Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Ástin á tímum Tinder #5
    Dr. Love er á línunni. Við þurfum á hjálp hans að halda.
    Rétt fyrir aldamót, fyrst í gríni en svo af fullri alvöru, hélt Páll Óskar úti dagskrárliðnum Dr. Love á útvarpsstöðinni Mono.
    Í þessum þætti af ástinni á tímum Tinder förum við djúpt inn í menninguna á Grindr, pælum í því hvaða áhrif það hefur að byrja ævina inni í skápnum og heyrum hvernig draumaprinsinn kemur þegar þú átt síst von á honum.
    Dr. Love talar hreint út, þú finnur ekki ástina ef þú ert bara heima að lesa, þú þarft að hætta þér út í þennan frumsskóg. Þó það sé ógnvekjandi.
    53 min
  • Heated Rivalry, íslenskur stríðsljósmyndari
    Við rýnum í sjónvarpsþættina Heated Rivalry sem hafa notið mikilla vinsælda að undanförnu - hómóerótísk ástarsaga á íshokkísvellinu. Þættirnir eru byggðir á bókaflokknum Game Changers eftir Rachel Reed og eru aðgengilegir á streymisveitu HBO. Brynja Hjálmsdóttir spjallar um þættina.
    Við rifjum líka upp bíómynd um íshokkí sem naut mikilla vinsælda fyrir rúmlega 30 árum - en þar kom Ísland heldur betur við sögu.
    Þorkell Þorkelsson er eini Íslendingurinn sem hefur markvisst ljósmyndað á stríðshrjáðum svæðum. Í janúar í fyrra deildi hann með okkur sinni reynslu af stríðs- og heimildaljósmyndun. Fagið hefur breyst mikið að undanförnu enda hefur það að miklu leyti færst úr höndum fagmanna á vegum stórra miðla yfir til fólksins sem býr sjálft við hörmungar aðstæður. Aðgengi okkar sem heima sitja, að slíkum myndum hefur einnig breyst töluvert. Við endurflytjum samtal þeirra Þorkels og Önnu Gyðu Sigurgísladóttur.
    54 min
  • Íslenskur Herkúles, One Battle After Another
    Orri Guðmundsson er tvítugur kvikmyndagerðarmaður í námi í Listaháskóla Íslands. Hann er að taka þátt í Sprettfisk, keppni á Stockfish hátíðinni, og framlagið hans er heimildarmynd um Guðmund Emil Jóhannsson. Myndin heitir Íslenskur Herkúles og veitir innsýn í hversdagsleika Gumma Emil. En hvernig er að gera mynd um manneskju sem hefur nú þegar myndað lífið sitt og birt það á netinu?
    Svo flytjum við samtal við Björn Þór Vilhjálmsson, kvikmynda- og bókmenntafræðing, um Óskarsverðlaunamyndina One Battle After Another.
    56 min
  • Ástin á tímum Tinder #4
    Hver er munurinn á því að deita á Íslandi og í Bandaríkjunum? Við berum okkur saman við Bandaríkjamenn í gegnum afþreygingarefnið sem við neytum, en menningin og aðstæður í ástarleit hafa mótast út frá gjörólíkum forsendum. Birna Gustafsson kynfræðingur, talar við okkur frá Brooklyn.
    Einar Már Jónsson, rithöfundur, flytur okkur pistil um sögukennslu og framfararhyggju. Og Fríða Þorkelsdóttir rifjar upp galara, starfsheiti úr dystópíunni Love Star etir Andra Snæ, og segir frá South Park þætti.
    55 min
  • Manosphere-ið, Eitt af blómunum krufið
    Við ræðum umtöluðustu heimildarmyndina um þessar mundir, Inside the Manosphere, úr smiðju Louis Theroux. Þar hittir hann áhrifavalda sem tala fyrir íhaldssömum kynjahlutverkum, stórum vöðvum og vafasömum fjárfestingum.
    Svo kryfjum við popplag með Friðriki. Að þessu sinni, í tilefni Íslensku tónlistarverðlaunanna, er það íslenskt popplag. Eitt af blómunum með Benna Hemm Hemm og Páli Óskari.
    52 min
  • Skarsgård-leikarafjölskyldan, ástarbækur, Kabarett
    Um þessar mundir má sjá í kvikmyndahúsum þrjár myndir með þremur mismunandi Skarsgård í aðalhlutverkum. Hinn 74 ára Stellan leikur í norsku óskarsmyndinni Affeksjonsverdi, elsti sonur hans Alexander leikur í BDSM-homma-rómantíkinni Pillion og annar sonur, Bill, leikur í spennumynd leikstjórans Gus Van Sant, Dead Man's Wire. Reyndar eru allt í allt sex synir Stellans Skarsgård virkir í leiklistinni. Við forvitnumst um þessa miklu leikarafjölskyldu.
