Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Lífið með ADHD er hlaðvarp ADHD samtakanna. Í hlaðvarpinu er fjallað um málefni tengd ADHD með ýmsum hætti. Góðir gestir koma í spjall og miðla af reynslu sinni og þekkingu, og ekki síst af lífinu me... more
FAQs about Lífið með ADHD:How many episodes does Lífið með ADHD have?The podcast currently has 14 episodes available.
March 03, 2023Jóhanna Birna - Háskólastúdent á framabrautJóhanna Birna Bjartmarsdóttir hefur á síðustu misserum vakið þónokkra athygli en hún hélt nýlega fyrirlestra á ráðstefnu BUGL og málþingi ÖBÍ. Í fjórtánda þætti Lífið með ADHD settist hún niður með Bóasi Valdórssyni og þau töluðum um uppvaxtarár hennar og þá baráttu sem hún hefur háð til þess að komast á þann stað sem hún er nú á og þá sigra sem hún hefur náð og hvernig sýn hennar er á menntakerfið. Upptöku af fyrirlestrum hennar og greinar um efnið er að finna á heimasíðu Jóhönnu; https://www.johannabirnabjartmars.com/"Viðtal við Jóhönnu Birnu á HringbrautViðtal við Jóhönnu Birnu á mbl.is ...more1h 25minPlay
January 12, 2023Sólveig Ásgrímsdóttir - ADHD og eldra fólkSólveig Ásgrímsdóttir, sálfræðingur settist niður með Guðna Rúnari Jónassyni verkefnastjóra ADHD samtakanna og þau ræddu málefni sem eru Sólveigu nærri en það er staða eldri borgara með ADHD og athuganir sem hún hefur verið að fást við tengt efninu....more36minPlay
November 01, 2022Anna Tara AndrésdóttirÍ þættinum í dag kom Anna Tara Andrésdóttir doktorsnemi í viðtal og fjallaði vítt og breytt um ADHD, rannsóknir og um ýmislegt praktískt því tengdu. https://annatara.is/ Byggja skoðanir fólks á ADHD lyfjum á rannsóknum?Fólk með ADHD tvöfallt líklegra til að skilja„Áunninn athyglisbrestur er ekki til“...more57minPlay
May 21, 2022ADHD, teikningar og daglegt líf Í þættinum í dag hitti ég Ara. H. G. Yates teiknar og rithöfund. Við spjölluðum m.a. um það hvernig það kom til að hann skrifaði bók með ungum vini sínum um dag í lífi drengs með ADHD. Einnig spjölluðum við um hvernig það kom til að Ari varð teiknari og ýmsar hliðar af ADHD í daglegu lífi. Elli - Dagur í lífi drengs með ADHD...more1h 2minPlay
December 16, 2021Gunnar HelgasonGunnar Helgason barnabókarithöfund og leikari kom í spjall og sagði okkur frá mömmu sinni, facebook rannsóknum sínum og nýju bókinni sinni sem heitir Alexander Daníel Hermann Dawidsson (ADHD): Bannað að eyðileggja sem kom út núna fyrir jólin og fjallar um Alexander Daníel Hermann Dawidsson sem er með ADHD en það er allt í lagi - nema þegar lífið tekur upp á því að fara á hvolf. Bannað að eyðileggja er spennandi saga um Alexander og Sóleyju bekkjarsystur hans, litríku fjölskyldurnar þeirra, mömmuna sem er farin og kennarann sem ætti ekki að fá að vinna með börnum....more35minPlay
November 12, 2021Glowie - tónlistarkonaSara Pétursdóttir, betur þekkt undir listamannanafninu Glowie settist niður með Bóas Valdórssyni og ræddu hennar reynslu af því að alast upp með ADHD. Glowie gaf út í síðastliðnum mánuði nýtt lag og myndband sem hún tileinkaði ADHD sem hún kallar sinn ofurkraft. Ekki nóg með að hafa búið til þetta lag þá leikstýrði hún einnig myndbandinu sjálf auk þess að skrifa grein í tónlistartímaritið Clash Magazine og búa til myndasögu um sína reynslu. 1. https://open.spotify.com/track/1yGxXegHokxaCMkgVjcNco?si=4d68987a9ee14bcc 2. https://www.youtube.com/watch?v=TFCkfngAMM4 3. https://genius.com/Glowie-adhd-lyrics 4. https://www.facebook.com/photo/?fbid=307731161164207&set=pcb.307734931163830...more57minPlay
August 20, 2021Björn Þorfinnsson, skákmaður og ritstjóriLífið með ADHD kemur úr sumarfríi með glænýjan þátt og viðtal við Björn Þorfinnsson skákmann og ritstjóra DV. Björn fékk greiningu á fullorðinsaldri og talar meðal annars um það hvernig hann telur ADHD hafa verið honum styrkleiki í skákheimiinum....more33minPlay
June 07, 2021Bóas Valdórsson nýr meðlimur hlaðvarpsinsAð þessu sinni í hlaðvarpsþættinum Lífið með ADHD verður örlítið óhefðbundið spjall milli núverandi og nýs meðlims, og þáttastjórnanda, hlaðvarpsins. Bóas Valdórsson hefur komið að ADHD á mörgum sviðum, unnið með börnum og unglingum og var meðal annars einn af stofnendum sumarbúða fyrir börn með ADHD. Hann gengur nú til liðs við Karitas í þáttunum og spjalla þau um lífið með ADHD og framhald þáttanna....more38minPlay
April 16, 2021Móðir barns með ADHDErfiðleikar barns með ADHD hafa ekki einungis áhrif á það heldur einnig umhverfið sem barnið lifir og hrærist í dags daglega. Í þessum þætti fáum við móður barns með ADHD sem glímir m.a. við það að beita ofbeldi. Við heyrum hennar upplifun og reynslu á því að vera móðir í þessum aðstæðum, samskipti við skólayfirvöld og hvað mætti betur fara....more49minPlay
November 09, 2020Hildur Kristín StefánsdóttirÍ þessum þætti af Lífið með ADHD mætir Hildur Kristín Stefánsdóttir tónlistarkona, sem hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu árin. Hún fékk greiningu á fullorðinsaldri og við spjöllum um hennar reynslu og upplifanir....more32minPlay
FAQs about Lífið með ADHD:How many episodes does Lífið með ADHD have?The podcast currently has 14 episodes available.