Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Lísandra Týra, Haukur Már, Suskin-töskur
    Í þætti dagsins förum við í göngutúr með Lísöndru Týru Jónsdóttur, danshöfundi og gjörningalistakonu. Hún er að undirbúa frumsýningu morgundagsins, á dansverkinu Op.5, sem verður sýnt á Dansverkstæðinu við Hjarðarhaga. Við ræðum við hana um piss, skólagöngu á meginlandinu og samband hennar við líkamann.
    Haukur Már Helgason, rithöfundur, gæti brugðið hlustendum í dag. Hann heldur áfram að hugsa upphátt um tækniþróunina sem á sér stað í samtímanum.
    Fríða Þorkelsdóttir ræðir við fatahönnuðina Thelmu Rut Gunnarsdóttur og Karítas Spano, um fatamerkið þeirra, Suskin.
    57 min
  • Z-kynslóðar mótmæli í Berlín, Petal Ariönu Grande krufið
    Við hefjum þáttinn við Brandenborgarhliðið í Berlín þar sem svokölluð Z-kynslóðarmótmæli fóru fram síðastliðinn Laugardag. Mótmælin eru innblásin af mótmælunum í Frakklandi og kröfurnar eru keimlíkar. Ríkisstjórnin á að hætta að skera niður og hætta stríðsrekstri. Lóa Björk ræðir við nokkra fundargesti og skipuleggjendur mótmælanna.
    Popplagið Petal með Ariönu Grande verður krufið með tónlistarmanninum og poppsérfræðingnum Friðriki Margrétar Guðmundssyni.
    Og þar sem Lóa Björk er komin aftur til starfa kveðjum við Fríðu Þorkelsdóttur sem hefur leyst hana af undanfarna mánuði.
    56 min
  • Karamazov-bræðurnir, Fjord og Plat Radio
    Karamazov-bræðurnir er stór bók um stórar spurningar, stórbrotin saga og eitt af stórvirkjum heimsbókmenntanna. Bókin sem er eftir Fjodor Dostojevskí kom upphaflega út árið 1880 og fjallar um þrjá bræður, svallarann Dmítrí, hugsuðinn Ivan og dýrlinginn Aljosha, og morð á föður þeirra. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina úr rússnesku á sínum tíma og nú hefur Illugi Jökulsson lesið bókina inn sem kvöldsögu Ríkisútvarpsins. Við spjöllum við Illuga um hvernig það er að lesa upp svona stórvirki. Þetta eru 1200 útprentaðar blaðsíður, rúmlega 100 lestrar, sem eru 50 klukkutímar í hlustun.
    Fjord eða Fjörður er eldfim og umdeild, margverðlaunuð mynd eftir rúmenska leikstjórann Christian Mungiu. Myndin fjallar um íhaldssama kristna norsk-rúmenska fjölskyldu sem flytur frá Rúmeníu í smábæ í Noregi og lendir þar í átökum við barnaverndaryfirvöld, sem finnst uppeldisaðferðir fjölskyldunnar ótækar. Kolbeinn Rastrick hefur mjög sterkar skoðanir á myndinni.
    Um síðustu helgi fór í loftið ný útvarpsstöð, reyndar ekki alvöru FM-útvarpsstöð heldur Plat-útvarp. Það eru plötuútgáfan Plata og plötusnúðahópurinn Plútó sem standa að Plat Radio sem ætlar að senda út í mynd og hljóði brakandi ferska raftónlist leikna í kjallara við Hlemm. Við fáum til okkar Guðmund Arnalds og Örlyg Arnalds sem standa að stöðinni.
    Við kíkjum líka á nýja útgáfu á Ódysseifskviðu og heyrum tónlist sem mun hljóma á Iceland Airwaves í næstu viku.
    57 min
  • Sannar gervigreindarmyndir og Sauðburður
    Þegar rithöfundur fær ekki listamannalaun eitt árið ákveður hann að ráða sig í Sauðburð. Brátt kemst hann að því að bærinn sem hann hefur ráðið sig á er allt annað en hefðbundinn. Stórir karakterar og margvíslegar pælingar aðkomumanns úr borginni mynda frásögn sem er áleitin og mennsk, en ekki síst spennandi. Hermann Stefánsson ræðir við okkur um sína nýjustu bók, Sauðburð í Lestinni í dag.
