Litli mallakúturinn

Litli mallakúturinn

By Gunnar ÁsgeirssonHealth & Fitness
Download on the App Store

Litli mallakúturinn episodes

  • #26 - Baldvin Þorláksson - Magahjáveitan sem breyttist í martröð

    Það sem átti að vera einföld og hversdagsleg magahjáveituaðgerð á einkasjúkrahúsi í Noregi breyttist í lífshættulega martröð.

    Viðmælandi þáttarins er Akureyringurinn Baldvin Þorláksson, 69 ára fyrrverandi skipstjóri sem hefur búið í Noregi í aldarfjórðung. Eftir ævilanga baráttu við kílóin ákvað hann að fjármagna hjáveituaðgerð sjálfur. Undirbúningurinn var af skornum skammti — aðeins eitt stutt símtal á meðan hann stóð úti á bensínstöð.

    En á skurðarborðinu fór allt á versta veg. Baldvin vaknaði í sjúkraþyrlu á leið á háskólasjúkrahúsið í Osló með 3,7 lítra af blóði í kviðarholinu. Við tók tíu daga meðvitundarleysi í öndunarvél, sjö enduraðgerðir, blóðtappar, afturköllun á hjáveitunni og 55 daga samfelld spítalavist.

    Í þættinum ræðir Baldvin opinskátt um líkamlega og andlega áfallið, skort á eftirfylgni, lífstíðarafleiðingarnar sem fylgja því að missa hringvöðvann milli maga og vélinda, og hvers vegna einkavæðing í skurðlækningum má aldrei verða til þess að afsláttur sé gefinn af öryggi og fræðslu.

    14 min
  • #25 - Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar - Þriðji hluti - 11 mánuðir frá hjáveitu

    Við höldum áfram að fylgjast með Önnu Margréti Jakobsdóttir Hjarðar. Þetta er þriðja viðtalið sem ég tek við hana og hér segir hún okkur frá því hvernig lífið er í dag, 11 mánuðum frá magahjáveituaðgerð.

    Þegar ég spyr hana um stærsta sigurinn stendur ekki á svörunum. Hann snýst hvorki um þyngdina né fatastærðir – heldur um hugarfarið og lífsgæðin.

    Einlægt, opinskátt og hvetjandi samtal um nýtt líf.


    💬 Hafðu samband:

    • Netfang: [email protected]

    • Gunnar á Instagram: @gunnsi.is (ef þig langar að deila þinni sögu í þættinum)

    • Anna Margrét á Instagram: @annamhjardar

    51 min
  • #24 Hrafnhildur Valgarðsdóttir - Hjáveita - "Ég þurfti að sýna mér meiri mildi"

    Í þessum 24. þætti ræði ég við Hrafnhildi Valgarðsdóttur, deildarstjóra í Laugalandsskóla á Hellu, sem fór í magahjáveitu fyrir níu árum.

    Hrafnhildur deilir því hvernig gamlar lífsreynslur og áföll mótuðu sjálfsmyndina og hvernig baráttan við kílóin tók óvænta stefnu eftir Long-COVID veikindi. Við ræðum opinskátt um „púkann í hausnum“, notkun Wegovy til að finna matarró og mikilvægi þess að mæta sjálfum sér af mildi frekar en hörku. Hrafnhildur segir einnig frá starfi sínu fyrir SFO og baráttunni fyrir bættum skilningi á offitu sem sjúkdómi.

    53 min
  • #23 Hjalti G. Hjartarson - Mini-Hjáveita - "Þú ert bara beisiklí að ryðga að innan"

    Hjalti G. Hjartarson ólst upp við mikla hreyfingu og líkamlega getu, en þegar hann hóf háskólanám breyttist allt. Hreyfingin féll út, lífstíllinn tók aðra stefnu og áherslan færðist alfarið yfir á námið. Það sem gerir sögu hans enn áhugaverðari er bakgrunnur hans: pabbi hans er hjartalæknir, mamma hans taugalæknir og hann sjálfur með sterkan íþróttagrunn. Hjalti hafði því öll verkfæri til að lifa heilbrigðu lífi – en lífið gerist, og stundum fjarlægjumst við það sem við vitum að er gott fyrir okkur.

    1 hr 7 min
  • #22 - Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar - Annar hluti - Hjáveita

    Við höldum áfram að fylgjast með ferðalagi Önnu Margrétar Jakobsdóttur Hjarðar.

    Þegar við kvöddum hana síðast voru aðeins tíu dagar í að hún færi í magahjáveitu í Svíþjóð - þegar hér er komið við sögu er rúmur mánuður frá aðgerð og hér segir Anna okkur frá því hvernig aðgerðin sjálf gekk fyrir sig og hvernig henni líður í dag.

