Það er tími fyrir popplagakrufningu. Við setjumst niður og kryfjum lag með umtalaðasta tónlistarmanni heims um þessar mundir, Bad Bunny frá Púertó Ríkó. Lagið nefnist DtMF og er fullkomin tjáning á því hvernig það er að verða þrítugur. Friðrik Margrétar Guðmundsson, poppmeinafræðingur Lestarinnar, fræðir okkur um tónlistarstílana sem hann notast við: reaggeton, samba, bomba og plena.
Við höldum svo út á eyðieyju í fylgd með Kolbeini Rastrick kvikmyndagagnrýnanda. Þar gerist Send help, nýjasta hryllingsmynd leikstjórans Sam Raimi sem er þekktur fyrir Spiderman-myndir sínar og Evil Dead-seríuna.
Og Lóa Björk veltir fyrir útvarpi, flakkar milli stöðva víðsvegar um hnöttinn og spjallar við nemendur í MH um hvernig útvarp þau væru til í að gera.