    Við pælum svo í myndefni og sannleika á tímum spunagreindar. Ofurhugar í Skjálfandafljóti, Elliði Vignisson, fljúgandi furðuhlutir og bandaríski myndlistarmaðurinn Trevor Paglen koma meðal annars við sögu.
    Og svo er það Airwaves-listamaður dagsins. Að þessu sinni er það 22 ára rappari frá Harlem sem kallar sig Liim.
    54 min
  • Kosningar í Ísrael, kýr framtíðar og íslenskur hljóðgervill
    Í dag ganga Ísraelsmenn að kjörborðinu í fyrsta sinn síðan hryðjuverkaárásir Hamas voru gerðar þann 7. október 2023. Sigurstranglegastir þykja flokkar Netanjahús, sitjandi forsetisráðherra, og miðjuflokkur Gadi Eisenkots, fyrrum yfirmaður í ísraelska hernum. Afar ólíklegt er að annar þessara flokka nái hreinum meirihluta og mögulegt að smærri flokkar ísraelskra araba muni skipta sköpum við stjórnarmyndun. Rafn Ágúst Ragnarsson, blaðamaður á Vísi, kemur til okkar og ræðir stöðuna.
    First Love, Fyrsta ástin, fyrsti hljóðgervillinn frá íslenska fyrirtækinu Love kemur í verslanir síðar í vikunni. Hann hefur verið nokkur ár í smíðum, er framleiddur í Kína, Filippseyjum og á Íslandi og kostar 89.900 krónur. Við forvitnumst um græjuna og fáum tóndæmi hjá Kára Halldórssyni og Markúsi Bjarnasyni stofnendum fyrirtækisins.
    Erum við kýr framtíðar? Haukur Már Helgason veltir fyrir sér þessari spurningu í sínum fjórða pistli um gervigreind og samfélagið. NATO, Palantir og beljur sem skilja ekki peninga koma meðal annars við sögu í pistlinum
    56 min
  • Annað líf Tatjönu, Föðurland, Frakkar mótmæla
    Fyrir helgi kom út platan Líf 2. Tónlistarkonan Tatjana Dís hefur getið sér gott orð á undanförnum árum með hljómsveitunum Digital Ísland og Ex Girls en stígur hér fram í fyrsta sinn sem sóló-artisti. Við tókum stöðuna á Tatjönu.
    Kvikmyndin Vaterland eða Föðurland eftir Pavel Pavlakovski var ein af sigurmyndunum á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hún fylgir eftir rithöfundinum Thomas Mann og dóttur hans Eriku á ferðalagi um klofið Þýskalandi beint í kjölfar seinni heimsstyrjaldar. 82 mínútur, svarthvít og hyldjúp bíómynd. Við fáum Gauta Kristmannsson prófessor í þýðingafræði til að spjalla við okkur um Thomas Mann og Föðurland.
    Við fáum pistil frá Frakklandi. Einar Már Jónsson var á staðnum fyrir tæpum 60 árum þegar stúdentar mótmæltu í París 1968 og nú fylgist hann aftur með mótmælum ungs fólks í landinu. Hann lýsir því hvernig staðan blasir við honum eftir mótmæli helgarinnar.
    57 min
  • Ísraelskir hermenn segja frá stríðsglæpum, Berndsen á vinnustofunni, Hvíta gull Grænlands
    Heimildamyndin NAZA var sýnd í Bíó Paradís í gær. Í myndinni koma fram 24 hermenn úr ísraelska hernum undir nafnleynd og afhjúpa þær aðferðir sem herinn hefur notað í þjóðarmorðinu á Palestínumönnum sem hefur geysað frá hryðjuverkaárás Hamas þann 7. október 2023. Myndin hlaut afar góðar viðtökur á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september en leikstjórar hennar, Yuval Abraham og Rachel Szor, hafa þurft að fara í felur vegna harðra viðbragða samlanda sinna í Ísrael. Við ræðum myndina nánar í þættinum í dag.
    Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen tekur á móti Katrínu Helgu Ólafsdóttur sem hefur í haust heimsótt vinnustofur ýmissa listamanna. Berndsen hefur aðsetur á Hólmaslóð og í stúdíói hans má finna verkfæri, bækur, málverk og ýmsar skemmtilegar græjur sem gera alls konar hljóð.
