Leynifélagið

Leynifélagið

By
Download on the App Store

Leynifélagið episodes

  • Eldgos
    Eldgosinu í Holuhrauni virðist hvergi nærri að ljúka. Leynifélaginn og Vasaljósið Katla hitti Kristínu Jónsdóttur eldfjallafræðing að máli og fékk að vita ýmislegt um eldgos, eldfjöll og hvað er líkt með eldgosi og gubbupest. Ný framhaldssaga hefur síðan göngu sína en það er sagan Litlu greyin eftir Guðrúnu Helgadóttur, Baldur Trausti Hreinsson les.
    30 min
  • Sveppi
    Brynhildur ræðir við Sveppa um nýjustu myndina hans og sitthvað fleira. Leikhópurinn Lotta heldur áfram að flytja framhaldsleikritið um Hróa hött. 5.hluti.
    30 min
  • Ronja ræningjadóttir
    Leynifélagarnir og Vasaljósin Mira Kamallakharan og Katla Njálsdóttir ræða við leikarana Ara Pál Karlsson og Maríu Ólafsdóttur um leikritið Ronja ræningjadóttir sem sýnt er hjá leikfélagi Mosfellsbæjar.
    Framhaldsleikritið Hrói höttur í flutningi Leikhópsins Lottu er á sínum stað, 4.hluti.
    31 min
  • Bræður skrifa bækur
    Leynifélaginn og Vasaljósið Salka Gústafsdóttir ræðir við bræðurna Ævar Þór og Guðna Líndal Benediktssyni um nýútkomnar bækur þeirra. Leikhópurinn Lotta flytur 3.hluta framhaldsleikritsins um Hróa hött.
    30 min
  • Bestu vinir
    Vinátta er á dagskrá fundarins. Spjallað er við vinkonurnar Maríu og Diljá og Kristófer, Gígju og Bjarna í frístundaheimilinu Töfrasel í Árbæ. Einnig eru systkinin Bergrún og Skarphéðinn heimsótt.
    Fluttu er 2.hluti leikritsins Hrói Höttur í flutningi Leikhópsins Lottu.
    29 min
  • Ofurhetjur
    Súperman, köngulóarmaðurinn, Batman og fleiri hetjur eru á dagskrá fundarins.
    Framhaldsleikritið Hrói Höttur hefst. 1.hluti.
    31 min