Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Boltamömmur, bútasaumsljóð og þorrablót
    Brjálaðar boltamömmur á hliðarlínunni á leik í fimmta flokki kvenna rífast í dómaranum og lenda í átökum sín á milli. Þessa mynd kannast flestir við sem tengjast fótboltahreyfingunni á einhvern hátt. Og þetta er einn þráðurinn í nýjum íslenskum gamanþáttum Boltamömmur sem eru sýndir á Sjónvarpi Símans. Þættirnir eru hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur, leikkonu og handritshöfundar, og segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótboltans. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.
    Við skoðum líka niðurstöður nýrrar rannsóknar sem fjallar um endalok kvikmynda. Er öld hinna gleðilegu Hollywood-endalokanna liðin?
    Samljóða er ritvinnslusmiðja sem fer fram á hverjum miðvikudegi á Borgarbókasafninu í Grófinni. Karólína Rós Ólafsdóttir, skáld, stýrir þar vinnustofum sem hún kallar Bútasaumsljóð. Þar skrifa þátttakendur texta út frá orðum sem þeir elska, orðum sem þeir þola ekki eða orðum sem vekja áhuga þeirra á einhvern annan hátt. Þátttakendur með íslensku sem annað mál eru hvattir til að taka þátt, enda kemur ýmislegt í ljós þegar gests augu líta á tungumálið okkar.
    Á föstudaginn sendir Karólína líka frá sér ljóðabókina Lífskán, ljóðsögu um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Karólína hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir handritið að bókinni og nú kemur það út hjá Benedikt.
    Við heyrum svo um viðskiptamanninn sem átti þá frábæru hugmynd að fá Íslendinga til að skemmta sér í janúarmánuði með því að borða skemmdan mat, og bjó þar með til hefð sem þúsundir Íslendinga elska að sameinast um enn þann dag í dag. Björn Teitsson fjallar um menningararf og mat í fjórða og síðasta pistli sínum í lestinni þetta haustið: Þorramatur, Kentucky Fried, Pad Thai, og Kebabpizza koma meðal annars við sögu.
    58 min
  • Meme í popplögum, fjallaspenna á RIFF, aðgengileiki á internetinu,
    Væntanlegt dómsmál vekur upp spurningar um höfundarétt og persónuvernd. Söngvaranum Elvari hefur verið stefnt fyrir að nota hljóð úr vinsælu myndbandi þar sem tvær stelpur rífast harkalega um mann sem heitir Elvar. Önnur þeirra leitar nú réttar síns, en hún er ekki sátt við að rödd sín hljómi í laginu. Við skoðum fleiri svipuð dæmi, bæði úr íslenskri og erlendri tónlist.
    Afdrifarík ferð John Snorra Sigurjónssonar og fleiri fjallagarpa á tind K2 veturinn 2021 er til umfjöllunar í opnunarmynd RIFF í ár. Við rýnum í heimildarmyndina The Last First: Winter K2. Við rýnum einnig í La Pieta, Yön lapsi (eða Barn Næturinnar) og Dissociated Me.
    Við lifum stóran hluta tilveru okkar í tækjum og stafrænum rýmum, en mörg þeirra er ekki sérstaklega aðgengileg fólki með fatlanir. Aðgengileiki í hönnun hins stafræna heims skiptir æ meira máli. Við ræðum þetta og fleira við Irene Pereyra, einn stofnenda hönnunarstofunnar Anton & Irene, sem er hér á landi vegna alþjóðlegu hönnunarráðstefnunnar AGI Open sem fram fer í lok vikunnar. Spunagreindarpizzu-app og mikilvægi kjarnorku koma einnig við sögu.
    56 min
  • Gráðugir algóritmar, vinnustofuheimsókn og einkarými
    Í New York hefur sendlafyrirtækið DoorDash gert sátt við borgaryfirvöld eftir að upp komst að sendlar á þeirra vegum hafi ekki fengið greitt sem skyldi vegna algrímis sem sumir segja gallað en aðrir óheiðarlegt. Við ræðum við Sigmund Halldórsson, sérfræðing hjá VR, um algrími á íslenskum vinnumarkaði.
