Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Gefur út bækur um ósýnilegu börnin, rannsókn um 65 ára og eldri á vinnumarkaði og vísindaspjallið með Eddu
    Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir stofnaði nýlega bókaútgáfuna Mannkennd á Siglufirði sem sérhæfir sig í barnabókum um fötlunarfjölbreytileika. Hugmyndin kviknaði þegar dóttir hennar, sem er einhverf og langveik og mikill lestrarhestur, fór að spyrja um bækur um börn eins og hana og þær var erfitt að finna. Því tók hún ráðin í eigin hendur. Ingibjörg kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá bókaútgáfunni, en von er á fyrstu bókinni, Lísa og Líó, í byrjun desember en hún er unnin í samstarfi við Einhverfusamtökin.
    Við fræddumst svo um rannsókn um upplifun háskólamenntaðra sérfræðinga sem eru 65 ára og eldri og eru enn á vinnumarkaði. Fólk sem nálgast hefðbundinn eftirlaunaaldur hefur verið talsvert rannsakað, en minna er vitað um hvernig fólk á aldrinum 65-85 ára upplifir áframhaldandi þáttöku á vinnumarkaði. Hvaða þættir hvetja það og móta vilja og möguleika þeirra til að halda áfram að vinna. Erla Sólveig Kristjánsdóttir, prófessor við Viðskiptafræðideild HÍ og Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við sömu deild unnu þessa rannsókn og sögðu okkur betur frá henni og fyrstu niðurstöðum hennar í þætti dagsins.
    Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í Vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur nýjar fréttir sem lofa góðu þegar kemur að því að sigrast á sýklalyfjaónæmum bakteríum. Þar koma svokallaðir fagar til sögunnar, en Edda útskýrði þetta að vanda betur fyrir okkur í spjalli dagsins.
    Tónlist í þættinum:
    Verum í sambandi / Sprengjuhöllin (Snorri Helgason, Sprengjuhöllin, Bergur Ebbi)
    Undir dalanna sól / Karlakór Reykjavíkur ásamt Óskari og Pétri Péturssonum (Björgvin Þ Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum)
    Joshua Fit the Battle of Jericho / Golden Gate kvartettinn (höf.óþekktur)
    Eina nótt / Snorri Helgason (Kris Kristofferson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Ari Ólafsson og söngurinn og efni málþingsins Lyfjasúpu
    Við töluðum við Ara Ólafssyni söngvara, sem keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2018, en hann fór til í London haustið eftir keppnina. Þar lærði hann fyrst klassískan söng, færði sig svo í kjölfar Covid yfir í söngleikjanám og hefur síðustu tvö ár verið á sýningarferðalagi um heiminn með Phantom of the Opera, einni þekktustu og umfangsmestu söngleikjasýningu heims, þar sem hann meðal annars lék óperudrauginn sjálfan. Við fórum með Ara yfir söngferilinn hingað til, frá náminu í London, ferðasögur með óperudrauginn og margt fleira með Ara og einnig sagði hann okkur frá Hátíðartónleikum hans og Dísellu Lárusdóttur sem verða í Norðurljósasal Hörpu 13. desember.
    Frá 1. október var lyfjafræðingum sem lokið hafa tilskilinni endurmenntun heimilt að bólusetja í apótekum. Það er fyrsta skrefið í átt að því að auka aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu. Álag á heilbrigðiskerfi fara vaxandi víða um heim vegna hækkandi aldurs og aukinnar lyfjanotkunar og hafa Bretland og Kanada til dæmis brugðist við með því að nýta sérþekkingu lyfjafræðinga í auknum mæli. Við töluðum við Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur formann Lyfjafræðingafélags Íslands og Sigríði Pálínu Arnardóttur lyfjafræðing og eiganda Reykjanesapóteks um þessi mál í þættinum í dag. Þær sögðu okkur einnig frá málþinginu Lyfjasúpu sem fram fór í síðustu viku um lyfjanotkun eldra fólks en í Reykjanesapóteki hefur verið boðið uppá þjónustu við að fara yfir lyfjanotkun og hvort lyf fari t.d. illa saman við inntöku ofl.
