Í þessum þætti Tengivagnsins erum við á mannfræðilegum slóðum, sem liggja víða.
Við heyrum af Okjökli, sem missti jöklatitil sinn fyrir þremur árum, en nú hafa tveir bandarískir mannfræðingar gert heimildamynd um jökulinn og velta þar meðal annars fyrir sér persónuleika fjallsins Oks.
Guðrún Gígja Georgsdóttir, mannfræðingur, heimsækir þáttinn og segir frá ritgerð sinni um tvískinnung Íslendinga í garð listarinnar og þá helst myndlistarmanna.
Maríanna Clara Lúthersdóttir fjallar um skáldsöguna Sæluvímu, sem segir frá ævintýrum mannfræðinga í Nýju-Gíneu.
Og við rifjum upp brot úr þættinum Við sem heima sitjum, í stjórn Svövu Jakobsdóttur frá árinu 1960, en hér er það Vigdís Finnbogadóttir sem fjallar um siði ýmissa Evrópulanda þar sem hún hefur dvalið.