    Við fáum að heyra af lífinu á sjúkrahúsinu, fyrstu dagana eftir aðgerð og fyrstu skrefunum inn í þetta nýja líf sem hún er að byrja að byggja upp.

    51 min
  • #21 - Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar - Fyrsti hluti - Hjáveita "Já, og er það þess vegna sem þú ert að troða svona ofan í þig?"

    Í þessum þætti kynni kynnumst við Önnu Margréti Jakobsdóttur Hjarðar – sveitastelpu frá Borgarfirði eystra.

    Anna Margrét stendur nú á stórum tímamótum í lífi sínu, því á næstu dögum fer hún í hjáveituaðgerð í Svíþjóð.

    Áratuga reynsla af fordómum innan heilbrigðiskerfisins hefur kennt henni að standa með sjálfri sér – en það var ekki fyrr en hún hitti Erlu Gerði Sveinsdóttur hjá Mín besta heilsa að hún fékk loks skýringar á því hvers vegna hún hafði ekki getað létt sig.

    Í þessum fyrsta þætti fáum við að heyra hennar sögu – allt frá æsku í sveitinni og til dagsins í dag, en þegar þetta viðtal er tekið upp eru aðeins nokkrir dagar í aðgerð.

    Við munum halda áfram að fylgjast með Önnu Margréti og hennar ferli og er planið að spjalla við hana aftur þegar um mánuður er liðinn frá aðgerðinni.

    37 min
  • #20 - Erla Gerður Sveinsdóttir - Sérfræðilæknir við meðferð offitu

    Erla Gerður Sveinsdóttir er viðmælandi í þessum tuttugasta þætti.

    En hún hefur lengi brunnið fyrir málefnum um offitu og hefur meðal annars starfað í offituteyminu á Reykjalundi, var ein af stofnendum Heilsuborgar og nú síðustu ár hefur hún starfað hjá Mín besta heilsa.

    Umræðuefni þessa þáttar er meðal annars aðgerðirnar frá sjónarhóli læknis. Og svo ræðum við einnig um þessi lyf við offitu en ávísun þessara lyfja hefur stóraukist á síðustu árum.

    1 hr 20 min
  • #19 - Katrín Alexandra Helgudóttir - Hjáveita "Ég vaknaði og ég hef aldrei á ævinni upplifað annan eins sársauka"

    Katrín Alexandra Helgudóttir (Kata) starfar sem sjúkraliði á bráðamóttökuni hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

    Hún segir okkur frá hennar vegferð að betra lífi. Það var í apríl 2023 sem hún gekkst undir hjáveitu á Klíníkinni.

    Kata hefur verið opin með ferlið sitt og segir frá reynslu sinni og skrásetur ferlið á Instagram. En þar er hún undir notendanafninu @hjaveitu_lifid

    43 min
  • #18 Konráð Logi Fossdal - Mini-Hjáveita - "Ég fann það bara, ég gat ekkert hlaupið á eftir þeim"

    Konráð Logi Fossdal er Akureyringur í húð og hár. Árið 2022 fór hann í mini-hjáveitu í gegnum klíníkina. Ákvörðunina tók hann eftir að hann eignaðist börn og sá fyrir sér að líkamlegt ástand þyrfti að vera betra til þess að geta sinnt og leikið við börnin.

    Í þættinum ræðum við einnig kæfisvefn en Konni greindist með eins alvarlegan kæfisvefn og hann getur orðið.

    42 min
  • #17 Rafn Heiðar Ingólfsson - Hjáveita - "Púkinn á öxlinni á mér sagði mér það að ef ég færi nú í þessa aðgerð að þá yrði nú lífið bara miklu betra"

    Rafn Heiðar Ingólfsson, matreiðslumeistari, eða Rabbi eins og hann er gjarnan kallaður ólst upp á Fáskrúðsfirði hjá ungri einstæðri móður.

    Árið 2008 flutti hann til Danmerkur og var á mjög slæmum stað andlega og taldi ástæðuna fyrir þessari vanlíðan vera ofþyngdin og var viss um að þegar hann væri orðinn grannur yrði allt betra. Árið 2011 gekkst hann undir magahjáveitu í gegnum danska heilbrigðiskerfið. Rabbi segir okkur frá því hvernig það var að fara í gegnum ferlið í Danmörku og ræðir opinskátt um baráttuna við fíknina.

    49 min

About Litli mallakúturinn

From the publisher's feed

Litli mallakúturinn eru hlaðvarpsþættir í umsjón Gunnars Ásgeirssonar þar sem rætt er við fólk sem hefur gengist undir aðgerðir á maga vegna offitu (Hjáveita, ermi eða magaband)