Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Heimsvaldastefna Trump
    Í vikunni hefur bandaríkjaher handsamað þjóðhöfðingja Venesúela og lýst yfir áhuga sínum á því að kaupa Grænland. Við veltum fyrir okkur heimsvaldastefnu Trump og hvernig hún samræmist slagorðinu 'America First' eða Ameríka í fyrsta sæti, sem var áberandi í forsetaframboði Donalds Trump. Sveinn Máni Jóhannesson, sagnfræðingur, er sérfræðingur í sögu Bandaríkjanna.
    Kolbeinn Rastrick vegur og metur þriðju Avatar myndina úr smiðju James Cameron.
    53 min
  • Benedikt Erlingsson og Danska konan
    Á nýjársdag hófu nýjir íslenskir sjónvarpsþættir göngu sína í Ríkissjónvarpinu. Trine Dyrholm fer með aðalhlutverk í þáttunum Danska konan, handritið skrifa þeir Benedikt Erlingsson og Ólafur Egilsson, og leikstýrir Benedikt þáttunum. Benedikt er gestur Lestarinnar í dag.
    55 min
  • Leikmynd Óresteiu, bókameðmæli fyrir árið 2026
    Lestu Djöflana eftir Dostojevskí til að skilja samtímann, segir þáttastjórnandi bókaþáttarins á Rás 1. Við fáum bókameðmæli í þætti dagsins, lista af bókum til að lesa árið 2026, The First Bad Man eftir Miröndu July, Perfection eftir Vincenzo Latronico og Hlutirnir eftir Georges Perec.
    Elín Hansdóttir hannaði leikmyndina í Óresteiu sem nú er í sýningu í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Leikstjórn er í höndum Benedict Andrews og leikurinn í höndum kröftugs fimm manna leikhóps, sem fer með öll hlutverkin. Við ræðum við Elínu um þessa mögnuðu leikmynd sem er rústað og svo aftur sett saman fyrir hverja sýningu.
    52 min
  • Waleska frá Venesúela
    Við hittum Walesku, sem kom fyrst til Íslands fyrir 20 árum sem skiptinemi og ákvað svo að mennta sig hér, eignaðist svo börn og hefur búið hér síðan 2007. Við heyrum sögu einnar konu og spyrjum hana út í fréttir helgarinnar, hvernig blasir þetta við henni? Hvað segja fjölskylda hennar og vinir? Í stað þess að skoða stóru myndina einbeitum við okkur að einni sögu.
    Við heyrum svo umfjöllun frá árinu 2021 um mann að nafni Ryan Murphy, sem er í afar góðri stöðu innan bandaríska sjónvarpsbransans. Fær gífurlegt fjármagn til að framkvæma hugmyndir sínar en hefur reynst vera nokkuð mistækur. Anna Marsibil Clausen ræðir við Sigríði Jónsdóttur.
    55 min
  • Hvað var best á árinu?
    Hvað var best á árinu? Hvað var verst?
    Hvað fórstu að sjá? Hvað lastu? Hvað horfðiru á? Og hvað stóð upp úr?
    Hjá umsjónarmönnum menningarþátta, blaðamönnum, pistlahöfundum og gagnrýnendum snýst þessi tími árs um að gera menningarárið upp og búa til lista yfir það sem var best.
    Við getum kallað Lestina í dag einskonar fréttabréf með upprifjunum á hápunktum ársins. Við gerð þáttarins væri bæði leitað til pistlahöfunda og gagnrýnanda Lestarinnar og menningarblaðamanna annara miðla.
    53 min
  • Umræður um Ríkisútvarpið, gamanþættirnir Vesen: rýni
    Brynja Hjálmsdóttir horfði á nýja íslenska gamanþætti frá sónvarpi Símans sem heita Vesen og eru í leikstjórn Gauks Úlfarssonar. Jóhann Alfreð Kristinsson leikur vanhæfan helgarpabba sem safnar skuldum og klúðrar flestu sem klúðrað verður.
    Í þætti dagsins ætlum við að velta fyrir okkur Ríkisútvarpinu, við ræðum við blaðamenn, sem starfa innan rúv og utan þess. Eyrún Magnúsdóttir skrifaði nýverið grein í nýstofnaðan fjölmiðil, Gímaldið, þar sem hún leggur til hvernig nýta mætti innviði rúv betur. En við byrjum á sögulegu samhengi, prófessor emeritus, Þorbjörn Broddason rifjar upp hvers vegna almannaútvörpin voru stofnuð.
    55 min
  • Er gervigreind bóla? og rapparinn Kli9se frá Bakersfield
    Þórður Ingi Jónsson leiðir okkur um bandarísku neðanjarðarsenu rappsins. Að þessu sinni kynnumst við rappara frá Bakersfield, sem kallar sig Kli9se.
    Áður en við heyrum um líf hans í Kaliforníu ræðum við við Ásgeir Brynjar Torfason um gervigreindina og bólur í hagkerfinu. Hver eru einkenni bólu? Er gervigreind bóla og mun hún springa?
    55 min
  • Bergsveinn Birgisson byggir hlöðu á Ströndum
    Bergsveinnn Birgisson gaf á dögunum út bókina Hlaðan: Þankar til framtíðar. Hann hefur áður gefið út bækurnar Svar við bréfi Helgu, Landslag er aldrei asnalegt, Geirmundar saga heljarskinns svo eitthvað sé nefnt. Hlaðan er eins konar bréf sem hann skrifar til dóttur sinnar á meðan hann endurbyggir hlöðu afa síns á Ströndum. Á sama tíma veltir hann fyrir sér stöðu mannsins í heiminum og hvernig við skiljum okkur sjálf - og þar er það arfleifð húmanismans sem hann sækir mest í og ekki síst þýski 18. Aldar hugsuðurinn Friedrich Schiller. Hann flakkar semsagt milli heimspeki og hlöðugerðar.
    Þegar líður á bókina þá kemur að hugleiðingum um tæknina og hvernig hún er að breyta mannskilningi okkar - snjalltæki, samfélagsmiðlar og gervigreind. Þarna koma hugmyndafræðingar kísildalsins við sögu: Peter Thiel, René Girard, Marc Andreessen og fleiri.
    53 min
  • Knackered, Wicked2 (rýni), Echoes of the end
    Einn hápunkturinn á nýafstaðinni Iceland Airwaves hátíð voru tónleikar Knackered á Gauknum. Þetta er raftónlist með brotnum töktum og ýmiskonar takt-útúrdúrum, gáskafulla hljóðræna áferð. Það var svo smitandi gleði í framkomu listakonunnar Idu Schuften Jushl sem dansaði um sviðið um leið og hún sneri tökkunum - og brást við af stóískri ró þegar tæknin stöðvaði flæði tónlistarnnar tvisvar. Sömu helgi kom fyrsta plata hennar, fjögurra laga stuttskífan FYI. Við fáum Idu í heimsókn í Lestina.
    Það er komið ár frá því að litríka norna-söngvamyndin Wicked sló í gegn, hún var byggð á söngleik sem var byggður á skáldsögu sem var byggð á bíómynd sem var byggð á skáldsögu. Og nú er komin framhaldsmynd Wicked: for good í leikstjórn Jon M. Chu með þeim Ariönu Grande og Cynthiu Erivo í aðalhlutverkum. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina.
    Ævintýraleikurinn Echoes of the end kom út í ágúst, en íslenska tölvuleikjafyrirtækið Myrkur games hafa unnið að honum frá árinu 2016. Við ræðum við Halldór Snæ Kristjánsson framkvæmdastjóra fyrirtækisins um leikinn, dómana og viðbrögðin.
    56 min