    Tónlist í þættinum:
    Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson)
    Heim / Ari Ólafsson (Þórunn Erna Clausen)
    Án þín - með þér / Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar (Jón Múli og Jónas Árnasynir)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Ragnheiður Oddný um endómetríósu, gullmoli af safni RÚV frá 1949 og Ragnhildur Hjaltadóttir lesandi vikunnar
    Endómetríósa er algengur en oft vangreindur sjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði, frjósemi og andlega líðan. Framundan er sérstakt námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk þar sem farið verður yfir einkenni, greiningu og meðferðarmöguleika og þverfaglega meðferð og einnig verður farið yfir þá þekkingu sem liggur fyrir á þessum flókna sjúkdómi. Konur með endómetríósu hafa oft talað um að vanþekking og jafnvel fordómar fyrirfinnist hjá heilbrigðisstarfsfólki en sem betur fer er farið að fjalla meira um þennan sjúkdóm. Við ræddum við Ragnheiði Oddnýju Árnadóttur sérfræðing í fæðinga og kvensjúkdómalækningum í þættinum í dag.
    Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV til okkar með enn einn gullmolann af safni RÚV. Í þetta sinn var það innslag frá árinu 1949, metnaðarfullur barnatími þar sem Hildur Kalmann stjórnaði bílaleik í útvarpssal. Helga Lára útskýrði þetta betur fyrir okkur í dag og leyfði okkur að hlýða á innslagið, sem átti vel við í dag, því í gær var minningardagur um þá sem hafa látið lífið í umferðinni.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Ragnhildur Hjaltadóttir lögfræðingur. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Ragnhildur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Höfundur verður til. Frá Guðmundi Magnússyni til Jóns Trausta. Ritstjórar Ásta Kristín Benediktsdóttir og Guðrún Nordal.
    Blái pardusinn e. Sigrúnu Pálsdóttur.
    Ljóð muna ferð - Úrval úr ljóðum Sigurðar Pálssonar, Kristján Þórður Hrafnsson valdi og ritar inngang, Ragnar Helgi Ólafsson ritar eftirmála.
    Duna - saga kvikmyndagerðarkonu, skráð af Guðrúnu Elsu Bragadóttur og Kristínu Svövu Tómasdóttur
    Vorblót e. Katrínu Jakobsdóttur
    Ævisaga Jórunnar Viðar e. Árna Heimi Ingólfsson
    Salka Valka e. Halldór Laxness
    Pollyanna e. Eleanor H. Porter
    Tónlist í þættinum:
    Áfram Jón / Stuðmenn (Jakob Frímann, texti Ragnhildur Gísladóttir)
    Vinarkveðja / Haukur Morthens (B. Hoyer, texti Theódór Einarsson)
    Bjössi á Hól / Sextett Ólafs Gauks (Gaunt, texti Plausor eða Jónas Mána Jónsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    51 min
  • Valur Freyr föstudagsgestur og meira með Helgu Sigurðar í matarspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Valur Freyr Einarsson, leikari og leikstjóri. Hann lærði leiklist í Manchester í Bretlandi og hefur leikið í ótal leikritum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum síðan hann útskrifaðist 1995. Hann hlaut tvenn Grímuverðlaun árið 2012 fyrir leik og sem leikskáld ársins fyrir sýninguna Tengdó. Um síðustu helgi var stórsýningin Þegar Trölli stal jólunum frumsýnd, en Valur Freyr leikstýrir sýningunni. Við fórum út um víðan völl og fram og aftur um tímann með honum í dag.
    Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Við hlusta á innslag frá árinu 1954 þar sem Helga Sigurðardóttir kemur með heilræði fyrir húsmæður landsins þegar kemur að því að frysta mat. Við fengum mikil viðbrögð við tveimur stuttum innslögum með Helgu sem við spiluðum á mánudaginn í þættinum. Við flettum einnig í einni af hennar þekktustu bókum, Matur og drykkur sem kom út árið 1947.