    Katrín Helga Ólafsdóttir kíkti í heimsókn á vinnustofu tónlistarkonunnar Sóleyjar Stefánsdóttur í Hafnarhúsinu.
    Nýr pistlahöfundur, rithöfundurinn Birgitta Björg Guðmarsdóttir, fjallar um einkarými í lok þáttar.
    55 min
  • Njálsbrenna í myndasögu, veitingastaðir á brauðfótum, RIFF
    Nú á dögunum kom út á bók fyrsta íslenska myndasagnaserían. En það var myndasaga byggð á Njálssögu - fjallaði um njálsbrennu og hefnd Kára. Myndirnar gerði teiknarinn Halldór Pétursson og birtust þær vikulega í Lesbók Barnanna, fylgiriti morgunblaðsins árin 1959 og 60. En nú loksins er hefur þetta brautryðjendaverk verið tekið saman og gefið út á bók. Við ræðum við ritstjórana Jón Karl Helgason og Bjarni Hinriksson.
    Saga veitingarekstrar á Íslandi er fremur stutt og kannski umfram allt saga af fallvaltleika og ótryggu rekstrarumhverfi. Björn Teitsson heldur áfram að flytja okkur pistla um matarmenningu. Og að þessu sinni fjallar hann um veitingahúsið - athyglisverðar orðsifjar, Meg Ryan og kjúlingur í körfu koma meðal annars við sögu í pistlinum.
    Við byrjum á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst á morgun. Við flettum í bæklingnum og ræðum meðal annars Club Kid, Amicar, The Siege of Paradise svo einhverjar myndir séu nefndar.
    56 min
  • Grasrótin í húsnæðiskrísu
    Á undanförnum vikum höfum við frétt af stöðugt fleiri samfélagsverkefnum og skapandi rýmum í Reykajvíkurborg sem er verið að loka.
    Víðsvegar um borgina hefur iðnaðarhúsnæði sem er í einhverskonar biðstöðu, byggingar sem er óljóst hvernig á að nýta í framtíðinni, verið leigt út undanfarin ár til listamanna og ýmiskonar samfélagsverkefna.
    Í Gufunesi, í Skerjafirði, á Sævarhöfða og á Bergþórugötu. En nú hefur fjölmörgum slíkum samningum verið sagt upp og hin ýmsu grasrótarverkefni þurfa að finna sér nýtt húsnæði ef þau eiga að tryggja sér framhaldslíf.
    Í þætti dagsins ætlum við að flakka um grasrótina í Reykjavík, flökkum milli listarýma og samfélagsverkefna sem horfa nú fram á óvissa framtíð.
    52 min
  • Mónókúltúr og Svanasöngur Selinu
    Á undanförnum árum höfum við tekið eftir því að skortur er á menningarefni sem öll þjóðin sameinast um. Maður mætir ekki á kaffistofuna á þriðjudögum til að ræða nýjasta þáttinn af Lost, fjölskyldan safnast ekki saman á föstudögum til að horfa á Idol stjörnuleit eða Á tali með Hemma Gunn.
    Er menningin að glata möguleikanum á að sameina heiminn, sameina Íslendinga, sameina stóra hópa ólíks fólks? Er mónókúltúrinn dauður?
    Til þess að ræða þetta höfum við fengið til okkar þau Nínu Hjálmarsdóttur, lektor við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands, Ísabellu Lenu Borgarsdóttur (bellamix69), plötusnúð, og Gísla Martein Baldursson, umsjónarmann Vikunnar.
    Í spilara RÚV er nú að finna skandinavíska þáttaröð sem slegið hefur í gegn í Skandinavíu. Upp úr aldamótum hóf utangarðs-unglingur Í Norður-Noregi, Selina, að blogga. Áður en hún vissi af hafði hún öðlast landsfrægð og var orðin að umdeildum áhrifavaldi. Fylgst er með Selinu
    Rekviem for Selina, eða Svanasöngur Selinu er umfjöllunarefni Brynju Hjálmsdóttu, sjónvarpsgagnrýnanda að þessu sinni.
    57 min