Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Brunað milli kvikmyndahátíða: Cannes, Zürich, Patreksfjörður
    Við ætlum að flakka milli kvikmyndahátíða í Lestinni í dag. Við verðum Í Suður-Frakklandi, í Sviss og á Patreksfirði. Við hringjum til Cannes þar sem einhver þekktasta kvikmyndahátíð heims stendur nú yfir, þar er Lóa Björk stödd og við tökum stöðuna á henni.
    Við heyrum líka í Kristínu Andreu Þórðardóttur sem er einn skipuleggjenda heimildamyndahátíðarinnar Skjaldborg sem fer fram venju samkvæmt á Patreksfirði um Hvítasunnuhelgina.
    Og svo heyrum við um svissnesku hátíðina Videoex sem er tileinkuð tilraunakenndri kvikmyndagerð, en íslenskar myndir verða í sérstökum brennidepli á hátíðinni í ár. Rithöfundurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Sjón segir frá, en hann sá um valið á tilraunakenndum islenskum myndum sem sýndar eru á hátíðinni.
    57 min
  • Fasískir vindar í franskri bókaútgáfu og lífið er ennþá Kabarett,
    Við veltum fyrir okkur söngleiknum Kabarett og hvernig þemu hans birtast okkur í samfélagi samtímans, með Sigríði Jónsdóttur, leikhúsrýni og sérfræðingi hjá Leikminjasafni Íslands.
    Frönsk menningarumræða hefur logað síðustu vikurnar vegna fjárfestinga og afskipta milljarðamæringsins Vincent Bolloré. Hera Guðmundsdóttir, blaðamaður Lestarinnar, ræðir við Bergþóru Snæbjörnsdóttur og Jón Kalman Stefánsson um sviftingar í franska bókmenntaheiminum og hlutverk bókmennta á tímum pólitískrar skautunar.
    56 min
  • Vilja kjósendur bara láta skemmta sér? Bókin, gangvirki Cannes
    Hvað gerist á kvikmyndahátíðinni í Cannes? Grímar Jónsson og Sara Nassim, framleiðindur, eru stödd í Frakklandi og þekkja hátíðina út og inn. Við fáum að skyggnast inn í gangvirki Cannes og komast að því hvað framleiðendur gera þar.
    Eiríkur Örn Norðdahl veltir fyrir sér bókinni og blikkandi ljósi dópamínvélarinnar. Hvert er hlutverk rithöfundarins, á hann að vera í samkeppninni við símana og Netflix?
    Pétur Ólafsson er annar tveggja þáttastjórnanda hlaðvarpsins Korter í kosningar, nú er korter í kosningar og við veltum fyrir okkur hvað hefur einkennt þessa kosningabaráttu.
    53 min
  • Pólitískar vindvélar Evrópu, heimildarþættir um America's Next Top Model
    Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, segir frá þáttunum Reality Check, sem fjalla um raunveruleikaþættina America's Next Top Model. Þeir hófu göngu sína árið 2003 og í þeim kepptust ungar konur um að verða næsta ofurfyrirsæta Bandaríkjanna. En það var ýmislegt misjafnt sem gekk á.
    Gísli Marteinn Baldursson kemur og ræðir Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, en fyrri undankeppnin fer fram í Vín í kvöld. Ísland er ekki með og er eitt fimm landa sem sniðganga keppnina vegna þátttöku Ísraels í henni. Við ræðum líka nýja þætti hans sem eru á dagskrá rásar 1, Pólitískar vindvélar Evrópu.
    53 min
  • Nýtt tóma rými, Devil Wears Prada og ítök tískuprentmiðla
    Devil Wears Prada 2 er ein af stóru myndum vorsins, Hera Guðmundsdóttir, hönnuður og blaðamaður lestarinnar fór að sjá hana á dögunum og fór í kjölfarið að velta fyrir sér tískuprentmiðlum. Myndin er sjálfstætt framhald fyrstu myndarinnar, sem kom út fyrir tveimur áratugum, Devil Wears Prada. Sú mynd byggir á bók sem fyrrum aðstoðarkona Önnu Wintour skrifaði. Hera ræddi við Önnu Clausen sem er listrænn stjórnandi og aðjúnkt við fatahönnunardeild Listaháskólans.