    Danska heimildarmyndin Osugiak: eða Hvítagull Grænlands fjallar um krýolítnámur sem Danir ráku á vesturströnd Grænlands í meira en 130 ár fram til ársins 1987. Myndin vakti hörð viðbrögð eftir að hún var sýnd í Danska ríkissjónvarpinu í fyrra og var tekin úr sýningum þar auk þess sem fréttastjórinn sem bar ábyrgð á því að myndin var sýnd var rekinn. Bryndís Björnsdóttir og Kristín Loftsdóttir mæta og segja frá myndinni sem verður sýnd í kvöld í Norræna húsinu sem hluti af viðburðinum Frásgnarfullveldi og ritstkoðun.
    55 min
  • Tölvuleikjablöndun, sundlaugar og Queens of the Stone Age
    Tölvunördar leika sér nú að því sameina tvo ólíka tölvuleiki með nýrri tækni. Aðferðin felst í að afbyggja leikina (e. reverse engineer) og byggja þá svo upp aftur sem einn leik. Þetta þótti áður óhugsandi en með tilkomu gervigreindar getur hver sem er gert tilraunir heiman frá. Ljóst að þessi tækni getur afbyggt ýmis forrit og komið þeim upp annars staðar með breytingum. Nú hefur opnast fyrir möguleika sem ekki var fyrirséður.
    Við fáum Guðmund Arnar Sigmundsson, netöryggissérfræðing, til að ræða málið við okkur.
    Birgitta Björg færir okkur sinn síðasta pistil um einkarýmið. Hún hefur í pistlaröð sinni fjallað um bíla, farsíma og heyrnartól en snýr sér nú að sundlaugum.
    Á laugardaginn fara fram stórtónleikar Queens of The Stone Age í Laugardalshöll. Löngu uppselt er á tónleikana enda er sveitin eitt vinsælasta rokkband síðari ára. Lestin ræddi við adáanda hljómsveitarinnar Daða Jónsson.
    55 min
  • Mótmæli, Primetime og óþarft mannkyn
    Z-kynslóðin mótmælir nú í Evrópu eftir bylgju mótmæla ungs fólks víða um heim á undanförnum árum. Það var í september sem mótmæli nemenda gegn lélegum aðbúnaði í skóla sínum í Suðaustur-Frakklandi hröttu af stað mótmælahreyfingu menntaskólanema í landinu. Mótmælin hafa breiðst út og núna um helgina náðu þau hámarki þegar meira en hálf milljón manna fór út á götur Parísar og annarra borga Frakklands. Það kom til harðra átaka og ýmis konar skemmdarverk framin. Í Lestinni dag ætlum við að skoða tákn Z-kynslóðar mótmælendanna í Frakklandi og víðar, sem gjarnan eru fengin úr internetmenningu, og förum yfir önnur einkenni sem mynda rauðan þráð milli mótmæla sem fara fram á mjög ólíkum stöðum.
    Svo er það bíó um sjónvarp. To catch a predator nefndust vinsælir þættir sem sjónvarpsmaðurinn Chris Hansen stýrði í upphafi aldarinnar – en þar var notast við tálbeitu til að koma upp um fullorðna menn sem héldu að þeir væru að fara að hitta einstaklinga undir lögaldri. En hversu langt er í lagi að ganga í gerð sjónvarpsefnis og í nafni skemmtunar? Að þessu er spurt í kvikmyndinni Primetime sem byggir lauslega á sögu Hansen, mynd í leikstjórn hins unga og umtalaða Lance Oppenheim. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina.
    Við fáum pistil frá Hauki Má Helgasyni rithöfundi og heimspekingi um augnablikið þegar gervigreindin leysti einhverjar þekktustu óleystu stærðfræðigáturnar, kláraði stærðfræðina á einu bretti og gerði þar með alla mannlega stærðfræðinga óþarfa.
    56 min
  • Popplagakrufning: Kominn heim + Bestu evrópsku útvarpsþættirnir
    Popplagakrufning Lestarinnar snýr aftur í þætti dagsins. Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónskáld og tónlistarmaður, kryfur lag sem hefur verið mikið spilað að undanförnu, Kominn heim, með Kristmundi Axel og Bubba Morthens. Hljómar lagið eins og AI eða er þetta áhrifarík einlægni?
    Við hringjum svo til Berlínar og forvitnumst um bestu evrópsku útvarspþættina þetta árið en fjömiðlaverðlaunin Prix Europa for fram í síðustu viku. Lóa Björk Björnsdóttir segir okkur meðal annars frá áhrifaríku viðtali við stríðsglæpamann sem starfar við ræstingar og frönskum þáttum um fíkn og fjölskyldulíf.
    56 min