Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • María Reyndal föstudagsgestur og húsráð frá 1966 í matarspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var María Reyndal leikstjóri og handritshöfundur. Annað kvöld verður leikritið Svikasögur frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins en María samdi og leikstýrir verkinu. Við fórum með henni aftur í tímann, þegar höfundurinn og leikstjórinn vöknuðu til lífs hjá henni ungri að árum, unglingsárin á níunda áratugnum, árin í London og margt fleira.
    Svo var matarspjallið með Sigurlaugu Margréti auðvitað á sínum stað í dag. Við rifjuðum upp skemmtileg, og stundum skrýtin, húsráð frá 1966 úr Eldhúsbókinni góðu. Sum af þeim standast tímans tönn en önnur ekki.
    Tónlist í þættinum:
    Einhvers staðar einhvern tíma aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    Careless Whisper / George Michael (George Michael & Andrew Ridgeley)
    Rapper’s delight / The Sugarhill Gang (Nile Rodgers & Bernard Edwards)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Ráðstefnan Töfrar tengslanna og Jónatan um Helga Pé
    Við fræddumst í þættinum í dag um ráðstefnuna Töfrar tengslanna, sem fór fram á vegum þekkingarseturs BUGL, Barna- og unglingageðdeildar, fyrr í mánuðinum. Mikilvægi tengsla fyrir vellíðan og þroska barna var yfirskrift ráðstefnunnar. BUGL hafði safnað saman fjölbreyttum erindum og fræðsluefni um líðan, þroska og velferð barna og ungmenna auk þess að ráðfæra sig við ungmennaráð, þar sem notendur þjónustunnar fengu að koma að sínum áherslum. Unnsteinn Jóhannsson, verkefnastjóri og ráðgjafi á BUGL og Daðey Albertsdóttir sálfræðingur sem flutti erindið „Ertu að tengja við unglinginn þinn?“ á ráðstefnunni, komu í þáttinn í dag.
    Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra íslenska tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Helga Pétursson, Helga Pé, sem lést í nóvember. Helgi stofnaði Ríó tríó ásamt þeim Ólafi Þórðarsyni og Halldóri Fannari árið 1965, en seinna átti Ágúst Atlason eftir að ganga til liðs við sveitina. Helgi spilaði á kontrabassa í sveitinni og söng. Jónatan fór betur yfir feril Helga í þættinum og við heyrðum tvö lög með honum.
    Tónlist í þættinum:
    Upp á rönd / Hjálmar og GDRN (Guðrún Yr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Sigurður Halldór Guðmundsson)
    Kvennaskólapía / Ríó tríó (Arlo Guthrie, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Þú ert / Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Gestur (dulnefni f. Guðmund Björnsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Örnefni á Íslandi, Geðveik mamma og vísindaspjallið um heilakrabbamein
    Örnefni hafa löngum haft áhrif á afstöðu okkar til landslags og sögu og markviss söfnun þeirr hér á landi hófst snemma á síðustu öld. Surtsey reis úr hafi haustið 1963 en þar gefst einstakt færi á að rannsaka nafngiftir svo að segja frá fyrsta degi. Birna Lárusdóttir íslensku- land- og fornleifafræðingur hélt fyrirlestur á mánudaginn þar sem hún talaði um rannsóknir sínar, bæði á vettvangi í Surtsey og á greiningu heimilda, til að skoða rekja ferli örnefna í eynni. Birna fræddi okkur um örnefni í þættinum.
    Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki? Hera Guðmundsdóttir menningarmiðlari hefur gert þætti um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja eða segja ekki. Hera fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum. Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir. Þessir þættir hafa vakið mikla athygli og þá er hægt að nálgast í spilaranum á ruv.is en við fengum Heru Guðmundsdóttur til okkar í dag.
    Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í sitt vikulega vísindaspjall. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum sem vekja vonir um lækningu á krabbameini í heila.
