Tengivagninn

Ljóðaganga með Múkk, sumarópera, SÍM og Geislagarður


Listen Later

Kristján Guðjónsson tekur yfir seinni hluta Tengivagnsins í næstu viku. Þá verður spilað viðtal í fjórum hlutum við Jóhann Pál Árnason heimspeking og félagsfræðing. Hann kom og sagði frá seríunni.
Næstu helgi verður í fyrsta sinn sett á svið ópera á sumartónleikum í Skálholti. Við heyrum frá listrænum stjórnanda hátíðarinnar, Benedikti Kristjánssyni.
Helmingur ljóðagengisins Múkk heldur af stað í Ljóðagöngu frá Borgarbókasafninu í Grófinni í kvöld. Tengivagninn hitti þær Karólínu og Önnu Rós á safninu og fór svo í nokkrar gallery heimsóknir.
Samsýningin Leiðir yfir land stendur yfir í sýningarsal SÍM og Geislagarð er að finna Y gallery í Kópavogi.
Tónlist spiluð í þætti:
Black Country, New Road - Besties
Saya Grey - Lie Down
Erika De Casier - Delusion
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

TengivagninnBy RÚV