Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Er Slappið slappt? Næturvaktin sett á svið, BAFTA-fréttir
    Getur Slapp verið appið sem bjargar okkur? Tveir æskuvinir hafa stofnað nýjan samfélagsmiðil sem er einungis fyrir íslendinga og þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á hann. Þannig ekki er hægt að koma þar fram undir huldu höfði. En hvernig er að nota þennan miðil? Hvað virkar og hvað virkar ekki? Við veltum fyrir okkur kostum og hindrunum með Reyni Ólafssyni, álitsgjafa Lestarinnar.
    Komin eru 20 ár síðan Næturvaktin, einn ástælasti íslenski sjónvarpsþátturinn, var sýndur í sjónvarpi. Nú sjá MR-ingar fyrir sér að setja hann upp í leikriti Herranætur í vor, en mörg í leikhópnum voru ekki fædd þegar þættirnir voru sýndir.
    Og við förum yfir fréttir af BAFTA-verðlaununum. Hverjir voru sigurvegarar kvöldsins og hvað var ritskoðað og hvað ekki.
    53 min
  • Wuthering Heights, Sérstæðan, fjörbaugsgarður
    Í þættinum í dag verður rýnt í Wuthering Heights, Fýkur yfir hæðir, nýja kvikmyndaaðlögun þessarar klassísku skáldsögu Emily Brontë. Það er Emerald Fennel sem skrifar handritið og leikstýrir og hefur myndin vakið mikið umtal, og sitt sýnist hverjum: kynþokkafull eða bara kjánaleg, um það er deilt. Það er hjartaknúsarinn Jacob Elordi sem fer með hlutverk Heathcliffs og Margot Robbie leikur Cathy. Kolbeinn Rastrick fellir dóm sinn í Lestinni í dag.
    Við fræðumst svo um Sérstæðuna, dansverk um framtíð án líkama. Rósa Ómarsdóttir danshöfundur hefur í rúman áratug reynt að færa manneskjuna úr miðja dansverka sinna, og núna já, er mannslíkaminn algjörlega fjarverandi - því þannig er auðvitað framtíðin sem blasir við okkur, heilanum verður bara hlaðið upp í skýið og við getum losnað við allan líkamlegan sársauka, þrár og langanir.
    Svo er það pistill frá rithöfundinum Eiríki Erni Norðdahl. Hann er að velta fyrir sér fjörbaugsgarði og nýjum útlendingalögum.
    52 min
  • Við þurfum að tala meira um Kína
    Þú hittir okkur á mjög kínverskum tíma í lífi okkar, kæri hlustandi. Kína er út um allt þessa dagana, Barnið þitt leikur sér með Labubu, vinsælasta teiknimynda allra tíma er hin kínverska Ne Zha 2, æ fleiri Íslendingar keyra rafbíla frá Kína, og hvað er málið með þessi dansandi vélmenni í nýárssýningu kínverska kommúnistaflokksins?
    Lestin í dag er tileinkuð Kína, við ræðum við Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum og þvermenningarlegri heimspeki við Háskóla Íslands.
    53 min
  • Góðu nýlenduherrarnir, orðaforði incela, forritarar óþarfir?
    Hvað eiga íslendingar mörg orð yfir vont veður og úrkomu? Og hvað eiga incelar mörg orð yfir konur sem ekki vilja sofa hjá þeim? Fríða Þorkelsdóttir, bókmenntafræðingur og netblaðamaður Lestarinnar, fer yfir orðaforðan sem verður til í myrkari kimum internetsins, þar sem bölsýni og kvenfyrirlitning ráða ríkjum.
    Eru danir of góðir til að við hugsum um þá sem nýlenduherra? Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor á Hugvísindasviði veltir fyrir sér af hverju það gæti verið að Danir hafi þá ímynd að þeir séu einfaldlega of 'næs' til að vera nokkurntíman kallaðir nýlenduherrar, þó þeir eigi grimmilega sögu á Jómfrúaeyjum.
