Á fundinum í kvöld segir fréttaritari Leynifélagsins á Akureyri, Brynjólfur Skúlason, frá leikjanámskeiði sem haldið er árlega í Hlöðunni á Litla-Garði.
Fjallað er um Mývatn í þættinum og ýmis fróðleikur tíndur til. Rætt er við systurnar Völu Birnu og Sigrúnu Ástu sem koma oft í heimsókn á Mývatn og þá les Ævar vísindamaður um Dimmuborgir úr bók sinni Umhverfis Ísland á 30 tilraunum.