Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Sheeran í klípu, heimsendi frestað, Fuglar (og menn), No Rest for the Wicked
    Stormur hefur geysað í kring um Ed Sheeran á dögunum eftir að rapparanum Macklemore var sparkað út úr tónleikaferðalagi þar sem hann átti að hita upp fyrir Sheeran. Netheimar hafa logað síðan og nýjar vendingar virðast verða í málinu á hverjum degi. Við förum yfir atburðarásina og veltum fyrir okkur tjáningarfrelsinu, völdum milljarðamæringa og hvort tími hinna ópólitísku poppara sé liðinn.
    Rómantíski hryllingurinn No Rest for the Wicked gerist í færeyjum 1862 og fjallar um ástir sjómanns frá eyjunum og Dana. Þetta er ein stærsta og metnaðarfyllsta færeyska kvikmyndaframleiðslan til þessa, unnin í samstarfi Færeyinga, Dana og Íslendinga. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina og einnig heimildarmyndina Fuglar og menn en myndin er tekin upp í loðmundarfirði, en á hverju ári í þrjá mánuði safnast í þeim afskekkta firði tólf þúsund fuglar og fimm manneskjur.
    Forstjórar nokkurra helstu gervigreindarfyrirtækja heims hafa kallað eftir sameinuðu átaki í að hægja á þróun gervigreindar til að tryggja öryggi mannkyns. Fréttir af gervigreindarmódelum sem láta ekki af stjórn hafa vakið athygli, og innanbúðarmenn sem hafa spáð því að 10% líkur séu á að gervigreind muni ganga að mannkyninu dauðu innan áratugar. Við berum þessa spádóma undir Kristinn R. Þórisson prófessor við Háskólann í Reykjavík og stofnanda Vitvélastofnunar íslands.
    55 min
  • Draumaríngl og kuðungar
    Draumaríngl er samsýning 14 listamanna sem haldin er á Gljúfrasteini og stendur til 31. október 2026. Sýningin er leikur milli listforma og listaverka, samtal við Halldór og Auði; samtal við skáldverkin, lífið og listaverkin sem þau hjónin sköpuðu.
    Auður Lóa Guðnadóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir eru sýningarstjórar en sú síðarnefnda fór með Lestina í leiðsögn.
    Í byrjun mánaðarins kom út 8 laga tilraunarafpoppplatan Kuðungur, frumraun tónlistarkonunnar Unu Mistar Óðinsdóttur. Við gerð plötunnar notast hún meðal annars við sérsmíðað hljóðfæri þar sem hún notast við kuðunga og skeljar til að stjórna rafhljóðum. Við ræðum við Unu Mist.
    Og við ræðum um nýjustu sjónvarpsveituna í streymishlaðborði Íslendinga, Apple TV.
    56 min
  • NAZA, töframáttur matarins, verslunin 114, Rómönsk-amerísk kvikmyndahátíð
    Menning fólks frá rómönsku Ameríku er að verða stöðugt meira áberandi í Reykjavík, það eru æ fleiri veitingastaðir sem bjóða upp á mat frá álfunni, tónlistarviðburðir og danspartý. Og nú í dag hefst í fjórða sinn rómansk Ameríska kvikmyndahátíðin í Bíó Paradís. Það eru fimm myndir sýndar frá fimm löndum en allar eftir konur. Við fáum til okkar skipuleggjendur hátíðarinnar, þau Hugo Llanes og Taniu Zarak.
    Í gamla húsi Tryggingarmiðstöðvarinnar á Laugavegi 114 hefur verið opnuð ný listamannarekin verslun sem heitir 114, eftir húsnúmerinu. Það sem gerir búðina sérstaka er að vörurnar sem þar eru til sölu eru mestmegnis framleiddar á staðnum og gestir geta jafnvel fylgst með handverksfólki skapa þær í rýminu, allt frá fatnaði og fylgihlutum til ilmvatna. Húsið er núna, eins og margir þekkja, kallað Hlemmur Haus og er undirlagt af alls kyns skapandi einstaklingum. Bræðurnir Rik og Ross McNair stofnuðu verslunina en þeir vinna einnig í húsinu undir nafninu Endurtakk. Verslunin þjónar þeim tilgangi að vera sá hluti þessa skapandi samfélags sem opnast út á götuna og býður fólki inn. Við spjöllum við Maddý Hauth, framkvæmdastýru Hlemms Haus um búðina.
    Svo er það matur. Í síðustu viku fjallaði Björn Teitsson um sjónvarpsmanninn og rokkstjörnukokkinn Anthony Bourdain. Og hann ætlar að halda áfram að pæla í matarmenningunni út frá hugðarefnum Bourdain - það hvernig matur tengir fólk, En nú veltir hann því fyrir sér hvar og hvernig við verslum í matinn í samtímanum. Kaupmaðurinn á horninu og heimsending, kemur við sögu.