    Tónlist í þættinum:
    Öldueðli / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
    You're A Mean One, Mr. Grinch / Thurl Ravenscroft & Boris Karloff (Albert Hague, Eugene Poddany & Theodor Seuss Geisel)
    You Can’t Always Get What You Want / Rolling Stones (Jagger & Richards)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Skotganga Ingu og Snorra, Glóð um jólin og Jónatan um Pétur Kristjánsson
    Skotganga er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi og fyrirtækið reka þau hjónin Inga Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson. Fyrirtækið var stofnað 2008 og eins og nafnið gefur til kynna var í fyrstu boðið upp á gönguferðir í Skotlandi. Í dag eru í boði gönguferðir víða um Evrópu og sérstakar kvennaferðir svo eitthvað sé nefnt. Það stóð til að vera einungis 9 mánuði í Skotlandi en árin eru orðin 24 og þau hjónin segja gott að búa þar. Við spjölluðum við Snorra og Ingu í dag, en þau eru stödd á landinu bláa í nokkra daga.
    Við heyrðum svo af verkefninu Glóð um jólin til styrktar Konukoti. Þetta er fjórða árið sem Erling Jóhannesson gullsmiður býr til nýjan kertastjaka, en hann hefur nú gert þann fjórða, þeir verða að lokum sex. Við fengum þær Ilmi Kristjánsdóttur leikkonu sem hefur verið með í verkefninu frá upphafi og Halldóru R. Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Konukots til að segja okkur betur frá verkefninu og starfsemi Konukots.
    Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að segja okkur frá íslensku tónlistarfólki. Í þetta sinn var komið að Pétri Kristjánssyni. Hann setti auðvitað sterkan svip á íslenska dægurtónlist, með Pops, Pelican og Paradís, svo einhverjar hljómsveitir séu nefndar, en þær voru fleiri og byrjuðu ekki allar á Pé. Jónatan fór með okkur yfir feril Péturs í dag og við heyrðum auðvitað tvö lög sem hann söng.
    Tónlist í þættinum:
    Fönn, fönn, fönn / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Þórður Árnason og Jakob Frímann Magnússon)
    These Boots are Made for Walkin’ / Nancy Sinatra (Lee Hazlewood)
    Seinna meir / Start (Jóhann Helgason)
    Jenny Darling / Pelican (Magnús Eiríksson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Aðgengi að íslenskukennslu, Vísnavinir fimmtugir og vísindaspjall um augun
    Í aðdraganda að degi íslenskrar tungu verður haldið málþing um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli. Tilefnið er áform stjórnvalda um að leggja skólagjöld á háskólanema frá löndum utan EES sem búa og starfa her á landi með tímabundið dvalarleyfi, sem er svo forsenda ótímabundins dvalarleyfi. Líklegt þykir að gjöldin muni í reynd girða fyrir að stórir hópar fólks sem gegnir samfélagslega mikilvægum störfum og greiðir skatta og skyldur hér á landi geti sótt sér kennslu í íslensku sem öðru máli við Háskólann. Védís Ragnheiðardóttir, námsleiðarformaður Hagnýts náms í íslensku sem annað mál og Eygló Ingadóttir, hjúkrunarfræðingur á skrifstofu hjúkrunar á Landspítala sögðu okkur betur frá þessu í þættinum í dag.
    Vísnavinir voru stofnaðir haustið 1976 og eiga því 50 ára afmæli um þessar mundir. Félagið var stofnað að norrænni fyrirmynd og er uppruni slíkra félaga í Svíþjóð og kölluðust þau Visans vänner. Norrænu vísnafélögin mynduðu með sér samband og voru Vísnavinir aðili að því. Vísnavinir héldu í nokkur ár úti mánaðarlegum vísnakvöldum á Hótel Borg og í Þjóðleikhúskjallaranum og þar kom fram tónlistarfólk eins og Bubbi Morthens, Bergþóra Árnadóttir, Eyjólfur Kristjánsson ofl. Við heyrðum í dag í þeim Hjalta Jóni Sveinssyni og Gísla Helgasyni sem voru meðal stofnmeðlima.
    Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið og í dag sagði hún okkur frá rannsóknum þar sem sýnd er fram á tengingu augna við sogæðakerfið, hreinsunarkerfi líkamans.
