Sigurður Árni Reynisson var í mörg ár lögreglumaður og í sérsveit Ríkislögreglustjóra. Í dag er hann kennari 12 ára drengja við Lágafellsskóla.
Árið 2016 missti hann starfið í lögreglunni þegar hann beitti fanga ofbeldi. Sigurður var dæmur í skilorðsbundið fangelsi en átta árum eftir þetta atvik felldi Landsréttur málið niður.
Sigurður segir frá því hvernig sjálfsmyndin gaf eftir og ferlið sem hann fór í gegnum til að byggja sig upp andlega
Hann fór í nám og er í dag kennari ungra drengja. Sigurður nýtir þekkingu sína og reynslu að miðla til strákanna.
Hann er minnugur þess tíma þegar hann var sjálfur strákur, lesblindur, hrökklaðist úr skóla og fór í neyslu á unglingsárum.
Sigurður Árni er einstaklega góður viðmælandi og það er mjög lærdómsríkt að hlusta á hann.