Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Glæstar vonir Siennu Spiro og Mulholland Drive 25 árum síðar
    Í Lestinni í dag kryfjum við nýlegan slagara Sienna Spiro, tilfinningaþrungnu ballöðuna Great Expectations. Poppfræðingur Lestarinnar, Friðrik Margrétar-Guðmundsson fer með okkur í saumana á hráum tilfinningum og hljóðheimi bresku tónlistarkonunnar. Við hugum líka að kvikmyndum og hvernig áhorfendur skynja oft meira en þeir endilega skilja . Í næstu viku leiðir Ása Helga Hjörleifsdóttir, kvikmyndagerðarkona og dósent við kvikmyndalistadeild Listaháskóla Íslands, námskeið um kvikmyndina Mulholland Drive, hjá Opna Listaháskólanum. Ása Helga leit við í hljóðstofu og ræddi um þetta sköpunarverk David Lynch út frá ýmsum hliðum.
    55 min
  • You Can See Everyting, 100% atvinnuleysi, Grammy tilnefningar Bergs
    Heimildarmyndin You Can See Everything eftir Nathan Fielder og Lance Oppenheim er frumsýnd í vikunni. Myndin fjallar um fyrrum vonarstjörnu í nýsköpunargeiranum, Elizabeth Holmes, sem árið 2022 var sakfelld fyrir stórtæk fjársvik. Saga Holmes hefur farið víða í hlaðvörpum, sjónvarpsþáttaseríum og ógrynni fjölmiðlaumfjallana. Það er þó ekki síst leikstjórinn Nathan Fielder sem trekkir að, og einkennandi frásagnarháttur hans sem hann hefur þróað síðustu ár í heimildarmyndaþáttaröðum eins og Nathan For You og The Rehearsal. Myndin fjallar um síðustu daga Holmes með fjölskyldu sinni áður en hún þarf að afplána 11 ára fangelsdóm. Mikil eftirvænting ríkir fyrir myndinni og lestarstjórar fjalla um höfunda og viðfangsefni myndarinnar, og víðsjárvert samand þeirra á milli. Án þess að spilla neinu!
    Haukur Már Helgason flytur okkur pistil um blikur á lofti á atvinnumarkaði í kjölfar örar þróunar í gervigreind. Hálfgerðar heimsendaspár úr kísildal má segja að séu reglulegur viðburður í dag og Haukur er með hugann við forsendurnar fyrir því hvernig tæknifrömuðir úttala sig um framtíðina.
    Loks heyrum við í upptökustjóranum Bergi Þórissyni. Hann er meðal þeirra Íslendinga sem hlutu tilnefndingu til Grammy verðlauna í vikunni. Í flokknum Best Engineered Album, Non Classical komst á lista lag Rosalíu, Yves Tumor og Bjarkar, Berghain. Í tilnefningunni voru heil 17 nöfn listuð upp, og þar á meðal nafn Bergs. Sölvi hringdi í Berg og forvitnaðist um upptökustjórn, alþjóðlegt samstarf í tónlistargeiranum og hvort hann ætli ekki að skella sér til LA á hátíðina í febrúar.
    55 min
  • Geta plöntur verið menningararfur? og Lóaboratoríum heimsókn
    Katrín Helga Ólafsdóttir hefur verið að sækja listamenn heim í þeirra vinnurými. Að þessu sinni fer hún niður í miðbæ Reykjavíkur, fyrir ofan pizzastaðinn Hornið á vinnustofu Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur.
    Geta fræ verið ættargripir og geta plöntur verið menningararfur? Í nýútkomnu Tímariti Máls og menningar birtist grein eftir Vilborgu Bjarkadóttur, doktorsnema í þjóðfræði. Í henni ber hún saman fræbankann á Svalbarða og Grasagarð Reykjavíkur. Við ræðum þetta, rófur og tómata við Vilborgu í þætti dagsins.
    56 min
  • Kúreka-Njála, samsæriskenningar fyrri tíma, stefnumót við róbotahund
    Hvað gerist ef þú færir Njálu yfir á nútímaíslensku? Og skreytir hana með kúrekamyndum? Aftan á nýrri útgáfu Jónasar Björns á Brennu Njálsssögu stendur 'Lestur er bestur' og það er von hans að með því að gera Njálu aðgengilegri muni fleiri lesa hana, sérstaklega fleira ungt fólk. Sölvi Halldórsson hittir Jónas Björn Pálsson, listamann, á vinnustofu hans úti á Granda.
    Við fáum pistil frá París, Einar Már Jónsson, sagnfræðingur og rithöfundur er með hugan við samsæriskenningar fyrri tíma.
    Gæti þér þótt vænt um lítinn vélmennahund? Finnska listakollektívið Wauhaus var með verk á Reykjavik Dance Festival í ár sem nefnist The Companion. Hátíðin fór fram um helgina og við ræðum við þá Jussi og Jarko um samkennd, manngervingu og kúrulegan vélmennahund.
    56 min
  • Pólitískir einkennisbúningar og mennskustimpill á listaverkum
    Svansmerkið, Fair Trade, Blómið, lífræn vottun, Skráargatið, Íslensk framleiðsla. Slíkir gæðastimplar eru vel þekktir á neysluvörum sem við kaupum í verslunum, En nú er að verða til markaður fyrir slík upprunavottorð fyrir listaverk, stimplar sem segja okkur að verkin séu samin af mannfólki en ekki spunagreindarforritum. Við skoðum málið.
