Tengivagninn

Lífsblómið, Mandela, vísindaskáldskapur, strákar og Cher


Listen Later

Tengivagninn, miðvikudagurinn 18. júlí 2018
Í dag er 18. júlí 2018 og öld liðin síðan Sambandslögin voru undirrituð og Ísland varð í kjölfarið fullvalda ríki. Af þessu tilefni var sýningin Lífsblómið opnuð í Listasafni Íslands. Við röltum um sýninguna með Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur, sýningarstjóra, og finnum þar ýmsa forvitnilega muni sem sýna fullveldið í óvæntu ljósi.
Í dag eru líka hundrað ár liðin frá fæðingu Nelsons Mandela, við heiðrum minningu þessa merka manns með því að heyra brot úr sjálfsævisögu hans, Leiðinni til frelsis, sem kom út árið 1996, í þýðingu Jóns Þ. Þór og Elínar Guðmundsdóttur. Eiríkur Guðmundsson les.
Nanna Hlín Halldórsdóttir flytur okkur pistil og í dag fjallar hún um skapandi réttlæti í feminískum vísindaskáldskap Octaviu Butler, sem eins og Nelson Mandela lét að sér kveða í réttindabaráttu svartra, sem og annarra raunar, með tækjum og tólum vísindaskáldskaparins.
Leiðin að betri heimi er mörgum hugleikinn, jafnrétti kynjanna þar á meðal, en Þórður Jörundsson, vöruhönnuður og tónlistarmaður, kemur til okkar og segir okkur frá starfi sínu í félagsmiðstöðvum, þar sem hann hefur unnið með ungum mönnum. Hugmyndin um „eitraða karlmennsku“ hvatti hann áfram í þessu verkefni.
Við spjöllum aðeins um poppgyðjuna Cher, sem fer með hlutverk í nýju ABBA myndinni sem frumsýnd var í Lundúnum í gær. Hún opinberaði einnig í gær að hún ætlar að gefa út plötu sem inniheldur einungis ABBA-ábreiður.
Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Kristján Guðjónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

TengivagninnBy RÚV