
Sign up to save your podcasts
Or


Valdi og Össi draga fram krumpugallann, setja svitaband á ennið og bíta í neðri vör. Það er áttan.
Valdimar og Örn eru staddir á Stöðvarfirði í upptökusessjóni og fóru í ríkið á Fáskrúðsfirði og keyptu sér besta bjórinn sem var í boði þar. Trommuleikarinn Þorvaldur Halldórsson er sérstakur gestur.
Þó orðaforðinn hjá Valdimari og Erni sé ekki ríkur þá hafa þeir nú samt gaman af góðum íslenskum orðum.
Valdi og Össi elska góð gítarsóló. Það er vindur í hári og miklar munngeiflur í þessum þætti því nú taka strákarnir fyrir topp 10 gítarsóló.
Á Íslandi eru margar ofboðslega fínar sundlaugar. Valdi og Össi reyna í þessum þætti að koma því til skila hvaða sundlaugar þeim finnst vera bestar. Mikill guslugangur í þessum þætti.
Valdimar og Örn eru mættir aftur eldhressir eftir sumarfrí og í þetta skiptið ætla þeir að vera með læti og ræða um meðlæti.
Góð lög geta gert góðar bíómyndir ennþá betri. Hér eru okkar uppáhalds lög í bíómyndum.
From the publisher's feed