Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Nýjar víddir opnast í Sinners, hýdra og nasistar,
    Við rýnum í það hvernig mismunandi tímavíddir renna saman í vampíru-tónlistar-períóðu-hryllingsmyndinni Sinners eftir Ryan Coogler, sem er tilnefnd til metfjölda Óskarsverðlauna,16 talsins. Chanel Björk Sturludóttir spjallar við okkur um kynþáttapólitík og afrófútúrisma í Sinners.
    Eiríkur Örn Norðdahl sendir okkur pistil, að þessu sinni um grísku goðsagnaveruna Hydru, hrekkjusvín og dönsku og sænsku aðferðina við að berjast gegn nasisma.
    Við heyrum svo brot úr viðtali Lóu Bjarkar við Karl Ágúst Þorbergsson frá því í fyrra, en þá sagði Karl frá því af hverju hann hætti að starfa í leikhúsi og fór að smíða.
    53 min
  • Lestin er í Epstein-skjölunum + Marty Supreme og Danska konan
    Epstein-skjölin voru gerð aðgengileg af bandaríska dómsmálaráðuneytinu fyrir helgi. Það eru rúmlega þrjár milljónir nýrra skjala tengd auðkýfingnum og barnaníðingnum Jeffrey Epstein. Nafn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta kemur fram minnst 4.500 sinnum í þessum skjólum. Fríða Þorkelsdóttir, bókmenntafræðingur er reglulegur gestur í Lestinni þar sem hún flytur fréttir af netinu. Og eitt af því sem vakti athygli Fríðu í Epstein-skjölunum er tenging við spjallborðið 4chan.
    Borðtennis er góð íþrótt. En er hægt að gera taugatrekkjandi mynd um slíkt ping pong? Leikstjórin Josh Safdie og leikarinn Timothée Chalamet hafa gert heiðarlega tilraun með myndinni Marty Supreme. Kolbeinn Rastrick kvikmyndagagnrýnandi segir okkur hvernig til tókst.
    Við ræðum svo sjónvarpsþættina Danska Konan eftir Benedikt Erlingsson. Þar leikur stórleikkonan Trine Dyrholm leyniþjónustukonu, hjúkrunarfræðing og hefndarengil sem hefur komið sér fyrir í venjulegri blokk í Hlíðunum til að bjarga heiminum. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.
    58 min
  • Minningar um Sókrates, Grammy-verðlaunahafinn Laufey
    Íslendingar komust ekki á verðlaunapalla á Evrópumeistaramótina í handbolta sem lauk í gær en Grammy-verðlaunin voru haldin í gærkvöldi, og þar var Íslendingur sem sigraði. Laufey Lín og platan hennar Matter of Time var valin besta platan í flokki hefðbundinnar dægurtónlistar. Laufey vakti athygli fyrir þakkarræðu um tónlistarkennslu.
    Á fimmtu öld fyrir krist var uppi í Grikklandi maður sem er í hugum flestra hálfgerð frummynd heimspekingsins. Sókrates var tötrum klæddur meinlætamaður sem hélt til á torgum Aþenu og tók þar fólk tali. Hann spurði það spurninga um hluti sem það átti að vita, en sneri því í hring, og sannfærði það fljótt um að í raun vissi það lítið sem ekkert. Hann var kaldhæðinn og ögrandi talaði um frummyndir og hellakenningar, og var að lokum dæmdur til dauða af samborgurum sínum. Þessa persónu þekkjum við Íslendingar fyrst og fremst í lýsingu nemanda hans Platóns, En Platón er ekki sá eini sem skrifaði um Sókrates. Nú í haust kom út í fyrsta skipti á íslensku, bók sem nefnist Minningar um Sókrates eftir forngríska sagnaritarann Xenófón. Við ræðum við Hjalta Snæ Ægisson, sem þýðir og gefur út bókina.
    56 min
  • Golden popplagakrufning, draumráðningar fyrir nasista, Trump-Kennedy gervisíða
    Við ætlum að kryfja eitt vinsælasta popplag síðasta árs, sem var á dögunum tilnefnt til Óskarsverðlaunanna sem besta lagið í kvikmynd. Tónlistarmaðurinn og poppmeinafræðingur Lestarinnar Friðrik Margrétar Guðmundsson rýnir með okkur í Golden sem kemur fyrir í vinsælu Netflix-teiknimyndinni Kpop Demon Hunters.
    Nú á dögunum var haldin ráðstefna gegn gyðingahatri í Ísrael. Þangað var boðið helstu forkólfum hægristjórnmála í Evrópu, meðal annars meðlimum í flokkum sem eiga rætur sínar að rekja til nasismans. Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl fjallar um einkennilegar draumfarir eins þessara stjórnmálamanna, Svíþjóðardemókratanum Jimmie Åkesson.
    Í kvöld verður heimildarmyndin Melania, sem fjallar um forsetafrú Bandaríkjanna Melania Trump, frumsýnd í menningarmiðstöðinni sem áður hét Kennedy Center, í Washington DC. Við förum yfir umdeilda nafnabreytingu og gabbvefsíðu stofnunarinnar.
    59 min
  • Doktor Slúður og samheldni í Minneapolis
    Slúður getur verið góður veruleikaflótti á erfiðum tímum. Anna Marsý spjallar við Doktor slúður, Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur - doktor í félagsfræði - um tilgang og virkni slúðursagna.
    Við hringjum svo til Minneapolis í Bandaríkjunum sem er orðið að hálfgerðri púðurtunnu eftir tvö morð útlendingaeftirlitsins ICE á almennum borgurum á undanförnum vikum. Við ræðum við Íslending sem býr i borginni, Karvel Ágúst Schram, um mótmæli og samstöðu borgarbúa.
    56 min
  • Nýr samfélagsmiðill og tónlistin í Ormstungu
    Hvers vegna að búa til nýjan samfélagsmiðil? Hvað er að hinum? Og hvað er að netinu? Una Schram ræðir við stofnanda Perfectly Imperfect, samfélagsmiðils sem ætlar sér að bjarga okkur frá netinu.
    Söngleikurinn Ormstunga var frumsýndur síðastliðinn laugardag í Þjóðleikhúsinu. Sýningin, sem er byggð á Gunnlaugs sögu Ormstungu, varð upphaflega til sem nemendaleikrit Hafsteins Níelssonar. Hafsteinn og Óliver Þorsteinsson, handrits-, texta-, og tónlistarhöfundar leikritsins, ræddu við Jóhannes Bjarka Bjarkason um tónlistina í verkinu og líkindin milli kveðskapar og rapps.
    Og svo heyrum við pistil eftir Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur sem fjallar um fyrstu reglubók handboltans og föður íþróttarinnar, hinn danska Holger Nielsen.
    55 min