Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Morðingi Tupac sakfelldur, Um tímann og vatnið, ljóstillífunarlist
    Rétt tæpum 30 árum eftir að rappstjarnan Tupac Shakur var myrtur í Las Vegas hefur sá sem fyrirskipaði morðið loksins verið sakfelldur.
    Heimildarmyndin Um tímann og vatnið var frumsýnd hér á landi fyrir helgi. Myndin byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar frá árinu 2019. Myndin notast við gríðarlegt magn af heimamyndböndum frá Andra, mömmu hans og afa, til að velta fyrir sér framgangi tímans og bráðnun jökla vegna loftslagsbreytinga. Við spjöllum við Andra Snæ og leisktjóra myndarinnar, hina óskarstilnefndu, Söru Rosa.
    Við kíkjum svo aftur á Hamraborg festival sem nú fer fram í Kópavogi. Í gær sagði Silfrún Una okkur frá bílagjörningi sínum en í dag mun hönnuðurinn Tomas Pausz segja frá lifandi tæknilistaverki sem hann vann ásamt gagnasérfræðingnum Miguel Angel Crozzoli.
    57 min
  • Dauði sjónvarpsfréttanna, leitað að stæði
    Við kynnum nýjan liðsmann í Lestinni. Fríða Þorkelsdóttir mun leysa Lóu af næstu vikurnar.
    Hún kíkti upp í Kópavog um helgina, en þar er mikið um að vera þessa dagana - Hamraborg Festival fer fram í sjötta sinn. Listakonan Silfrún Una Guðlaugsdóttir segir frá gjörningi sínum sem fram fór í bílakjallara í Hamraborginni en þar bauð hún upp á bíladans, tónlist, öskrandi hljólreiðafólk og labradora, meðal annars.
    Við veltum svo fyrir okkur stöðu fjölmiðla. Í kvöld fer í loftið síðasti kvöldfréttatími Sýnar - eða Stöðvar 2 eins og hún hét lengi. Það eru rétt tæp 40 ár frá því að stöðin hóf að sjónvarpa fréttum og hefur verið mikilvægur hluti af íslensku fjölmiðlalandslagi. En nú verður slökkt á myndavélunum, Hvað segir þetta um stöðu fjölmiðlunar og blaðamennsku á Íslandi í dag, geta hlaðvörp og vefmiðlar tekið keflinu og hvað þýðir þetta fyrir lýðræðið og samfélagslega umræðu í landinu. Við ræðum við Eyrúnu Magnúsdóttur og Eirík Hjálmarsson.
    57 min
  • Sænskir lögfræðihundar
    Viðfangsefni þáttarins er nýtt sænskt sjónvarpsdrama sem nefnist Hundarnir. Þættirnir sem hafa fengið glimrandi dóma og gríðarlegt áhorf í heimalandinu fjalla um starfsfólk á lögmannsstofunni Matsson og Moradi í Stokkhólmi sem sérhæfa sig í að verja harðsvíraða glæpamenn. Þarna er tekist á við gengjamenningu í svíþjóð þar sem ungmenni og börn eru notuð til voðaverka, þarna er tekist á við metoo, jafnvægi vinnu og einkalífs og meltingarvandræði.
    Við spjöllum við Vigdísi Häsler lögfræðing um þættina.
    31 min
  • Hver er fullvalda?
    Myndu Íslendingar afsala sér fullveldinu með því að ganga í Evrópusambandið, eða er innganga einmitt besta leiðin til að tryggja raunverulegt fullveldi Íslands til framtíðar. Um þetta hafa verið skrifaðar ótal skoðanagreinar undanfarnar vikur í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB.
    Í þætti dagsins ætlum við að reyna að skilja betur þetta hugtak, hvað það þýðir, og hvort að skilningur okkar á því hafi breyst frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki árið 1918.
    Við spjöllum við Guðmund Jónsson prófessor í sagnfræði.