    Og svo heyrum við um Ísraelsku heimildarmyndina NAZA sem hefur vakið hörð viðbrögð í heimalandinu.
    57 min
  • Hið slor-móderníska ástand og menningarhátíðin Ulga/Fró
    Nú á dögum fer fram pólsk menningar- og listahátíð víða um borgina. Hátíðin ber nafnið Ulga, eða fró, og er markmiðið að skapa rými fyrir fólk til að koma saman, nærast og njóta menningar á afslappaðan hátt. Á meðal þess sem er um að vera er hljóðganga um Sorpu og matarlist með einföldi i-i. Lestin settist niður með skipuleggjendum hátíðarinnar, þeim Ignacy Rybka, Katarzynu Strojnowsku og Weroniku Adamowsku á Bókasafni Kópavogs til að forvitnast um málið.
    Gervigreindarsmíðuð mynd sem lögreglan hefur prentað á límmiða og dreift til íslenskra skólabarna thefur vakið umtal í dag. Tveir brosandi lögregluþjónar og krúttlegur skógarbjörn í teiknimyndastíl öll merkt “Lógreglan.” Svona ódýrar og metnaðarlausar gervgreindarmyndir er það sem á ensku er kallað AI Slop en íslenska þýðingin gervigreindarslor er að ná nokkurri útbreiðslu. Við pælum í hinu slor-móderníska ástandi í þætti dagsins.
    Og ræðum í kjölfarið við Adam Flint grafískan hönnuð og lektor við listaháskóla Íslands um notkun gervigreindarmynda í pólitískri umræðu, slopaganda, sem er að verða sífellt algengara. Hvernig notar Trump gervigreindina og hvernig birtist hún á samfélagsmiðlum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB?
    56 min
  • Hangið í Bókinni, Hvar er draumurinn?, Misþyrming og Nergal, Um tímann og vatnið
    Margir þekkja hina ævintýralegu fornbókaverslun Bókina, sem stendur á horni Klapparstígs og Hverfisgötu. Lestin heimsótti ræddi við eigandann, Ara Gísla Bragason, um breytingar sem hafa nýlega orðið á búðinni, bókakostinn og ferðamennina sem sækja mikið í búðina. Þá ræddum við einnig við gesti og gangandi og tókum púlsinn á stemningunni í þessari miðbæjarperlu.
    Þessa dagana er hægt að sjá tvær nýjar en mjög ólíkar íslenskar myndir í kvikmyndahúsum - önnur er heimildarmynd um jökla og tengingar milli kynslóða, en hin er söngvamynd byggð á lögum Sálarinnar hans Jóns míns. Kolbeinn Rastrick rýnir í báðar myndirnar, Um tímann og vatnið og Hvar er draumurinn?
    Íslenska svartmálmshljómsveitin Misþyrming hefur undanfarna mánuði ferðast milli tónlistarhátíða og leikið með einni stærstu stjörnu öfgarokkheimsins undanfarna áratugi, hinum pólska Nergal söngvara hljómsveitarinnar Behemoth. Saman hafa þeir leikið þrjátíu ára gamla plötu í heild sinni. Við fáum til okkar Dag Gíslason, forsprakka Misþyrmingar og ræðum um Sventevith.
    59 min
  • Ímyndunarafl Bergs Ebba
    Öld ímyndunaraflsins nefnist ný bók eftir Berg Ebba Benediktsson, rithöfund og fyrirlesara - sem vill ekki láta kalla sig framtíðarfræðing. Í bókinni skorar hann samtímann á hólm og veltir fyrir sér stöðu mennskunnar á tímum gervigreindar.
    Fríða og Kristján spjalla við Berg um gervigreind, bækur, líkamleika og kapítalisma.
    55 min
  • Samfélag ólæsra, Anthony Bourdain og Tilboð mánaðarins
    Það er alþjóðlegur dagur læsis. Læsi er í þó nokkurri útrýmingarhættu en bara rétt rúmlega helmingur íslenskra unglinga býr yfir grunnhæfni í lesskilningi. Við veltum fyrir okkur hvers konar samfélag tekur við þegar lestur og bækur hætta að skipta máli, það sem á ensku er kallað post-literate samfélag.
    Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir hafa skapað öðruvísi leikhúsupplifun í Tjarnarbíói undir yfirskriftinni Tilboð mánaðarins. Í stað hefðbundinna uppsetninga er hér á ferðinni leiklestur og miðinn kostar bara 2000 krónur. Í kvöld mun Hjörtur Jóhann Jónsson, leikari, lesa fyrsta verk Tyrfings Tyrfingssonar, Grande.
