Lifum lengur

Lifum lengur

By Helga ArnardóttirHealth & Fitness
Download on the App Store

Lifum lengur episodes

  • #3 Guðmundur Freyr Jóhannsson lyf-og bráðalæknir. Ketó og lágkolvetnamataræði við sykursýki 2.
    Hvernig er hægt að snúa við einkennum efnaskiptaheilkennis og sykursýki 2 með breyttu mataræði og lífstíl? Hentar ketó og lágkolvetnamataræði öllum og hvað segja læknar og rannsóknir um áhrif þessara matarkúra? Guðmundur Freyr Jóhannsson lyf-og bráðalæknir hefur talað fyrir breyttu mataræði á Íslandi í nokkur ár og hvatt til þess að fólk endurskoði slæmar matar- og lífstílsvenjur sínar í því augnamiði að ná betri heilsu. Sykursýki 2 sé að verða heimsfaraldur og fæstir þekki einkenni forstigs sjúkdómsins sem geti verið óljós í fyrstu. Helga Arnardóttir ræðir við Guðmund um jákvæð áhrif ketó og lágkolvetnamataræðis á sykursýki 2 og efnaskiptaheilkenni og hvað rannsóknir sýna. Hann talar einnig um allar mýturnar um ketókúrinn og aðra áhrifaþætti en mataræði sem geta aukið insúlínviðnám og leitt til efnaskiptaheilkennis ef slæmt ástand varir lengi.
    Eldum rétt styður gerð hlaðvarpsins Lifum lengur.
    Hægt er að panta matarpakka á www.eldumrett.is
    Afgreiðsla: Nýbýlavegur 16, 200 Kópavogur
    Sími: 571-1855
    58 min
  • #2 Margrét Guðmundsdóttir - Konan sem át fíl og grenntist samt. Lágkolvetnamataræði og ofþyngd.
    Konan sem át fíl og grenntist (samt) er nafn á bók sem Margrét Guðmundsdóttir málfræðingur gaf út árið 2018. Hún fjallar um hvernig Margrét náði að létta sig um þriðjunginn af sjálfri sér eftir að hafa átt í samfelldri baráttu við offitu í fimmtán ár. Eftir að hafa stöðugt reynt að borða lítið, fitusnautt og hollt, með litlum árangri, lagðist hún yfir umfjöllun vísindamanna á netinu um áhrif sykurs og einfaldra kolvetna á líkamann. Hún ákvað að gera róttækar breytingar á mataræðinu. Hún byrjaði daginn fyrir verslunarmannahelgina árið 2016, en steig skrefið til fulls sjö mánuðum síðar. Þá lét árangurinn ekki á sér standa. Í fyrsta skipti léttist Margrét því að lystin minnkaði með nýju mataræði. Allt í einu var það hægt sem gekk ekki áður - að borða lítið. Margrét er í kjörþyngd í dag og fullyrðir að það sé vel hægt að gera sér glaðan dag án sykurs.
    Eldum rétt styður gerð þessa hljóðvarps. Hægt er að panta matarpakka á www.eldumrett.is
    Afgreiðsla: Nýbýlavegur 16, 200 Kópavogur
    Skrifstofur: Smiðjuvegur 4b, 200 Kópavogur
    Sími: 571-1855
    1 hr
  • #1 Héðinn Unnsteinsson: Andleg heilsa. Áhrif samfélagsmiðlanotkunar á líðan. Lífsorðin 14.
    Hvað þurfum við að gera til að viðhalda góðri andlegri heilsu og almennri vellíðan? Héðinn Unnsteinsson stefnumótunarsérfræðingur hefur fjallað um geðheilbrigðismál í tuttugu og fimm ár og deilt sinni reynslu af geðheilbrigði og geðhvörfum. Hann skrifaði bókina Vertu úlfur árið 2008 þar sem hann ræddi opinskátt um geðsveiflur sem hann fór í gegnum þá og hvernig hann vann sig út úr þeirri líðan með því að setja sér nokkur viðmið til að ná heilsu á ný. Hann kallar þau lífsorðin 14. Héðinn segir okkur öll vera ólík og mismunandi geðnæm. Mikilvægast sé þó að passa ávallt upp á svefninn, gæta að mataræðinu, neyta ekki eiturlyfja og annarra vímugjafa í viðkvæmu ástandi. Hann hvetur fólk einnig til að tileinka sér gjörhygli og núvitund með hugleiðslu til að þekkja og vinna betur með hugann. Að vera í punktinum er hans lykilsetning sem hann ræðir meðal annars um í þessu viðtali.
    Eldum rétt styrkir gerð hljóðvarpsins Lifum lengur. Hægt er að panta tilbúna matarpakka í gegnum vefsíðu þeirra www.eldumrett.is eða hafa samband.
    Afgreiðsla: Nýbýlavegur 16, 200 Kópavogur
    Skrifstofur: Smiðjuvegur 4b, 200 Kópavogur
    Sími: 571-1855
    30 min

About Lifum lengur

From the publisher's feed

Hlaðvarpið Lifum lengur er sjálfstætt framhald af samnefndum sjónvarpsþáttum sem sýndir eru á Sjónvarpi Símans Premium. Þeir fjalla um lykilstoðir heilsu: næringu, hreyfingu, andlega heilsu og svefn.…