    28 min
  • Grínáhrif Radíusbræðra
    Um helgina bárust þær fréttir að leikarinn og grínistinn Steinn Ármann Magnússon væri látinn, 62 ára að aldri. Steinn Ármann er þekktur fyrir hlutverk í fjölmörgum sjónvarpsþáttum, kvikmyndum, leikritum og talsetningum - Kötturinn Keli í Stundinni Okkar, Sveppi í Veggfóðri, Siggi Sæti í Latabæ en hann vakti fyrst athygli sem annar hluti gríntvíeykisins Radíusbræður sem komu eins og stormsveipur inn í íslenskt grín á tíunda áratugnum.
    Jón Gnarr kíkir í heimsókn og við ræðum uppistand Radíusbræðra, óheflaðan húmor og grínseríuna Limbó sem var slaufað af RÚV eftir tvo þætti.
    28 min
  • Beef, Hver var sumarsmellurinn 2026?
    Í Lestinni í dag ætlum við að leita að sumasmellinum 2026. Var eitthvað eitt lag sem fangaði sumarið í ár eða er hinn brotakenndi samtími búinn að gera út af við stóra sameiginlega sumarsmellinn? Við fáum hóp tónlistargrúskara til að segja hvaða lag einkenndi sumarið hjá þeim og hvað gerir lag að góðu sumarlagi.
    Bellamix69, Óli Dóri, Margrét Erla Maack, Dóra Júlía, Una Schram og Einar Karl í Ólátagarði eru ráðgjafar Lestarinnar í dag.
    Við sökkvum okkur svo ofan í aðra seríu af rifrildisþáttunum Beef á Netflix. Nú fylgjumst við með erjum tveggja para sem starfa á ríkmannlegum golfvelli. Brynja Hjálmsdóttir segir frá.
    55 min
  • Næsta stríð Ásgeirs
    Það er 20. ágúst og í dag fagnar Lestin fimmtudagsafmæli góðvinar þáttarins, ljóðskáldsins og menningargagnrýnandans Ásgeirs H. Ingólfsson.
    Ásgeir lést eftir skammvinn veikindi í byrjun síðasta árs og hefur skilið eftir sig skarð í íslensku menningarlífi. Hann fjallaði reglulega um kvikmyndir og bækur í hina ýmsu prent- og vefmiðla, ekki síst á bloggsíðunni sinni Menningarsmygl. Hér á Rás 1 var hann verið með árlega pistla frá kvikmyndahátiðunum í Berlín og Karlovy Vary í Tékklandi - en þar í landi bjó hann undanfarinn áratug.
    En Ásgeir var einnig skáld og nú í tæka tíð fyrir afmælið er komin út þriðja ljóðabók Ásgeirs, Næsta stríð, og á morgun verður veisla, útgáfuhóf, bíósýning, ljóðakvöld til heiðurs honum í Bíó Paradís.
    Við ræðum um hugsjónir og list Ásgeirs H. Ingólfssonar við tvo vini hans Val Gunnarsson og Jón Bjarka Magnússon.
    33 min
  • Ódysseifskviða og Christopher Nolan
    Í Lestinni í dag miðvikudaginn 19. Ágúst ætlum við að hrekjast um miðjarðarhafið undir lok bronsaldar með sjálfum Ódysseifi. The Odyssey eftir bandaríska leikstjórann Christopher Nolan hefur notið mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum í sumar.
    Myndin byggir á einu höfuðriti vestrænna bókmennta, Ódysseifskviðu sem eins og Illíónskviða er eignuð gríska skáldinu Hómeri - og hún var líklega rituð fyrir meira en 2700 árum en hafði áður varðveist í munnlegri geymd í einhverjar aldir.
    Við ræðum við Svavar Hrafn Svavarsson prófessor og sérfræðing í heimspeki fornaldar um það hvort Nolan nái að fanga kjarna Ódysseifskviðu.
    27 min