Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Backrooms, Obession og popplagakrufning
    Við kryfjum slagarann Gleymmérei með Bríeti og KK, lag sem að má svo sannarlega glamra á gítarinn í útilegu í Básum í sumar. Er þetta vel samið kántrý eða kúrekablæti Bríetar komið úr böndunum? Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónskáld og tónlistarmaður, ræðir þetta við umsjónarmenn Lestarinnar.
    Um þessar mundir njóta tvær hryllingsmyndir eftir unga menn mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum. Báðir fengu þeir tækifæri til að gera mynd í fullri lengd eftir að hafa slegið í gegn á Youtube. Myndirnar eru Obsession og Backrooms, en leikstjóri þeirrar síðarnefndu er einungis 20 ára gamall.
    54 min
  • Björk í Listasafni Íslands, pistill um liti
    Björk Guðmundsdóttir og James Merry opnuðu um helgina sýningu í Listasafni Íslands, Echolalia og Ummyndlingar. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og stendur yfir fram á haust. Við fáum Björk í heimsókn og ræðum við hana um samstarfið við James, sköpunarferlið, umhverfisbaráttu og gervigreind.
    Svo fáum við heyra nýtt lag með Skröttum, Stressed, og pistil frá Eiríki Erni Norðdahl, sem er að þessu sinni að rífast um liti.
    55 min
  • Kæri fáviti, Patti Smith og Einar Már Jónsson
    Bókaklúbbur Lestarinnar verður í gangi í júní. Fyrsta bókin sem við tökum fyrir er Kæri Fáviti eftir franska rithöfundinn Virginie Despentes. Bókin gerist á internetinu í tölvupóstssamskiptum, og fjallar um Metoo, fíkn, stéttaklifur og ótal margt fleira.
    Rokkgoðsögnin Patti Smith kom fram í Eldborg í Hörpu um helgina og brunaði svo beint á Akureyri til að spila í Hofi. Við ræðum við Andreu Jónsdóttur, útvarpskonu á Rás 2, um Patti.
    Einar Már Jónsson sendir okkur pistil frá París.
    58 min
  • Í beinni á Listahátíð
    Sameiginleg bein útsending Víðsjárog Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík.
    Viðmælendur í þættinum eru
    Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe Loftus og Florent Devlesaver.
    55 min
  • Lestin á Feneyjatvíæringnum
    Við röltum um Feneyjatvíæringinn, eina elstu og vinsælustu myndlistarhátíð heims, sem hófst í byrjun maí. Við kíkjum inn í nokkra þjóðarskála, ræðum við listafólk og hátíðargesti, og veltum fyrir okkur pólitísku hitamálunum.
    54 min
  • Ritlistarfnykur og grískir harmleikir
    Lestin í dag er að mestu lögð undir umræður um stíl í bókmenntum, svokallaðan ritlistarstíl sem sumir telja sig geta greint í bókum fólks sem er menntað í skapandi skrifum í Amerískum háskólum.
    Við fáum innlegg frá Eiríki Erni Norðdahl sem reynir að setja fingurinn á þessa fagurfræði, og svo höldum við áfram með rithöfundunum Þórdísi Gísladóttur og Fríðu Ísberg og reynum að setja umræðuna í skandinavískt og íslenskt samhengi. Það eru tæplega 20 ár frá því að byrjað var að kenna skapandi skrif í Háskóla Íslands, og við ætlum að velta því fyrir okkur hvort og þá hvernig þetta nám hefur haft áhrif á íslenskt bókmenntalíf.
    Undir lok þáttarins hringjum við svo til Kýpur og spjöllum við Övru Sidiropoulou prófessor í leikhúsfræðum um gríska harmleiki. Þessi forna leikhúsgrein nýtur ennþá vinsælda og virðingar en í gær hlaut uppsetning Þjóðleikhússins á Óresteiu eftir Æskilos og í leikstjórn Benedict Andrews flest verðlaun á Grímuhátíðinni.
    56 min
  • Fjord fær Gullpálmann, Veröld ný og góð, 20 og eitthvað
    Kvikmyndin Fjord, í leikstjórn rúmenska leikstjórans Christan Mungiu, hlaut Gullpálmann um helgina. Hún stóð upp úr að mati dómnefndar af þeim 22 myndum sem voru í aðalkeppninni í ár. Búist er við að myndin muni skapa miklar umræður þegar hún fer í almenna sýningu, en í henni verður strangtrúuð rúmensk/norsk fjölskylda fyrir barðinu á norsku barnaverndarnefndinni. Myndin er í raun byggð á máli sem fór hátt í norskum fjölmiðlum fyrir 10 árum.
    Einar Már Jónsson, rithöfundur, flytur okkur pistil frá París, að þessu sinni um framtíðarbókmenntir og kjarnsæi.
    Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar rýnir í nýja íslenska grínþætti sem sýndir eru á RÚV og heita 20 og eitthvað.
    57 min
  • Íslendingar í Cannes, línuleg saxskrá, Palantir tíska
    Við ræðum við nokkra íslendinga sem eru staddir í Cannes í ólíkum erindagjörðum, Dögg Mósesdóttir, framleiðandi, sem er að kynna myndina Eyríki. Ása Baldursdóttir og Hrönn Sveinsdóttir úr Bíó Paradís, sem eru að horfa á myndir og funa og velja hvað verður á dagskrá á komandi mánuðum í eina listabíói landsins. Við fræðumst um plönin þeirra og förum yfir nokkur mál er varða keppnina um Gullpálmann.
    Hera Guðmundsdóttir fer nokkrum sinnum á ári til Parísar að sjá nýjustu tísku, í síðustu heimsókn sinni til Parísar kom hún auga á alveg nýja týpu af tískuáhugamanni, týpu sem er algengari í Kísildalnum en á tískupöllum Parísar.
    Svo ræðum við við tónlistarmanninn Tuma Torfason, sem heldur tónleika í Iðnó á sunnudaginn, en með nokkuð sérstöku þema. Tumi, ásamt fleiri saxófónleikurum, mun flytja þekkt útvarps-og sjónvarpsstef.
    56 min
  • Drake popplagakrufning, aðdáendur Ávaxtakörfunnar, biðröðin
    Drake er hratt og örugglega að jafna sig eftir rappbardagann við Kendrick Lamar fyrir tveimur árum. Í vikunni gaf hann ekki út eina endurkomuplötu heldur þrjár. Friðrik Margrétar Guðmundssson hjálpar okkur að kryfja einn slagara af plötunum þremur, Janice STFU. The Sopranos, Lykke Li og trapp-taktar frá Atlanta eru meðal þess sem poppmeinafræðingurinn veiðir upp úr laginu.
    Söngleikurinn Ávaxtakarfan á sér lítinn en harðan hóp erlendra aðdáenda, sem teikna myndir af persónunum, pæla í tónlist og boðskap leikritsins. Fríða Þorkelsdóttir, netblaðamaður Lestarinnar, segir frá.
    Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, er í biðröð en veit ekki hvað hann ætlar að gera þegar hann kemst á leiðarenda.
    56 min