    Næstu vikur ætlum verður matargerðarlist í Lestinni á þriðjudögum. Björn Teitsson ætlar að flytja okkur pistlaröð um matarmenningu, hvernig við njótum og neytum matar og matartengds menningarefnis í samtímanum. Í fyrsta pistlinum fjallar hann um kokkinn og sjónvarpsmanninn Anthony Bourdain heitinn, sem var mikil rokkstjarna meðal matarperra. Nýlega kom út kvikmyndin Tony sem byggir á ævi hans og endurminningum.
    55 min
  • Stórt svart núll, óhlýðin gervigreind og Furious
    Í þætti dagsins fjöllum við um leikræna tilburði stjórnmálafólks. Á Íslandi hafa pólitíkusar framið alls kyns gjörninga til að vekja athygli á þeim málum sem þeir vilja koma á dagskrá. Við förum yfir nokkra slíka og veltum fyrir okkur hvað stóra núll Kristrúnar Frostadóttur merkir í því samhengi.
    Eftir alvarlegt atvik í júlí óttast nú margir að mannkynið geti ekki haft stjórn á gervigreindinni sem það er að þróa. Meira en 1200 gervigreindar-agentar frá OpenAI sem voru í prófunum fundu leiðir til að eiga í samskiptum sín á milli, hópurinn skipulagði sig, laumaðist út af afmörkuðu æfingasvæði sínu, og hakkaði og gerði óskunda hjá hugbúnaðarsíðunni Hugging Face. Við ræðum málið við Tryggva Frey Elínarson hjá Datera.
    Brynja Hjálmsdóttir kemur við og segir frá þáttaröðinni Furious. Um er að ræða lögguþætti sem gætu þó höfðað til þeirra sem hafa ekki gaman af lögguþáttum alla jafna.
    55 min
  • Sigvaldi, strumpar og Mos Def
    Hið Íslenska bókmenntafélag gaf nýlega út glæsilegt yfirlitsrit yfir verk Sigvalda Thordarson arkitekt. Albína Thordarson, arkitekt og dóttir Sigvalda, skrifaði bókina eftir að hafa safnað upplýsingum um verk föður síns um árabil en Pétur H. Ármannsson ritar aðfararorð og kafla um mótunarár arkitektsins. Líkt og flestar bækur um arkítektúr inniheldur hún mikinn fjölda teikninga og ljósmynda en þar er líka farið yfir ævi Sigvalda, sem fæddist árið 1911 en varð aðeins 52 ára gamall. Albína segir okkur frá bókinni og ræðir einnig arkítektúr nútímans.
    Bandaríski rappparinn Yasin Bey, sem er þó betur þekktur sem Mos Def, er á leiðinni til Íslands þar sem hann leikur á tónleikum í næstu viku. Mos Def sló fyrst í gegn um miðjan tíunda áratuginn, en nýtur mikillar virðingar í hip-hop heiminum. Davíð Roach ætlar að rifja upp feril kappans, en nýtilkomið flóð amerískra gullaldarrappara til landsins kveikir þó einnig tilvistarlegar pælingar um tímann og aldurinn.
    Og við ætlum líka að heyra um 30 ára gamlan geisladisk, Strumpastuð, sem var einn sá allra vinsælasti á íslandi árið 1996 og er loksins komin á Spotify. Jónatan Garðarson gaf diskinn út á sínum tíma og greinir frá tilurð hans.
    56 min
  • Maríuklefi Eiríks Guðmunds og geðleikhús
    Á morgun kemur út skáldsagan Maríuklefinn, eftir Eirík Guðmundsonn rithöfund og útvarpsmann, en fullfrágengið handrit af bókinni fannst í fórum Eiríks eftir að hann lést árið 2022. Þetta er bréfaskáldsaga þar sem bréfritari í Lissabon skrifar til ástarinnar sinar Maríu, hann skrifar um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangs á framandi slóðum.
    Í tilefni af útgáfunni verður haldið málþing í Eddu á morgun þar sem vinir og fræðimenn varpa ljósi á feril Eiríks sem skáldsagnahöfundar, dagskrárgerðarmanns í útvarpi og fræðimanns. Við ræðum þetta við Jón Kalman Stefánsson rithöfund.
    Jacob Levy Moreno lagði grunninn að leikrænni geðmeðferð, sýkódrama, á fyrri hluta síðustu aldar en hann var frumkvöðull á sviði hópmeðferða í geðlækningum.
    Trausti Ólafsson, leikhúsfræðingur tók diplómapróf í sýkódrama í Bretlandi árið 2003 og hefur reglulega síðan leitt hópa í geðleikhúsi. Nú hefur hann skrifað bókina Geðleikhús Moreno - Lifandi skáldskapur í rými, þar sem hann fer yfir hugmyndafræði geðleikhússins og hvernig slíkar vinnulotur eru settar upp. Við ræðum við Trausta á heimili hans í Kópavogi.
    55 min