Kosmískt skítamix er nýjasta afurð vináttu og listræns samstarfs Hljómsveitarinnar Evu. Hana skipa þær Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasdóttir. Þær hlutu í fyrsta sinn styrk úr sviðslistasjóði fyrir einhverjum árum og sökum veikinda og væntinga um að bjarga heiminum með sviðslistaverki dróst á langinn að búa verkið til. En nú er það tilbúið, og er í sýningu í Tjarnarbíó og hefur hlotið frábærar viðtökur.
Rapparinn og pródúsentinn Ízleifur er við það að gefa út sína þriðju plötu sem ber titilinn 100&einn. Jóhannes Bjarki ræðir við hann um skapandi ferlið og við fáum að heyra forsmekk af því sem koma skal.