Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Ástin á tímum Tinder #7
    Hvers vegna er svona óþægilegt að fara að spjalla, ódrukkinn, við sæta ókunnuga manneskju á almannafæri? Er það útaf því að við eigum að vera á Tinder eða er það útaf því að það er samfélagslega ekki viðurkennd hegðun á norðurlöndum. Við ræðum við einhleypan, gagnkynhneigðan mann í Berlín, Gunnar Örn Stephensen.
    55 min
  • Bully, Undir Ísnum, Jóhanna af Örk, fyrsta íslenska útvarpsstöðin
    Framkoma Kanye West síðustu misseri hefur verið einhvers konar lifandi gjörningur. Svo segir Davíð Roach Gunnarsson tónlistargagnrýnandi Lestarinnar. Hann ætlar að rýna í tólftu breiðskífu brjálaða snillingsins Kanye West, Bully.
    Við fáum svo dóma um tvær mjög ólíkar nýjar íslenskar kvikmyndir. Undir Ísnum er spennumynd með strákunum úr popptónlistarhópnum Tónhylur í aðalhlutverki, en Jóhanna af Örk er tilraunakennd mynd eftir Hlyn Pálmason.
    Við kynnum okkur sögu fyrstu íslensku útvarpsstöðvarinnar H.F. Útvarp sem Otttó B. Arnar kom á fót fyrir 100 árum síðan, en útsendingar hófust í mars 1926. Við kíkjum á sýningu í Loftskeytastöðinni þar sem þessari sögu eru gerð skil. Viðmælendur eru þau Anna Diljá Sigurðardóttir, sýningarstjóri, og Sigurður Harðarson rafeindavirki og útvarpsáhugamaður.
    56 min
  • Ástin á tímum Tinder #6
    Þekkiru einhvern heterópessimista? Hvernig gengur á Tinder? Er kominn tími til að leggja öppin frá sér og velta því fyrir sér hvort þetta sé yfirhöfuð þess virði?
    Í þætti dagsins ræðum við við Emblu Ýr Teitsdóttur, sem hefur komist að því að önnur lífsformúla henti sér. Hún hefur lokað Tinder fyrir fullt og allt.
    Undir lok þáttar fáum við pistil frá Eiríki Erni Norðdahl, sem fékk Macintosh borðtölvu 17 ára gamall.
    55 min
  • Pólitík og dauði á Feneyjatvíæringnum, hubris og ate
    Það er yfirleitt spennuþrungið andrúmsloft þegar styttist í Feneyjatvíæringinn, líklega nafntoguðustu myndlistarhátíð heims. Nú er aðeins einn mánuður í að hátíðin hefjist 9. maí en hún stendur fram í nóvember, og allt virðist á suðupunkti. Pólitíska ástandið í heiminum hefur smitast inn í hátíðina þetta árið svo um getur: Ísrael, Rússland, Ameríka og já svo er aðalsýningarstjórinn dáinn. Við fjöllum um myndlist og pólitík í Feneyjum í Lest dagsins og ræðum við Ólaf Ólafsson myndlistarmann um hátíðina.
    Einar Már Jónsson sendir svo pistil frá París. Hann er að máta forngrísku hugtökin hubris og ate við samtímann.
    56 min
  • Konungssinnar í Kísildal #11 - Gönguskíðagarpurinn Dr. Alex Karp
    Hann er heimspekingur í Kísildal, en hann er ekki heimspekingur Kísildalsins. Þvert á móti þá sker hann sig úr og gerir í því að aðgreina sig frá öðrum tæknifyrirtækjum Kísildalsins.
    Við fjöllum um Alex Karp, framkvæmdastjóra Palantir. Áður en hann varð framkvæmdastjóri og síðar milljarðamæringur, þá var hann doktorsnemi í heimspeki við Goethe-háskóla í Frankfurt.
    Palantir er eitt umdeildasta fyrirtæki Bandaríkjanna í dag, enda tækni þess notuð af útlendingaeftirlitinu (ICE) til að finna innflytjendur sem stendur til að reka úr landi og til að finna heppilegustu skotmörkin í Íran. Karp sem talar um sig sem vinstrimann og hefur stutt Demókrataflokkinn í áratugi, hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir þáttöku fyrirtækisins í herskárri stefnu Donalds Trump.
    Það efni sem nýttist við gerð þáttarins var meðal annars eftirfarandi
    The Technological Republic: Hard Power, Soft Belief, and the Future of the West (2025) eftir Alexander C. Karp og Nicholas W. Zamiska
    The Philosopher in the Valley: Alex Karp, Palantir, and the Rise of the Surveillance State eftir Michael Steinberger (2025)
    Viðtöl
    A16z - https://www.youtube.com/watch?v=Wj6ttdIeBnE&t=62s
    All In hlaðvarpið - https://www.youtube.com/watch?v=Y-IH7EVrBbQ
    Free Press https://www.youtube.com/watch?v=QdqHf71Tep0
    New York Times https://www.youtube.com/watch?v=8i-ys9faa74
    Greinar
    Minningargrein Karp um Habermas https://www.politico.com/news/magazine/2026/03/20/karp-habermas-remembrance-00838398
    Rýnt í doktorsritgerð Karp
    https://www.boundary2.org/2020/07/moira-weigel-palantir-goes-to-the-frankfurt-school/
    Stúlknaskólinn í Íran og Maven
    https://www.theguardian.com/news/2026/mar/26/ai-got-the-blame-for-the-iran-school-bombing-the-truth-is-far-more-worrying
    53 min
  • Church bros - endurfluttur
    Þáttur var fyrst fluttur í janúar 2025. Þar kanna Anna Gyða og Kristján aukna kirkjusókn ungra manna, skoða Biblíuapp og fara í messu,
    56 min
  • Falinn Gjóður, Jóhanna af Örk
    Sigurvegarar Músíktilrauna 2026 er tilraunarokkhljómsveitin Falinn Gjóður, sem er skipuð þremur tíundubekkingum sem elska Þursaflokkinn og Frank Zappa. Aron Elí Arnarsson, Baldur Þórarinsson og Þorri Hrafnsson heimsækja Lestina og ræða sigurinn, tilraunarokk og fuglinn sem bandið er nefnt eftir.
    Við hringjum svo í Hlyn Pálmason, kvikmyndaleikstjóra, um hans nýjustu mynd, Jóhanna af Örk. Myndavélin hreyfist ekkert í þær 62 mínútur sem kvikmyndin varir, en árstíðirnar og útsýnið mynda bakgrunninn fyrir ævintýri þriggja barna og riddarans Jóhönnu.
    57 min
  • Herra Skepna, umræðan, Persepólis
    Fríða Þorkelsdóttir bókmenntafræðingur og netblaðamaður Lestarinnar, fjallar um YouTube-stjörnuna MrBeast. Þó þú hafir kannski aldrei heyrt um hann þá heldur hann úti vinsælustu YouTube rás í heimi. En það er eitthvað undarlegt við hann.
    Eiríkur Örn Norðdahl flytur pistil um sjálfa umræðuna og hvernig hún á það til að þróast. Svo ræðum við við Kjartan Orra Þórsson, Íranssérfræðing, um teiknimyndasöguna Persepólis (endurflutt frá desember 2024).
    52 min