    Hverjir voru grástakkar og blámenn? Á millistríðsárunum var deilt um hvort banna ætti pólitíska einkennisbúninga hér á Íslandi. Á Norðurlöndunum var það raunin, en hér á landi gekk bannið ekki í gegn. Pontus Järvstad, sagnfræðingur, rekur þessa sögu í þættinum,
    55 min
  • Afneitun í sparifötum? Iceguys-myndin, frjálsar upplýsingar
    Aðeins 1% af 266 fréttaskýringum Kastljóss á þessu ári fjölluðu um áhrif loftslagsbreytinga á íslenskt samfélag og aðeins 0,8% um loftslagslausnir. Þetta kemur fram í nýtti úttekt í tímaritinu Umskipti sem Jean-Remi Chareyre heldur úti. Eru fjölmiðlar hættir að fjalla um loftslagsmál og af hverju? Við ræðum málið við Jean-Remi og Kjartan Kjartansson, blaðamann á Vísi sem hefur fjallað ítarlega um loftslagsmál undanfarin 15 ár.
    Við ræðum svo um höfundarétt, frjálsar upplýsingar og gervigreind við Önnu Tumadóttur framkvæmdastjóra Creative Commons sem er stödd á landinu þessa dagna.
    Iceguys - The movie nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir. Strákasveitin vinsæla heldur til Bandaríkjanna til að hita upp fyrir Backstreet Boys, eða svo halda þeir. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina fyrir Lestina.
    56 min
  • Jared Kushner, draumar vitvélanna, neyðarvistir millenial-feðra
    Verum viðbúin nefnist bæklingur sem almannavarnir senda frá sér á dögunum, með ráðleggingum um hvernig sé best að undirbúa sig fyrir alvarlega atburði eða rof á grunnþjónustu. Nýlega birtist bresk könnun sem sýndi að feður af þúsaldarkynslóðinni væru líklegastir til að fara alla leið í slíkum undirbúningi, eða heimsendapreppi. Kristján ræðir við annan millenial föður, tónlistarmanninn Helga Sæmund, um neyðarvistir og hamfaravitund.
    Draumar manna og véla eru viðfangsefni Hauks Más Helgasonar í pistli vikunna. Charles Darwin, langir gíraffahálsar og sjálfsmynd mállíkana koma meðal anars við sögu.
    Tengdasonur Bandaríkjaforseta, Jared Kushner, hefur verið nokkuð til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum undanfarna mánuði eftir að bók og heimildarmynd um hann komu út. Hann hefur meðal annars fengið það hlutverk að stilla til friðar á átakasvæðum, en nýtir hins vegar tækifærin sem gefast til að græða á tá og fingri.
    57 min
  • Airwaves-uppgjör, Fela Kuti hlaðvarp, hvaða lag fær þig til að dansa?
    Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, fer yfir það sem bar hæst á Iceland Airwaves-hátíðinni í ár. Tónleikar með íslensku hljómsveitinni Scam og breski rapparinn The Streets í Eldborgarsal Hörpu eru þar á meðal.
    Svo förum við af einni hátíð yfir á aðra. Þann 11. nóvember hefst sviðslistahátíðin Reykjavík Dance Festival. Að því tilefni heyrum við frá gangandi vegfarendum í Reykjavík hvaða lag fær þau til að dansa. Innslagið er unnið í samstarfi við Dagmar Lilju Stefánsdóttur sem verður með í Radio Bounce, útvarpsstöð sem fer í loftið á laugardaginn á FM 106.1 og er hluti af Reykjavík Dance Festival.
    Kristján Guðjónsson segir frá hlaðvarpsþáttum sem fjalla um nígeríska tónlistarmanninn Fela Kuti, en hlaðvarpsþættirnir hafa vakið verskuldaða athygli. Þar er tónlist, sögu og pólitík fléttað saman á frábæran hátt.
    1 hr 1 min
  • Grasrótartímaritið Heyrðu, Airwaves pepp, ást og heimspeki
    Á dögunum kom út grasrótartímaritið Heyrðu í fyrsta sinn. Umfjöllunarefni tímaritsins er tónlist og hefur ritstjórn blaðsíns það að aðalmarkmiði að taka tónlist alvarlega. Ish Sveinsson Houle og Agnar Freyr Stefánsson segja frá.
    Við kíkjum líka í röðina á Airwaves, þar sem fólk er komið að sækja armböndin sín, og fáum að heyra hvaða tónleikum það er spenntast fyrir.
    En svo er það ástin. Hvernig fjallar heimspekin um ástina? Emma Björg Eyjólfsdóttir ritstýrir tímaritinu Hugur, tímarit Félags áhugamanna um heimspeki, og að þessu sinni er ritið tileinkað ástinni. Við ræðum Emmu Goldman, Ethan Hawke og Kant.
    59 min
  • Askur Teits, gervigreinar fjölmiðla, skemmdarverk í Feneyjum
    Teitur Magnússon heimsækir Lestina og spjallar um nýja breiðskífu, Askur, sem kom út í september. Teitur hefur verið í eðalsveitum eins og Ojba Rasta, Fallegum mönnum og Slugs en hefur nú gefið út fjórar breiðskífur með þjóðlagaskotinni söngvaskáldatónlist.
    Gervigrein.is nefnist vefsíða sem skoðar fréttir sem birtast á íslenskum fjölmiðlum og segir notendum hversu líklegt sé að fréttin sé skrifuð af eða með aðstoð gervigreindar. Við ræðum við manninn á bakvið síðuna, Henrý Þór Jónsson.
    Við hringjum til Ítalíu og heyrum um skemmdarverk á listaverki í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum. Eyðileggingin gat hins vegar bara af sér umbreytingu á verkinu. Við spjöllum við Ástu Fanneyju Sigurðardóttur um vandræði sem verða að lukku.
    56 min