    Undanfarna daga hefur löng samfélagsmiðlafærsla farið eins og eldur í sinu um netið. “Þetta er upphafið á einhverju stóru” nefnist færslan - Something big is happening. Í færslunni fjallar höfundurinn Matt Shumer um starf sitt sem forritari og hvernig það hefur gjörbreyst á undanförnum árum með tilkomu gervigreindar. Við veltum fyrir okkur hvort forritarar séu hættir að kóða, hvað er vibe-coding og verða til einhverjar forritarar í framtíðinni. Viðmælandi Lestarinnar er Jón Eðvald Vignisson, forritari og reynslubolti úr sprotabransanum.
    54 min
  • Pólitík á Berlinale, Hamnet gæti verið mynd ársins
    Það er verið að rífast um Palestínu og pólitík á kvikmyndahátíðinni Berlinale. Það var þýski leikstjórinn Wim Wenders sem lét fyrstu umdeildu ummælin falla í þeirri rökræðu. Við rekjum atburðarrásina og um hvað er tekist á um.
    Hamnet í leikstjórn Chloé Zhao gæti verið mynd ársins. Myndin er byggð á samnefndri bók eftir Maggie O'Farrel, sem er söguleg skáldsaga um sonarmissi Shakespeare og hvernig það varð kveikjan, sársaukinn, að harmleiknum Hamlet. Við ræðum þessa mynd í þaula við Ölmu Mjöll Ólafsdóttur, Helgu Dögg Ólafsdóttur og Kolfinnu Nikulásdóttur, sem voru snortnar yfir myndinni.
    57 min
  • Bad Bunny popplagakrufning, Send help, útvarp er snilld
    Það er tími fyrir popplagakrufningu. Við setjumst niður og kryfjum lag með umtalaðasta tónlistarmanni heims um þessar mundir, Bad Bunny frá Púertó Ríkó. Lagið nefnist DtMF og er fullkomin tjáning á því hvernig það er að verða þrítugur. Friðrik Margrétar Guðmundsson, poppmeinafræðingur Lestarinnar, fræðir okkur um tónlistarstílana sem hann notast við: reaggeton, samba, bomba og plena.
    Við höldum svo út á eyðieyju í fylgd með Kolbeini Rastrick kvikmyndagagnrýnanda. Þar gerist Send help, nýjasta hryllingsmynd leikstjórans Sam Raimi sem er þekktur fyrir Spiderman-myndir sínar og Evil Dead-seríuna.
    Og Lóa Björk veltir fyrir útvarpi, flakkar milli stöðva víðsvegar um hnöttinn og spjallar við nemendur í MH um hvernig útvarp þau væru til í að gera.
    56 min
  • Samfélagsmiðill fyrir vitvélar, lífsfyllingin, skíðastökk
    Í lok janúar opnaði nýr samfélagsmiðill og fylltist fljótlega af notendum. Það er svosem ekki í frásögur færandi, nema vegna þess að hann var ekki ætlaður mannfólki heldur vitvélum, gervigreindar-agentum. Tryggvi Freyr Elínarson rekur atburðarásina í kringum hinn umtalaða samfélagsmiðil Moltbook og segir frá tækninni á bakvið hann, agentunum eða stafrænu erindrekunum sem munu hafa gríðarleg áhrif á næstu árum.
    Eiríkur Örn Norðdahl sendir okkur pistil um leit hans að nýju áhugamáli sem á að veita honum lífsfyllingu.
    Og við beinum sjónum okkar að vetrarólympíuleikunum og pælum í skíðastökki. Eiríkur Guðmundsson fjallaði um fegurð þessarar mögnuðu íþróttar í innslagi í Lestinni fyrir 8 árum síðan og ræddi þá við Einar Örn Jónsson íþróttafréttamann.
    56 min
  • Gullöld norskra kvikmynda, ævintýri Lóu á Grænlandi
    Sögulega hefur norsk kvikmyndagerð staðið í skugganum af því sem hefur verið framleitt í nágrannalöndunum. Danskir og sænskir leikstjórar hafa í gegnum alla kvikmyndasöguna verið með þeim virtustu og mest spennandi, snillingum miðilsins - en Norðmenn hafa frekar þótt púkó. Að undanförnu hefur gróskan þó færst í auknum mæli til Noregs. Raunar stendur norsk kvikmyndagerð í svo miklum blóma að það er farið að tala um gullöld norskra kvikmynda og sjónvarpsþátta. Toppurinn á þeim ísjaka eru níu tilnefningar til óskarsverðlauna sem kvikmyndin Affeksjonsverdi eftir Joachim Trier hlaut á dögunum. Er þetta bara olíupeningurinn, eða eru Norðmenn að gera eitthvað annað rétt? Við ræðum við Grímar Jónsson, kvikmyndaframleiðanda um gullöld norskra kvikmynda.
