vandræðaleg mál í tengslum við höfunda sem villa á sér heimildir, bæði hér heima og utanlands.
    Við hringjum svo til Berlínar og ræðum við Ólaf Sveinsson um íslensku költ heimildarmyndina Hlemmur sem kom út árið 2002. Aðalpersónurnar eru strætóbílstjóri sem er að byggja sig upp eftir áratugalanga neyslu, menn sem glíma við andleg veikind, trúlofað par með þroskahömlun, og tveir drykkjumenn sem ýmist gista fangageymslur eða sofa á götunni. Allt er þetta fólk sem venur komur sínar á Hlemm og dvelur þar langdvölum af ýmsum ástæðum. Myndin verður sýnd í Bíó Paradís síðar í mánuðinum.
    56 min
  • Heimskautaleiðangur listakvenna, vinnustofa Tómasar Jóns, Komum út í mínús
    Í nóvember í fyrra fóru tvær íslenskar listakonur með heimskautarannsóknarskipinu Kronprins Haakon í leiðangur á norðurheimskautið að rannsaka hafsbotninn. Þær fylgdust með skipinu brjótast í gegnum heimskautaísinn, vélmennið Ægi 6000 kafa niður á 4 kílómetra dýpi, og áþreifanlegri spennu hagsmuna vísindamanna og olíuleitarmanna. Leiðangurinn var hluti af Extremes verkefninu sem verður kynnt frekar í Norræna húsinu um helgina. Þorgerður Ólafsdóttir og Hekla Dögg Jónsdóttir segja frá í Lestinni í dag.
    Sviðslistahátíðin Komum út í mínus fer fram í annað sinn á laugardaginn. Hátíðin mun standa yfir í 12 klukkustundir þar sem gestum verður boðið upp á ýmis konar sviðslistir, dansnámskeið, uppistand og gufubað svo eitthvað sé nefnt. Við forvitnumst um hátíðina.
    Katrín Helga Ólafsdóttir kíkir svo á vinnustofu hjá tónlistarmanninum Tómasi Jónssyni, en hann á gríðarstórt hljómborðasafn. Þetta er önnur vinnustofuheimsókn Katrínar í vetur.
    56 min
  • AI barnabækur, Sundruð tilvera innflytjanda, bílar sem einkarými
    Teiknimyndin Sundruð eða Hold it together hlaut nú helgina verðlaun sem besta íslenska stuttmyndin á RIFF. Myndin fjallar um sundferðir ungs innflytjanda á Íslandi og þörfina fyrir félagsleg tengsl. Við ræðum við höfund myndarinnar, hina fransk-malísku Fanny Sissoko, sem gæti ekki búið hér klakanum ef ekki væri fyrir sundlaugarnar.
    Undanfarnar vikur hafa einkarými verið Birgittu Björg Guðmarsdóttur verið hugleikin í pistlum sínum. Að þessu sinni eru það einka- og sameiginleg rými í umferðinni: bílar, strætó og reiðhjól.
    Gervigreind er farin að verða meira áberandi í barnaefni. Lestin kíkti í bókabúð ásamt myndhöfundi þar sem við skoðuðum barnabækur með þetta í huga. Þar vöknuðu ýmsar spurningar, meðal annars um höfundarétt, þroska barna og stétt myndhöfunda. Þá spjölluðum við við bóksala sem íhugar að krefja útgefendur um að staðfesta skriflega að gervigreind hafi ekki verið notuð í þeim verkum sem hann hyggst selja. Þá skoðum við nýja bók Skoppu og Skrítlu þar sem meintur myndhöfundur reyndist ekki vera raunveruleg manneskja. Útgefendur sem ráða erlenda aðila af netinu til að gera myndefni fyrir sig þurfa greinilega að hafa varann á.
    57 min
  • Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík
    “Ef við útvistum viti okkar til véla og sannfærum þær um að útrýma þær þó ekki, þá mun okkur ekkert skorta.” Mögulega erum við á leið inn í heim án skorts. En hvað þýðir það fyrir mannlega tilveru og samfélagið? Haukur Már Helgason rithöfundur flytur okkur sinn fyrsta pistl í Lestinni þetta haustið, hann ætlar að hugsa upphátt um tækniþróunina sem stendur nú yfir, og í dag er það skorturinn sem er viðfangsefnið - eða öllu heldur skortur á skorti.
    Við förum líka í heimsókn í Marshallhúsið, nánar tiltekið í Þulu Gallerí, sem er þar til húsa. Weaving Cosmologies – dreymendur og draumgjafar er heiti samsýningar 5 listamanna þar sem þeir velta fyrir sér trúarlegum heimsmyndunarkenningum, líkömnuðum nálgunum, skáldskap og sögulegum rannsóknum í verkum sínum, líkt og segir í sýningartexta.
    Ásdís Þula, eigandi gallerísins fór með okkur um sýninguna.
    Og svo fáum við okkar þá Rafael og Carlos, sem eru báðir frá Mexíkó. Á dagvinnutíma starfa þeir sem arkitekt og kokkur en á kvöldin spila þeir í reykvísku cumbia-hljómsveitinni La Dimenson og haldi úti suðuramerískum tónlistarkvöldum í borginni undir merkjum Kumbíavíkur. Nú um helgina halda þeir í annað skipti árlega tónlistarhátíð, með heimildamyndum, ljósmyndasýningu, skífuþeytingum og auðvitað lifandi tónlist.
    55 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners