Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Sagan af Jason Arday
    Jason Arday átti sér ævintýralega sögu, sonur Ganískra innflytjenda í Bretlandi sem var á einhverfurófi, lærði ekki að tala fyrr en 11 ára og lesa 18 ára - en var orðinn yngsti svarti prófessor Cambridge háskóla fyrir fertugt.
    Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið fjallað ítarlega og stundum heiftúðlega í breskum fjölmiðlum um Arday en hann var sakaður um ritstuld og að hafa ýkt eða logið ýmsu um eigin ævi. Hann varð að skotspón í menningarstríðum Bretlands um kynþætti og háskólamenntun, einhver umtalaðasti og umdeildasti maður landsins.
    Um helgina bárust svo þær fréttir að hann væri látinn, hefði fallið fyrir eigin hendi.
    Við ræðum við Gauta Sigþórsson sem hefur starfað í rúma tvo áratugi í bresku háskólaumhverfi um Jason Arday.
    32 min
  • House of the Dragon, Afsakið á meðan ég æli, Lestin 10 ára
    Sjónvarp verður áberandi í þessum fyrsta Lestarþætti haustsins. Þriðja sería af House of the Dragon kom út í sumar og við ætlum að rýna í hana með sjónvarpsgagnrýnanda Lestarinnar Brynju Hjámsdóttur - þættir í sagnaheimi Krúnuleikanna eftir George RR Martin.
    Ljósmyndarinn og heimildarmyndargerðarmaðurinn Spessi kíkir í heimsókn og segir frá heimildarmyndinni Afsakið á meðan ég æli sem hann gerði um Megas. Myndin var frumsýnd árið 2023 en var sýnd á RÚV um helgina.
    Og svo fögnum við stórafmæli Lestarinnar, með því að rifja upp fyrsta þáttinn sem fór í loftið fyrir 10 árum. Donald Trump, Gísli Pálmi, Stranger Things, Jón Helgason, Pink Floyd og Aron Can komu meðal annars við sögu.
    56 min
  • Bókaklúbbur: Hyperpolitics, og hægrisveifla í Rómönsku Ameríku.
    Nú um helgina kusu íbúar Perú sér nýjan forseta, Keiko Fujimori, og um viku áður kusu Kólumbíumenn sér nýjan forseta, Abelardo de la Espriella, en þetta eru fimmta og þriðja fjölmennasta ríki rómönsku ameríku. Báðir sigurvegararnir eru hægrisinnaðir og bætast þar með við nokkra íhaldsbylgju í stjórnmálum suður og mið-ameríku, þar sem jafnvel róttækir hægrimenn hafa náð völdum í nokkrum löndum og þá oftar en ekki með stuðningi Donalds Trump. Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor í bókmenntum og menningu Rómönsku Ameríku við Háskóla Íslands ræðir um hægribylgjuna.
    Og í bókaklúbbi Lestarinnar lesum við skærgula bók um pólitískt ástand heimsins. Hyperpolitics er poppstjórnmálafræði eftir ungan belgískan sagnfræðing sem heitir Anton Jäger.
    39 min
  • Ósamhverfur fótbolti, Boards of Canada, Primavera Sound og sumarmenning
    Lestin er á leiðinni í sumarfrí eftir vikuna og Lóa og Kristján nefna það menningarefni sem hefur setið á hakanum á tímabilinu.
    Halldór Armand Ásgeirsson fjallar um HM 2026 og að þessu sinni fjallar hann um assymetrískan fótbolta eins og hans birtist í sigri Paragvæ á Þýskalandi og assymetrískan hernað eins og hann birtist í stríði Bandaríkjanna og Írans.
    Við fáum svo tónlistarpistil um Primavera Sound tónlistarhátíðina og nýja plötu Boards of Canada. Það er Davíð Roach Gunnarsson sem segir frá.
    34 min
  • Popplagakrufning: Gera sitt besta með Hasar
    Í þætti dagsins er aðeins eitt á dagskrá: við kryfjum, undir handleiðslu Friðriks, lagið Gera sitt besta með reykvísku rokkhljómsveitinni Hasar. Hvað hljóma þeir eins og? Hvað fjallar textinn um? Eiga þeir heima fyrir ofan læk eða neðan?
    36 min
  • Mat Dryhurst, Midillinn.com, fótboltabullur og útlendingar
    Fyrir tveimur vikum tókum við upp Lestina í lifandi flutningi með áhorfendum í Iðnó. Þá sögðum við frá sýningunni Strange Rules sem var opnuð í Feneyjum í maí, sýning sem tekst á við nýja tækni og kynnir til leiks hugtakið reglulist, protcol-art. Í þætti dagsins ræðum við nánar við einn sýningarstjóranna, breska listamanninn Mat Dryhurst. Við ræðum um regluverk heims, tvíhöfða orma og höfundarétt á tímum gervigreindar.
    Við leitum svo uppi íslenska protcol-list og ræðum við aðstandendur grínfréttasíðunnar og samfélagsmiðilsins, Midillinn.com. Þetta eru listamennirnir Þórður Hans Baldursson og Kristján Thorlacius Finnsson.
    Einar Már Jónsson sendir okkur svo pistil frá París um fótboltabullur, útlendingaandúð og ömmu sem var borin á kóngastól milli gatna í miðjum óeirðum.
    56 min
  • Lionel Messi, Our hero Balthazar og bókaklúbbur: Lausaletur
    Vikulegur bókaklúbbur Lestarinnar í Júní tekur fyrir nýjustu skáldsögu Þórdísar Helgadóttur, Lausaletur, sem kom út fyrir síðustu jól. Aðalpersónurnar er starfsfólk á prentsafni í ónefndri borg í miðjum heimsfaraldri, þar sem dularfull heilabilun herjar á fólk. Sölvi Halldórsson, skáld, er gestur bókaklúbbsins.
    Senn lýkur riðlakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu karla sem fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Einhver allra besti knattspyrnumaður sögunnar, Lionel Messi, hefur skorað 5 mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu - þrátt fyrir að vera orðinn 39 ára gamall. Halldór Armand Ásgeirsson reynir að setja fingurinn á snilligáfu Messi.
    Kolsvarta komedían Our hero Balthazar sem er nú sýnd í Bíó Paradís tekst á við stór og alvarleg málefni eins og byssuofbeldi og samfélagsmiðla. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina.
    55 min
  • Aðildarviðræður við ESB, fyrsti billjarðamæringurinn
    Við ætlum að kíkja í Kringluna og Smáralind og heyra hvað mun ráða ákvörðun fólks hvernig það mun kjósa í ágúst, hvort ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hvað ræður skoðunum fólks á Evrópusambandinu og hvaða mál skipta mestu máli þegar fólk sest niður og ákveður hvort það segir já eða nei.
    Eiríkur Örn Norðdahl veltir fyrir sér hvað það þýðir að mannkynið hafi eignast sinn fyrsta billjarðamæring , Elon Musk, og hvort að tækniauðmenn nútímans þurfi nokkuð á okkur hinum að halda. Sjónvarpsþættirnir Better Call Saul og hitabylgja í Evrópu koma meðal annars við sögu.
    54 min
  • Brostin loforð tækninnar, leikritið Leikritið
    Inga Steinunn Henningsdóttir setti sér það markmið að setja upp leikrit fyrir þrítugt. En um hvað á leikritið að vera? Í sýningunni Leikritið, sem er sett upp í sumarleikhúsinu Afturámóti í Háskólabíói, fáum við svarið við því. Á hverri sýningu fær Inga Steinunn nýjan mótleikara, sem veit ekkert um hvað sýningin er og er að sjá línurnar sínar í fyrsta skipti.
    Einar Már Jónsson, pistlahöfundur Lestarinnar í París, vogar sér að gera samanburð. Samanburðurinn er á því sem tæknin lofaði að gera og breyta heiminum, og svo hvernig hún hefur raunverulega breytt heiminum.
    58 min