    Við heyrum svo um ævintýri Lóu Bjarkar á Grænlandi, en hún fór þangað í lok janúar til að taka púlsinn á grænlensku þjóðarsálinni eftir hótanir Bandaríkjaforseta um að taka yfir landið. Við heyrum brot úr þáttunum Elsta land í heimi sem hún vann ásamt Pétri Magnússyni um heimsóknina.
    56 min
  • Pólitískur gjörningur Bad Bunny, víðförlasti Íslendingurinn, AI ástarljóð
    Við heyrum í einum víðförlasta Íslendingi allra tíma, en Katrín Sif Einarsdóttir, er núna á leiðinni til afríska eyríkisins Sao Tome og Prinsíp - en þegar hún lendir þar, hefur hún komið til allra landa í heiminum. Hinrik Wöhler hringir í flökkukindina Katrínu Sif.
    Við ætlum líka að velta fyrir okkur merkingu ástarljóða, og það hvort það sé nógu rómantískt að senda elskhuga sínum ljóð samið af gervigreind. Fríða Þorkelsdóttir veltir þessu fyrir sér.
    Þátturinn byrjar á miðjum amerískum fótboltavelli, en púertóríkanski tónlistarmaðurinn Bad Bunny, einn allra vinsælasti tónlistarmaður heims, tróð upp í nótt á hálfleikssýningu í úrslitaleik Ameríska fótboltans. Íhaldsmenn þar í landi og forsetinn sjálfur höfðu fordæmt að spænskumælandi listamaður ætti að skemmta áhorfendum - og dómur Trumps var að tónleikarnir hafi verið kinnhestur í andlit þjóðarinnar. Önnur sýning hafði verið haldin honum til höfuðs, þar sem rokkrapparinn Kid Rock kom fram. Við rýnum í táknin og pólitíska merkingu hálfleiksskemmtunar Bad Bunny með Nínu Hjálmarsdóttur.
    56 min
  • Dystópíska myndasgan Huldufólk, ritstkoðun á ameríska TikTok
    Árið 2061 nær golfstraumurinn ekki lengur til Íslands, þorskstofninn er hruninn, flóttafólk streymir til landsins, óstjórn ríkir og glæpagengi og stríðsherrar berjast um völdin - já og það er alltaf rigning. Grímuklætt fólk á mótorhjóli stelur mikilvægum kassa frá líftæknifyrirtæki, og ungur tæknimaður lendir í klóm mannræningja.Einhvern veginn þannig er hefst ný íslensk myndasaga sem kom út hjá Froski útgáfu í desember. Huldufólk nefnist bókin og á bakvið hana standa teiknarinn Fannar G. Gilbertsson og höfundurinn Gunnar Birgisson - sem starfar sem lögfræðingur í Texas í Bandaríkjunum. Við ræðum við Fannar og Gunnar um myndasögur og niðurbrot samfélagsins
    Nú í janúar breyttist eignarhald á samfélagsmiðlinum Tiktok í Bandaríkjunum, en um langt skeið hafa bandarísk stjórnvöld viljað færa það úr höndum kínverskra eigenda, fyrirtækisins Bytedance, enda mikil tortryggni í garð þeirra og grunsemdir um áhrif kínverskra stjórnvalda. Um leið og nýir eigendur - sem eru nátengdir Donald Trump - tóku við varð umtalsverð breyting á virkni forritsins. Notendur héldu því meðal annars fram að algóryþminn virtist dempa dreifingu á færslum tengdum Epstein-skjölunum og mótmælum gegn útlendingalögreglunni ICE í Minneapolis. Við ætlum að fræðast um þetta, heyra hvort þetta hafi áhrif á íslenska notendur, og almennt um það hvernig Tiktok virkar í mismunandi heimshlutum. Tryggvi Freyr Elínarson, þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna hjá Datera, útskýrir stöðuna.
    Tónlistin í þættinum er frá Coby Sey og Láru.
    56 min