    Tónlist í þættinum:
    Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus-Tómas Guðmundsson)
    Kramið hjarta / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson)
    Von / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson)
    Words / Bee Gees (Bee Gees)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Matsmannafélag Íslands, nálastungur fyrir hross og gæludýr og veðurspjallið með Einari
    Við fræddumst um Matsmannafélag Íslands í dag, en Ragnar Ómarsson formaður þess kom í þáttinn. Fasteignakaup eru stærsta fjárfesting sem flestir Íslendingar ráðast í. Samt eru enn uppi álitaefni um upplýsingagjöf við sölu fasteigna, réttindi kaupenda og seljenda og meðferð byggingargalla. Þarna koma matsmenn til sögunnar og Ragnar sagði okkur frá starfi þeirra og ráðstefnu Matsmannafélagsins sem verður á fimmtudaginn.
    Núna í október mun Líney Emma Jónsdóttir dýralæknir klára nám í nálastungum fyrir hross og gæludýr. Við heyrðum í henni í þættinum í dag og hún sagði okkur frá ráðstefnu sem haldin er hér á landi og hefst á morgun þar sem dýralæknar hvaðanæva að úr heiminum hittast og bera saman bækur sínar. Þar á meðal er hópur dýralækna sem notar nálastungur í sínum meðhöndlunum. Líney Emma vonast til að það takist að vekja athygli Íslendinga á viðurkenningu og útbreiðslu nálastungu í dýralækningum í heiminum í dag.
    Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í veðurspjallið. Það sem kom við sögu í dag var hitarnir í Evrópu sem hafa slegið öll met, afleiðingar El Nino sem er afar öflugur og svo eru haustlitirnir farnir að sýna sig hér heima, erum við með söknuð og trega í sumarlok eða hvað? Að lokum heyrðum við ljóðið Gangnadagsmorgunn eftir Sigurð Óskar Pálsson frá Borgarfirði Eystra.
    Tónlist í þættinum:
    Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson
    Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger, texti Þórarinn Guðnason)
    Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson)
    Spánardraumur / Hljómsveit Ingimars Eydal (Caerts, Roozenstraten, texti Einar Haraldsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Leikárið í Tjarnarbíói, fréttaauki úr réttum frá 1963 og Rán Tryggvadóttir lesandi vikunnar
    Við héldum áfram að fara yfir sviðið, bókstaflega, og forvitnast um það sem er á leiksviðum landsins á nýhöfnum leikvetri. Í dag kom til okkar Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós. Tjarnarbíó hefur verið kallað heimili frjálsu leikhópanna og Snæbjörn sagði okkur frá fjölbreyttri dagskrá vetrarins í þættinum.
    Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar með gullmola af safni RÚV. Í dag kom hún með brot frá árinu 1963, þar sem Stefán Jónsson umsjónamaður fréttaauka fór í Skeiðarétt og ræddi við til dæmis fjallkóngana Magnús Árnason og Sigurgeir í Skáldabúðum, Guðmund Stefánsson gangnamann og Jónu Magnúsdóttur kvenfélagskonu auk þess sem við heyrðum kraftmikil tilsvor Páls Árnasonar sem var fjallkóngur í marga áratugi. Það er óhætt að segja að réttarstemningin skilar sér í þessu stórskemmtilega 63gja ára gamla innslagi.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Rán Tryggvadóttir, lögfræðingur og doktor í höfundarétti. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rán talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Ljóð Emily Dickinson
    Berhöfða líf eftir Magnús Sigurðsson
    Things in Nature Merly Grow e. Yiyun Li
    Sálarljóð - úrval erlendra ljóða í þýðingu Atla Harðarsonar
    Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu e. Olga Tokarczuk sem Árni Óskarsson íslenskaði
    Handmaid’s Tale e. Margret Atwood
    Gunnlaðarsaga e. Svövu Jakobsdóttur
    Circe eftir Madeline Miller
    Tónlist í þættinum:
    Þú ert / Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Gestur eða Guðmundur Björnsson)
    Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason)
    Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður (Björgvin Þ. Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Eyjólfur Kristjánsson föstudagsgestur og matarminningar um fisk
    Föstudagsgesturinn okkar í dag var engin annar en Eyfi, Eyjólfur Kristjánsson. Hann hefur víða komið við í íslensku tónlistarlífi og hefur verið einn af vinsælustu tónlistarmönnum landsins síðustu áratugi. Hann er að gefa út glænýja plötu og við heyrðum tvö lög af henni í þættinum. Eyfi ólst upp í Vogahverfinu, fór snemma að spila á gítar og spilaði snemma á kvöldvökum í Kerlingafjöllum þar sem íslendingar fóru gjarnan í skíðaferðir en þar vann hann sem skíðakennari. Hann var hluti af Vísnavinum og Hálft í hvoru. Eyfi tók þátt í fyrstu undankeppni Eurovision árið 1986 og hefur svo auðvitað staðið á stóra sviðinu í keppninni erlendis og lagið hans Nína er enn í dag sungið af öllum kynslóðum við hin ýmsu tækifæri. Bítlavinafélagið, sólóferillinn, bandarísk tónlist æskunnar, siglingar á skemmtiferðaskipum og margt fleira var rætt í spjallinu við Eyjólf í dag.
    Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og í dag ákváðum við að tala um matarminningar, góðar og slæmar og umræðuefnið var fiskur í þetta sinn.
    Tónlist í þættinum:
    Dagar / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
    Við getum allt / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson)
    Hang on baby / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Þjóðlistahátíðin VAKA og Jónatan Garðars um Magnús Eiríksson
    Á sunnudaginn hefst Þjóðlistahátíðin VAKA í menningarhúsum Kópavogs og það er mikil menningarveisla sem þarna mun fara fram, tónlist, þjóðdansar, hagyrðingakvöld, íslenskt handverk, harmónikkuball, námskeið fyrir börn og fullorðna, vinnusmiðjur, rímnafögnuður og margt fleira. Ragnheiður Gröndal og Bára Grímsdóttir komu í þáttinn og sögðu betur frá.
    Við héldum svo áfram spjalli um ávaxtaflugur, sem sér í rauninni engan enda á. Við lásum upp afskaplega skemmtilega sögu af geitungabúi í Svíþjóð og glænýrri Nilfisk ryksugu. Við þökkum Jósep Blöndal fyrir að senda okkur þessa skemmtilegu sögu.
    Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskst tónlistarfólk. Í síðustu viku var það Gunnar Þórðarson en í þetta sinn sagði Jónatan okkur frá ferli Magnúsar Eiríkssonar, sem einnig féll frá í ár. Magnús átti langan farsælan feril, hann er einn af þessum stóru í dægurtónlist á Íslandi, bæði sem gítarleikari, lagasmiður og svo ekki síst sem textahöfundur. Við þekkjum öll fjölda laga sem hann samdi, auk þess sem hann rak hljóðfærabúðina RÍN ásamt fjölskyldu sinni. Við komum auðvitað ekki að tómum kofanum hjá Jónatani og svo fengum við einnig að heyra tvö af frábæru lögum Magnúsar.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Hótel jörð / Egill Ólafsson (Heimir Sindrason, ljóð Tómas Guðmundsson)
    Göngur og réttir / Bára Grímsdóttir (Þjóðlag, texti Grímur H. Lárusson)
    Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Ég kom til að gráta, um Svein Pálsson og skildinginn og vísindaspjall um leðurblökur
    Það styttist í jólabókaflóðið, hægt og bítandi fara nýskrifaðar bækur að koma í bókabúðir sem er alltaf tilhlökkunarefni. Nú er komin út glæný bók eftir Þorgrím Þráinsson rithöfund sem heitir Ég kom til að gráta. Bókin fjallar um mann á miðjum aldri sem er í tilvistarkreppu og fer til Ólafsvíkur í leit að sjálfum sér. Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brestir í hjónabandi eða óttinn við að horfast í augu við sjálfan sig. Þorgrímur kom í þáttinn í dag.
    Í vikunni var áhugaverð frétt á ruv.is um að fundist hefði 255 ára skildingur sem náttúrufræðingurinn Sveinn Pálsson átti og hafði komið fyrir í vörðu af grjóti í Kvískerjum í Öræfum og Sveinn skrifaði í ferðabók sinni frá árinu 1794 að hann hefði einmitt komið téðum dönskum eirpeningi fyrir í vörðu. En í framhaldi af þessari frétt vildum við kynna okkur aðeins betur hver þessi maður, Sveinn Pálsson náttúrufræðingur var? Það vill svo skemmtilega til að væntanleg er sjö binda heildarútgáfa á verkum hans og Kristjan B. Jónasson bókmenntafræðingur er einn þeirra sem hefur unnið að útgáfu bókanna og hann kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um þennan stórmerkilega mann, ferðir hans um landið og hans ævistarf.
    Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag fræddi hún okkur um leðurblökur og þann eiginleika þeirra að geta borið veirur í sér án þess þó að sýkjast sjálfar af þeim. Og það getur einmitt verið talsvert hættulegt fyrir okkur mannfólkið.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Það vantar spýtur / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson) Söknuður / Roof Tops (Oldham & Penn, texti Stefán G. Stefánsson)
    Rock’n roll öll mín bestu ár / Brimkló (Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    51 min
  • LEB skorar á stjórnmálin, árangursrík starfsmannaviðtöl og vatnslitahátíð á Akureyri
    Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa. Þetta er fyrirsögn greinar sem Björn Snæbjörnsson, formaður Landsambands eldri borgara, skrifaði. Hann segir að það sé kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp, því þeir eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur þar sem sumir búa við ágæt kjör en aðrir þurfa að snúa hverri krónu og hafa verulegar áhyggjur af því að ná endum saman. Um 8.000 eldri borgarar eru með heildartekjur undir lægsta taxta á vinnumarkaði þrátt fyrir að hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins alla sína ævi. Björn kom í þáttinn í dag ásamt Oddnýju Árnadóttur, framkvæmdastjóra LEB, og þau fóru yfir stöðuna með okkur.
    Flest okkar sem eru á vinnumarkaði þurfum að taka starfsmannaviðtöl við starfsfólk og/eða yfirmenn og flestir gera þetta reglulega, td einu sinni á ári. Það er hægt að fara á námskeið í að eiga árangursríkt starfsmannaviðtal. Inga Þórisdóttir stjórnendaþjálfi er með hvorki meira né minna en þrjár gerðir af slíkum námskeiðum. Við heyrðum í henni í dag.
    Í lok þáttar tengdumst við við Ragnar Hólm Ragnarsson, þar sem hann var staddur í hljóðveri RÚV á Akureyri. En Ragnar stýrir Vatnslitahátíð Íslands sem hefst á Akureyri á fimmtudaginn, en þegar er uppselt á hana. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins, innlendum og erlendum, þar á meðal fimm heimsþekktir listamenn sem hafa helgað ævistarf sitt vantslitum. Ragnar sagði okkur betur frá vatnslitum og hátíðinni í þættinum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson)
    My Friend and I / Trúbrot (Magnús Kjartansson, texti Jóhann Hjálmarsson, þýðandi Rúnar Júlíusson)
    When the Rain Has Gone / Unni Birna Björnsdóttir (Unnur Birna Björnsdóttir og Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Unnur Birna Björnsdóttir)
    Yes sir I can boogie / Baccara (Rolf Soja & Frank Dostal)
    Tasko Tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Leikveturinn í Þjóðleikhúsinu og Laufey Sigurðardóttir lesandi vikunnar
    Við héldum áfram yfirferð Mannlega þáttarins yfir það hvað verður á fjölum leikhúsanna á nýhöfnum vetri. Í dag var það Þjóðleikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarsson sem fór yfir leikveturinn, þar verða m.a. tvö ný íslensk verk á Stóra sviðinu, Hetjur hafsins, eftir Ragnar Bragason og Rými fyrir ást eftir Tyrfing Tyrfingsson. Fyrsta frumsýning ársins á Stóra sviðinu er hins vegar breska leikritið Högg. Nýtt verk um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri, sem hefur sópað að sér verðlaunum.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Laufey talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Ítölsku skáldkonurnar Dacia Maraini og Elsa Morante
    Halldór Laxness, meira og minna allt hans höfundarverk
    Fjallkirkjan e. Gunnar Gunnarsson
    Astrid Lindgren og fíllinn Babar
    Við heyrðum svo í lokin ljóðið Mynd eftir Þorstein frá Harmi af diskinum Ljóðið ratar til sinna í upplestri skáldsins.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Góða ferð heim / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)
    Skák og mát / úr Ormstungu, Króli, Rán Ragnarsdóttir, Jakob van Oosterhout og Hallgrímur Ólafsson (Jóhannes Damian, texti Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson)
    Egils appelsín / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

18 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

7 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

12 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners