Við kryfjum slagarann Gleymmérei með Bríeti og KK, lag sem að má svo sannarlega glamra á gítarinn í útilegu í Básum í sumar. Er þetta vel samið kántrý eða kúrekablæti Bríetar komið úr böndunum? Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónskáld og tónlistarmaður, ræðir þetta við umsjónarmenn Lestarinnar.
Um þessar mundir njóta tvær hryllingsmyndir eftir unga menn mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum. Báðir fengu þeir tækifæri til að gera mynd í fullri lengd eftir að hafa slegið í gegn á Youtube. Myndirnar eru Obsession og Backrooms, en leikstjóri þeirrar síðarnefndu er einungis 20 ára gamall.