Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Ízleifur og 100&einn, Hljómsveitin Eva
    Kosmískt skítamix er nýjasta afurð vináttu og listræns samstarfs Hljómsveitarinnar Evu. Hana skipa þær Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasdóttir. Þær hlutu í fyrsta sinn styrk úr sviðslistasjóði fyrir einhverjum árum og sökum veikinda og væntinga um að bjarga heiminum með sviðslistaverki dróst á langinn að búa verkið til. En nú er það tilbúið, og er í sýningu í Tjarnarbíó og hefur hlotið frábærar viðtökur.
    Rapparinn og pródúsentinn Ízleifur er við það að gefa út sína þriðju plötu sem ber titilinn 100&einn. Jóhannes Bjarki ræðir við hann um skapandi ferlið og við fáum að heyra forsmekk af því sem koma skal.
    55 min
  • Óhugsandi hlutir, Mergur og Satu Rämö
    Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, veltir fyrir sér óhugsandi hlutum. Það er óhugsandi að standa uppi á Bolafjalli og horfa yfir til Bandaríkjanna, þangað til það er það ekki.
    Mergur, nýtt íslenskt sviðs og tónverk, verður frumsýnt í Tjarnarbíó á Föstudag. Lestin kíkir á æfingu og Katrín Lóa, leikstjóri, svarar því hvers vegna það var nauðsynlegt að gera kórverk um það sem er ógeðslegt og fyllir okkur skömm.
    Satu Råmö er stödd í Finnlandi, á leið á frumsýningu á sjónvarpsþáttum annars vegar og hinsvegar leikriti, sem byggt er á bókum eftir hana. Satu býr á Ísafirði, eins og skálsdsagnapersónan Hildur, Satu skrifar sögurnar og Hildur, leysir glæpi.
    56 min
  • Ástarkraftur, Færeyska liðið á EM, I Love LA og The Pitt
    Í bókinni Ástarkraftur: Undirstöður ástarfræða er lagður grunnur að ástarrannsóknum í íslensku samhengi. Fjöldi höfunda á skrif í bókinni en það eru Silja Bára Ómarsdóttir og Berglind Rós Magnúsdóttir sem ritstýra henni. Jóhannes Bjarki ræðir við Berglindi Rós og Önnu Guðrúnu Jónsdóttir sem kynnti hugtakið í doktorsritgerð sinni árið 1991.
    Brynja Hjálmsdóttir sér um sjónvarpið í Lestinni. Að þessu sinni segir hún frá tveimur HBO þáttum, I Love LA - kynslóðarportretti í borg englanna þar sem kaldhæðnin drýpur af hverju strái og The Pitt - læknadrama í Pittsburgh með kerfisádeilu.
    Og svo eru það íþróttir. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson segir okkur frá frændum okkar í Færeyjum sem unnu sinn fyrsta leik á EM um helgina, þegar þeir sigruðu Svartfellinga.
    57 min
  • Er Trump fasisti? Wikipedia 25 ára, ævisaga Twitter
    Er Trump fasisti? Af hverju gæti verið ó-gagnlegt að skilgreina hann sem slíkan? Pontus Järvstad, sagnfræðingur, er sérfræðingur í fasisma og and-fasisma, við ræðum við hann um Trump.
    Fríða Þorkelsdóttir, rithöfundur og bóksali, er með hugan við X, áður Twitter. Og hvernig það hefur breyst. Við fáum pistil frá henni.
    Jóhannes Bjarki ræðir við Salvöru Gissurardóttur, sem hefur skrifað greinar á íslenska Wikipedia í 20 ár. Í síðustu viku var þessi ristastóra, gríðarlega mikilvæga vefsíða, 25 ára gömul.
    55 min
  • Sviðsmyndir eftir Grænlandsfundinn, Hljóðriti, No Other Choice
    Sóley Kaldal ræðir mögulegar sviðsmyndir í málefnum Grænlands, en í gær fór fram fundur í Hvíta Húsinu, þar sem ráðherrar frá Danmörku og Grænlandi hittu bandaríska ráðamenn.
    Jóhannes Bjarki heimsækir sögufrægt hljóðver í Hafnarfirði, Hljóðrita, og ræðir við Jónatan Garðarsson, fyrrum útvarpsmann,
    Kolbeinn Rastrick rýnir í nýja suður-kóreska bíómynd, No Other Choice.
    55 min
  • Múr, Renee Good, bell hooks
    Við heyrum um bell hooks, bandaríska fræðikonu og rithöfund, sem skrifaði fjölda bóka, greina og blogga. Hún er þekkt fyrir feminíska, andrasíska og andkapítalíska greiningu sína á samfélagi, samböndum og menningu. Bókin hennar All about Love kom út í íslenskri þýðingu í haust, Allt um ástina, hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi. Sólveig Ásta Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur, segir frá hooks.
    Dagana 15.-18 janúar fer fram evrópska tónlistarhátíðin ESNS, eða Eurosonic, í Groeningen í Hollandi. Ísland hefur sent frá sér fulltrúa á þessa fagaðilahátíð síðan árið 2007, en að þessu sinni eru það hin margslungna Elín Hall, partýpoppsveitin Inspector Spacetime og þungarokkararnir í Múr sem koma fram.
    Við spjöllum við Kára og Árna í Múr fyrir ferðalag þeirra, ásamt því að heyra í Maríu Rut Reynisdóttur, framkvæmdastjóra Tónlistarmiðstöðvar Íslands sem er í Hollandi.
    Eirkur Örn Norðdahl, rithöfundur, flytur pistil um morðið á Renee Good.
    56 min
  • Una Þorleifsdóttir og maðurinn sem elskar tónlist
    Una Þorleifsdóttir var í hópi þeirra sem kom á fót nýju BA-námi í sviðslistum sem hét þá fræði og framkvæmd, en heitir í dag sviðshöfundabraut. Á morgun verður kynnt nýtt meistarnám í sviðslistum í Listaháskólanum og að því tilefni kom Una og ræddi sviðslistir, nám og samfélagslegt mikilvægi sviðslistaverka.
    Þórir Baldursson, tónlistarmaður, hefur unnið með fjölda þekktra tónlistarmanna. Hann á sér merkilega sögu sem Jóhann Sigmarsson sá að tilefni var til að segja í heimildarmynd. Sú mynd hefur litið dagsins ljós og heitir Maðurinn sem elskar tónlist. Jóhann og Þórir ræða við Jóhannes Bjarka.
    56 min
  • Pattstaðan í pólitíkinni í Íran
    Það hafa staðið yfir mótmæli í Íran frá því 28. desember 2025. Íranskir mótmælendur hafa verið drepnir af yfirvöldum og slökkt hefur verið á netinu, svo erfitt er að fylgjast með atburðum og staðfesta dauðsföll. Trump hefur hótað að skarast í leikinn og stjórnvöld í Íran hafa haldið því fram að Bandaríkin séu á bakvið mótmælin og séu að skapa ófriðinn í landinu. Íranir sem mótmæli séu að minnsta kosti að gera Bandaríkjunum til geðs. Við skoðum sögulega samhengið þegar kemur að afskiptum Bandaríkjanna af stjórnmálum í Íran með Kjartani Orra Þórssyni, sérfræðingi í málefnum Írans.
    54 min