
Sign up to save your podcasts
Or


Tónlistarmaðurinn Frumburður mætti í frábært spjall um sína lokaplötu - Is This It eftir The Strokes. Einnig var rætt um sköpunarferli nýju plötu Frumburðar - Helgi á Prikinu, afhverju Alex Turner vildi bara vera einn af meðlimum Strokes og framtíð menningarinnar í miðborginni.
Leikkonan Kristín Þorsteinsdóttir mætti í frábært spjall um plötuna Samferða eftir tónlistarkonuna Róshildi. Einnig var rætt um leiklistina, lífið í Köben og margt fleira.
Leikkonan Jenný Guðmundsdóttir mætti í frábært spjall um Laufeyju Lín, lífið og tilveruna í Bandaríkjunum og margt fleira.
Jóhannes Óli, húsvíkingur og forseti Ungs jafnaðarfólks mætti eiturhress í stúdíóið þar sem við ræddum hans lokaplötu, appelsínugulu plötuna eftir Ljótu Hálfvitana. Farið var um víðan völl þar sem var m.a. snert á sveitaböllum, græna hattinum og bestu leiðinni til að smygla sér inn á Sjallann.
Fyrsti sóló þátturinn tekinn upp í airpodsgæðum.
Drake á móti Kendrick kryfjað í þaula, ferlarnir þeirra bornir saman og afhverju hata allir hinir rappararnir Drake svona mikið?
Frábært spjall við tónlistarkonuna Birnu Eyfjörð um hennar lokaplötu The Art Of Loving eftir Oliviu Dean og margt fleira.
Fjörugt spjall við frumkvöðulinn og hlaðvarparann Friðrik Snæ um hans lokaplötu „Í Miðjum Kjarnorkuvetri” eftir Jóa Pé og Króla
Leikarinn Jón Gunnar Vopnfjörð mætti hress í stúdíóið þar sem við tækluðum hans lokaplötu - The Great Divide eftir Noah Kahan.
Yndislegt spjall við söngkonuna kris um hennar lokaplötu “Who’s the Clown” eftir Audrey Hobert
Frábær þáttur með kvikmyndagerðarkonunni og gagnrýnandanum Jónu Grétu. Við ræddum hennar lokaplötu sem er Bushido eftir listamanninn Birni. Fórum um víðan völl í rappsögu þjóðarinnar og hvernig platan skaut Birni ennþá lengra upp á stjörnuhiminn.
From the publisher's feed