    Tónlist í þættinum:
    Torfi á orfi / Snorri Helgason (Snorri Helgason)
    Áframhald / Gísli Helgason (Gísli Helgason)
    Gott áttu veröld / Bergþóra Árnadóttir og Hálft í hvoru (Bergþóra Árnadóttir, ljóð Tómas Guðmundsson)
    Augun þín blá / Uppáhellingarnir (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    57 min
  • Skýrsla vinnuhóps Landlæknis um ME, nýtt bókasafn í Smáralind og veðurspjall frá Kenýa
    Nýlega kom út skýrsla vinnuhóps Landlæknis um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við sjúklinga sem glíma við ME, langvinnt COVID-19, POTS og umhverfisveikindi. Hópurinn var skipaður að beiðni heilbrigðisráðherra. Í skýrslunni kemur fram að sjúklingahóparnir sem um ræðir búa við eina allra þyngstu sjúkdómsbyrði sé miðað við sjúklinga með aðra alvarlega sjúkdóma, en að þjónustan við hópana sé í hrópandi ósamræmi við þá staðreynd og umönnunarbyrði aðstandenda sé mikil. Freyja Imsland var fulltrúi ME félagsins í vinnuhópnum og hefur sjálf glímt við ME frá 2011. Hún kom í þáttinn í dag ásamt Helgu Edwardsdóttur formanni ME félags Íslands.
    Bókasöfn hafa þróast úr hefðbundnum útlánastöðum í lifandi menningar- og samfélagsmiðstöðvar þar sem allir eru velkomnir, fyrir samveru, fræðslu, sköpun, lestur og menningarupplifun. Ný slík menningarmiðstöð sem verður 900 fermetrar er í smíðum í Smáralind og hugmyndin er að færa menningu og bókasafnsþjónustu nær fólkinu. Við ræddum við Elísabetu Sveinsdóttur, formann í menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs og forseti bæjarstjórnar kom í þáttinn í dag til okkar hér á eftir.
    Í veðurspjallinu vorum við í beinu sambandi við Einar Sveinbjörnsson þar sem hann var staddur í Kenya. Hann talaði aðeins um veðrið í Austur-Afríku og regntímabilin þar. Svo voru það hlýindin sem hafa verið hér á landi undanfarið og hvort því tímabili sé lokið og svo í lokin skoðaði hann aðeins langtímaspárnar og hvað þær eru að segja okkur.
    Tónlist í þættinum:
    Röndótta mær / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon)
    Tasko Tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson)
    Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson)
    Leaves still green / Thin Jim and the Castaways(Jökull Jörgensen)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Útfararsjóður.is, Húsmæðraráð frá 1950 og Björg Jóna lesandi vikunnar
    Stofnað hefur verið almannaheillafélag um útfararsjóð barna og unglinga og er markmið sjóðsins að standa straum af útfararkostnaði einstaklinga undir 18 ára aldri og tryggja að aðstandendur geti kvatt ástvini sína með reisn, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af reikningnum sem bíður þeirra að athöfn lokinni. Sindri Swan listamaður er stofnandi sjóðsins og hann segist vonast til að með tíð og tíma geti sjóðurinn staðið undir útfararkostnaði allra barna og unglinga hér á landi. við heyrðum í Sindra í þættinum.
    Við heyrðum svo reglulega skemmtilegt efni af safni RÚV, tvö innslög úr Húsmæðraþáttum sem voru í útvarpinu árið 1950. Þar gefur Helga Sigurðardóttir, sem var auðvitað landsfræg bæði fyrir matreiðslubækur sínar og svo var hún skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla Íslands. Í þessum innslögum gefur hún góð ráð í sambandi við matseðil vikunnar og svo sunnudagsmáltíð.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Björg Jóna Birgisdóttir fyrrverandi námsstjóri í Listaháskólanum. Hún skrifaði jólasögu fyrir börn sem heitir Jólahúsið hennar Sonju, en bókin er nýkomin út. Hún sagði okkur frá bókinni og svo auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Björg talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Saga Reykjavíkur í 1000 ár e. Guðjón Friðriksson, Eggert Þór Bernharðsson og Þorleifur Óskarsson.