    Við kíkjum í heimsókn á Grandann, þar eru meðlimir tóma rýmisins í óða önn að koma sér fyrir í nýju húsnæði. Tóma rýmið var áður til húsa í Skerjafirðinum, en starfseminn sprengdi það húsnæði utan af sér. í tóma rýminu eru sviðslistir iðkaðar og er það rekið af sjálfstætt starfandi sviðslistafólki.
    59 min
  • Queer Situations, bylting frjálshyggjunnar, Apex og Michael
    Hinsegin bókmenntir, langborðsumræður, fræðadagskrá og fjölbreyttur hópur alþjóðlegra höfunda, er það sem gestir bókmenntahátíðarinnar Queer Situations geta átt von á í næstu viku. 14.-17. maí fer hátíðin fram í annað sinn, og þær Eva Rún Snorradóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir, skipuleggjendur, eru gestir Lestarinnar í dag.
    Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær nýjar bíómyndir, Apex í leikstjórn Baltasars Kormáks, sem skartar Charlize Theron í aðalhlutverki, og Michael, nýja myndin um poppstjörnuna Michael Jackson.
    Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, flytur pistil um byltingu frjálshyggjunar og hvernig hugmyndir Antonio Gramsci höfðu þau áhrif að Ayn Rand, Milton Friedman og Friedrich Hayek, voru gerð að spámönnum þeirrar hugmyndafræði.
    55 min
  • Gelluteknó, vanlíðan og bæld reiði
    Við heyrum um viðburðinn Bratzgat - sem er nýtt samsett orð, Bratz (eins og dúkkurnar) og gat - rassgat. Ísabella Lena og Lára kalla sig Fonky Events, og hafa það eina og háleita markmið að halda góð partý. Á föstudaginn mun Fonky Events taka yfir Lækjargötu 6A og stemmingin verður Bratzgat.
    Í dag hóf HönnunarMars göngu sína, Sandra Rós Björnsdóttir er ein af þeim sem taka þátt, verkið hennar er á auglýsingaskilti fyrir framan Tjarnarbíó. Hera Guðmundsdóttir hitti hana fyrir hönd Lestarinnar og ræddi við hana um bælda reiði, sem verkin hennar á HönnunarMars fjalla um.
    Eiríkur Örn Norðdahl man þegar búðarstarfsfólk fór að brosa. Í dag fáum við pistil frá honum um vanlíðan.
    53 min
  • Jeff Bezos á Met Gala, Ægir Sindri skilyrtur af reynslu
    Ellen Loftsdóttir, stílisti, ræðir við okkur um það sem hefur lengi verið hápunktur tískuársins, frá því að Anna Wintour tók við skipulagninu á tíunda áratugnum. Fyrsta mánudaginn í Maí kemur ríka og fræga fólkið saman, klæðir sig upp og safnar fyrir búningadeild Metropolitan safnsins í New York. En viðvera og fjárhagslegur stuðningur tæknimilljarðamæringsins Jeff Bezos varpaði skugga á viðburðinn í ár.
    Ægir Sindri Bjarnason, trommari og tilranatónlistarmaður, gaf á dögunum út sína tíundu sólóplötu, ‘conditioned by experience’, skeytir hún saman áhrifum úr tveimur heimum sem Ægir hefur lifað og hrærst í um árabil; harðkjarnapönkinu og þungarokkinu sem hann ólst upp í og svo tilraunatónlistinni sem hann hefur fengist við undanfarin ár, bæði sem einyrki og með öðrum.
    54 min
  • Ástin án Tinder, ást í Vesturbænum, hnökraleysi
    Salóme Júlíusdóttir, námsmaður í Árósum, þolir ekki Tinder, og verkefnið hennar í skólanum snýst um að hjálpa einhleypu fólki að finna ástina án stefnumótappa.
    Við ræðum því ástina án Tinder í þætti dagsins. Svo rifjum við upp facebook-grúppu færslu sem sló í gegn, hún þótti svo rómantísk. Anna Marsibil Clausen ræðir við Brynhildi Björnsdóttur.
    Fríða Þorkelsdóttir, bóksali og bókmenntafræðingur, skrifar um hnökraleysið sem við stefnum í áttina að.
    56 min