    Ástin er formlega orðinn faraldur. Eiríkur Örn Norðdahl fjallar um það hvernig ástarsagan, það sem á ensku er kallað romance novel, er smám saman að leggja undir sig heiminn.
    Og svo kíkjum við á Kabarett í Þjóðleikhúskjallaranum.
    Leikhópur ókunnuga fólksins í leikstjórn Bjarts Örns Bachmann frumsýnir Kabarett næstkomandi föstudag. Söngleikurinn er byggður á leikriti sem er byggt á endurminningum frá Berlinarárum ungs rithöfundar. Weimar lýðveldið er við það að líða undir lok, Adolf Hitler er vinsæll pólitíkus, hægrimenn og vinstrimenn berjast á götum úti, samtímis dunar jazzinn í klúbbum borgarinnar.
    53 min
  • Óskarsverðlaunin, Jürgen Habermas
    Helsta uppskeruhátið amerískra kvikmyndabransans, Óskarsverðlaunahátíðin var haldin í Los Angeles í nótt, í 98 skipti. Stóru fréttirnar af hátíðinni eru þær að One Battle after Another, mynd Paul Thomas Anderson, var verðlaunuð sem besta myndin, fyrir bestu leikstjórn, og besta aðlagaða handritið. Vampíru-períóðu-tónlistarmyndin Sinners í leikstjórn Ryan Coogler fékk fjóra óskara Besta aðalleikona var Jessie Buckley fyrir Agnesi í Hamnet, og aðalleikari var Michael B. Jordan fyrir túlkun sína á tvíburunum í Sinners. Til þess að fara yfir þetta allt og meira hringdi Lóa í mikinn áhugamann um óskarsverðlaunin Samúel Lúkas, sem er kvikmyndaleikstjóri búsettur í Berlín.
    Við heyrum líka um þýska heimspekinginn Jürgen Habermas, sem lést um helgina. Hann var orðinn 96 ára og skrifaði bækur nánast þar til yfir lauk. Hann var einn af risunum í evrópskri heimspeki á seinni hluta 20. aldar. Hann var bjartsýnismaður sem trúði á skynsemi mannsins og möguleika okkar til að eiga í rökræðum í almannarýminu . Og hann reyndi að teikna upp hvaða kjöraðstæður þyrftu að vera til staðar til að við gætum rætt skynsamelga saman. Vilhjálmur Árnason segir frá helstu kenningum Habermas.
    56 min
  • Ástin á tímum Tinder #3
    Líður þér eins og þú sért útlagi úr ríki Ástarinnar? Í þessum þriðja þætti flettum við aðeins í bókinni Love in Exile eftir Shon Faye og ræðum við Bríeti Blæ Jóhannsdóttur. Umræðuefnin eru stefnumótamiðlar og afhjúpun á samfélagsmiðlum.
    Eiríkur Örn Norðdahl er í þema, hann flytur sinn annan pistil um ástina, Narkissos og Erich Fromme veita innblástur.
    52 min
  • Íransstríðið breiðist út
    Við erum á tólfta degi stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran, og átökin hafa breiðst víða út um Miðausturlönd. Samkvæmt nýjustu tölum hafa 1300 fallið í Íran, 570 manns verið drepnir í Líbanon, 7 bandarískir hermenn látis, 11 ísraelar og 17 manns í ríkjunum við Persaflóa.
    Gestur Lestarinnar er Magnús Þorkell Bernharðsson sem er prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams háskóla í Bandaríkjunum.
    Magnús flytur hátíðarfyrirlesturinn á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands á föstudag: Hvað má og hvað má ekki? Akademískt frelsi á tímamótum. Á laugardag heldur hann svo fyrirlestur um stöðuna í miðausturlöndum í Bókabúð Forlagsins. Þar er yfirskriftin Átök í miðausturlöndum - er þriðja heimsstyrjöldin í vændum?
    Hvort tveggja góðar og mikilvægar spurningar sem við snertum á í þætti dagsins.
    53 min
  • Nútímahernaður, Hildur, Persneskar kvikmyndir
    Við veltum fyrir okkur hernaði í nútímanum eins og hann birtist í stríðinu í Íran um þessar mundir: drónar, gervigreind, og árásir á gagnaver, koma meðal annars við sögu. Við ræðum við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing.
    Og talandi um Íran. Persar er gríðarlega mögnuð kvikmyndaþjóð og Kolbeinn Rastrick ætlar að rekja sögu persneskrar kvikmyndagerðar og segja frá þeirri írönsku mynd sem er í sérstöku uppáhaldi hjá honum: Nóttin þegar það rigndi, frá 1967, eftir Kamran Shirdel.
    Við rýnum svo í sjónvarpsþættina Hildur á Sjónvarpi Simans. Þetta eru sakamálaþættir byggðir á skáldsögum Satu Rämö, með Ebbu Katrínu Finnsdóttur í hlutverki ísfirsku brimbrettalöggunnar Hildar. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi segir frá.
    55 min