    Laugavegur e. Önnu Dröfn Ágústsdóttur og Guðna Valberg
    Kristín Þorkelsdóttir e. Bryndísi Björgvinsdóttur og Birnu Geirfinnsdóttur
    Flórulykillinn e. Ágúst H. Bjarnason
    Sigurverkið e. Arnald Indriðason
    Vorblót e. Katrínu Jakobsdóttur
    Karítas án titils e. Kristínu Mörju Baldursdóttur
    Dimmalimm e. Mugg
    Kvennaklósettið e. Marilyn French
    Híbýli vindanna e. Böðvar Guðmundsson
    Bókin hans pabba (e. Birgi Ísleif Gunnarsson, kom aldrei út)
    Tónlist í þættinum:
    Bjartsýni / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Haustvísa / Anna Pálína Árnadóttir (Erna Tauro-Aðalsteinn Ásberg)
    Söngur Dimmalimmar / Gunnar Gunnarsson (Atli Heimir Sveinsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Vilhelm Anton föstudagsgestur og matarspjall um heitt súkkulaði með Pálma Gunnars
    Vilhelm Anton Jónsson, tónlistar-, sjónvarpsmaður, rithöfundur og leikari var föstudagsgesturinn okkar í dag. Villi lauk B.A. prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands og varð þekktur undir heitinu Villi naglbítur eftir hljómsveitinni 200.000 naglbítar. Einnig hefur hann verið kallaður Vísinda Villi en hann hefur skrifað barnabækur um vísindi. Vilhelm hefur einnig leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og var um nokkurra ára skeið spurningahöfundur og dómari í spurningakeppninni Gettu betur. Við fórum með honum aftur í tímann, til dæmis til Skotlands, Akureyrar og víðar. Hann sagði okkur líka frá fyrstu skáldsögu sinni, Strákurinn með sægrænu augun, sem er nýkomin út. En sú saga kom óvænt til hans þegar hann ætlaði sér að skria allt aðra sögu.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, í dag ræddum við heitt súkkulaði og hringdum í vin, Pálma Gunnarsson söngvara, sem kann ýmislegt fyrir sér þegar kemur að heitu súkkulaði.
    Tónlist í þættinum:
    Jamaica / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Finnbogi Kjartansson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
    Kling klang / Dátar (Þórir Baldursson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
    Hoist the Colours / The Wellerman (Gregor Justin Verbinski, Hans Zimmer, Ted Andrew Elliott & Terry Rossio)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Umönnun aldraðra samhliða starfi, Verum viðbúin og Jónatan um Jón Múla og Jónas
    Öldrun þjóðarinnar og vaxandi ummönnunarþörf aldraðra auka líkur á að starfsfólk þurfi að samræma vinnu og umönnun aldraðra foreldra. Slík ábyrgð getur haft áhrif á líðan, streitu og atvinnuþáttöku. Vala Rún Magnúsdóttir nýútskrifaður meistaranemi í mannauðsstjórnun fjallaði einmitt um þetta í rannsókn í meistaraverkefni sínu. Markmið hennar var að kanna meðal annars hvaða úrræði íslensk fyrirtæki og stofnanir hafa til að styðja við starfsfólk sem annast aldraða foreldra. Vala Rún var hjá okkur í dag og sagði okkur betur frá rannsókninni og niðurstöðum hennar.
    Almannavarnir hafa nýverið gefið út bækling og leiðbeiningar undir heitinu Verum viðbúin, og einnig er heimasíða tilbúin með þessu heiti, verumvidbuin.is. Tilgangurinn er að leiðbeina fólki um hvernig það getur undirbúið sig fyrir alvarlega atburði eða rof á grunnþjónustu sem getur haft áhrif á daglegt líf. Við reiðum okkur í ríkum mæli á raforku, fjarskipti og innflutning á nauðsynjunum og hvað gerum við og getum við án þess alls. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi Almannavarna kom í þáttinn í dag.
    Svo hélt Jónatan Garðarsson áfram að fræða okkur í dag um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag talaði hann um bræðurna Jón Múla og Jónas Árnasyni. Jón Múli samdi tónlistina og Jónas textana og Jónatan fræddi okkur betur um feril þeirra bræðra í þættinum í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Tempó prímó / Uppáhellingarnir (Jón Múli Árnason)
    Dancing in the Street / Mamas and the Papas (Marvin Gaye, William Stevenson & Joe Hunter)
    Eitt sumar á landinu bláa / Þrjú á palli (írskt þjóðlag, texti Jónas Árnasynir)
    Í hjarta þér / Haukur Morthens (Jón Múli og Jónas Árnasynir)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

474 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

128 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

23 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

12 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

3 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners