
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum lokaþætti fyrstu hlaðvarpsseríu Íslandsdeildar Amnesty International, Tjáum okkur, verður fjallað um ævi og baráttumál Þorgeirs Þorgeirsonar. Þorgeir var kærður fyrir meiðyrði vegna blaðagreinar þar sem hann lýsti lögregluofbeldi með óvægnum hætti. Þorgeiri blöskraði dómsmeðferðin og kærði ríkið fyrir ólýðræðislega málsmeðferð. Hann fór svo með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og var fyrsti ólöglærði maðurinn til að flytja mál fyrir dómstólinn og vinna. Árni Kristjánsson, ungliða- og aðgerðastjóri deildarinnar ræðir við Ragnar Aðalsteinsson mannréttindalögfræðing og Viðar Eggertsson fyrrum nemanda og vin Þorgeirs.
Í þessum þætti er fjölmiðlafrelsi til umræðu og staða þess skoðuð, sérstaklega hérlendis. Samkvæmt skýrslu Samtakanna, Blaðamenn án landamæra, fyrir árið 2021, búa blaðamenn við hömlur í tæplega þremur af hverjum fjórum þeirra 180 ríkja sem rannsóknin nær til. Ísland er í 16. sæti á lista yfir fjölmiðlafrelsi í ríkjum heimsins samkvæmt matskvarða Blaðamanna án landamæra. Ísland hefur verið að færast niður listann síðastliðin ár. Rætt verður við Hjálmar Jónsson, fyrrum formann Blaðamannafélagsins um stöðu tjáningarfrelsis hérlendis og Erlu Hlynsdóttur, aðstoðarritstjóra DV sem hefur þrisvar leitað til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna starfa sinna. Umsjón með þættinum hafa Bryndís Bjarnadóttir herferðastjóri og Vala Ósk Bergsveinsdóttir fræðslustjóri hjá Íslandsdeild Amnesty International.
Í þessum þætti verður fjallað um hið flókna fyrirbæri sem kallast „hatursorðræða“. Alþjóðasamfélagið og flest ríki heims hafa reynt að setja á lög sem banna tjáningu sem jafnast á við hatursorðræðu. Mikill munur eru þó á því sem skilgreint er sem brot á lögunum. Mjög er deilt um það á Íslandi hvort víkka eigi enn frekar út lagalegt ákvæði um hatursoræðu eða þrengja það. Birna Guðmundsdóttir, lögfræðingur Íslandsdeildar Amnesty International, fjallar um skilgreiningu samtakanna á hatursorðræðu og afstöðu þeirra til þessa fyrirbæris. Umsjón með þættinum hefur Bryndís Bjarnadóttir herferðastjóri Íslandsdeildar Amnesty International
Í þættinum er fjallað um tjáningarfrelsið almennt, af hverju það er mikilvægt, hvar það er varið í landslögum og alþjóðalögum og glímt við spurninguna hvenær réttlætanlegt sé að skerða það. Við munum heyra hvað almenningur hefur um tjáningarfrelsið að segja og takmarkanir á því og fáum Margréti Steinarsdóttur, lögfræðing og framkvæmdastjóra Mannréttindaskrifstofu Íslands til að ræða við okkur um málefnið. Umsjón með þættinum hafa Bryndís Bjarnadóttir herferðastjóri og Árni Kristjánsson ungliða- og aðgerðastjóri hjá Íslandsdeild Amnesty International.
Í þessum þætti er fjallað um tjáningarfrelsið á tímum kórónuveirufaraldursins og þeirri spurningu velt upp hvort eðlilegt geti talist að ríki heims hefti tjáningarfrelsið og aðgengi að upplýsingum í einstaka tilfellum þ.e. þegar um rangar og villandi upplýsingar ræðir til að tryggja lýðheilsu fólks. Rætt verður við Önnu Lúðvíksdóttur framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International um stöðu tjáningarfrelsisins í heiminum og hvernig Amnesty bregst við ástandinu. Umsjón með þættinum hefur Bryndís Bjarnadóttir herferðastjóri hjá Íslandsdeild Amnesty International.
Í þessum þætti verður áfram rætt um tjáningarfrelsið á tímum kórónuveirufaraldursins og reynt að fá innsýn í merkingu hugtakanna „upplýsingaóreiða“ og „falsfréttir“. Glímt verður við spurninguna um hvernig ríkisvaldinu beri að feta hinn gullna meðalveg þar sem ólíkir hagsmunir eru vegnir og metnir, samanber verndun tjáningarfrelsisins og aðgengi að upplýsingum annars vegar og lýðheilsa fólks og almannaheill hins vegar?
Til að ræða þessa spurningu og fleiri þeim tengdar verða Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata og Halldóra Þorsteinsdóttir héraðsdómari gestir þáttarins.
Umsjón með þættinum hefur Bryndís Bjarnadóttir herferðastjóri Íslandsdeildar Amnesty International.
From the publisher's feed