Matvælið
Download on the App Store

Matvælið episodes

  • Sjálfbærari fiskveiðar og verndun vistkerfa

    Haraldur Arnar Einarsson, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun og Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftlagsmála hjá Brim komu til okkar í Matvælið og ræddu meðal annars hafrannsóknir, sjálfbærar fiskveiðar, verndun vistkerfa og aðlögunarhæfni í sjávarútvegi.

    MarineGuardian verkefnið hefur það að markmiði að efla sjálfbærar fiskveiðar og stuðla að verndun sjávarvistkerfa í Atlantshafi og Norðuríshafi, með aukinni þekkingu og þróun lausna sem draga úr meðafla, brottkasti, olíunotkun, neikvæðum áhrifum á botnvistkerfi, auka afla á sóknareiningu, og tryggja bætta gagnaöflun og úrvinnslu til ákvarðanatöku og framsetningu sjálfbærniskýrslna.

    1 hr 11 min
  • ,,Við getum haldið áfram að segja að íslenskt lambakjöt sé best"

    Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri markaðsstofunnar Íslenskt lambakjöt og Óli Þór Hilmarsson verkefnastjóri hjá Matís eru viðmælendur í Matvælinu að þessu sinni en fyrr á árinu luku þeir vinnu við rannsókn á nýtingarhlutfalli og efnainnihaldi lambakjöts og aukaafurða.

    Verkefnið var unnið af Matís og markaðsstofunni Íslenskt lambakjöt í nánu samstarfi við afurðastöðvar bæði á norður- og suðurlandi. Verkefninu var hrundið af stað til þess að mögulegt væri að leggja fram ný og traust gögn til að koma í stað þeirra 20-30 ára gömlu gagna sem alla jafna var stuðst við og voru orðin úrelt. Skortur á nýjum og uppfærðum gögnum um nýtingu og næringargildi var farinn að há markaðsstarfi á lambakjöti og hliðarafurðum bæði á innanlandsmarkaði og útflutningsmörkuðum.

    Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt að hlusta á þessa fagmenn ræða um málið sem er þeim greinilega kært.

    40 min
  • Plastrannsóknir - ,,Það þurfa öll lönd að gyrða sig í brók, fara að mæla þetta og segja stopp!"

    Sophie Jensen, verkefnastjóri í faghópi Matís sem fæst við lífefni, hefur unnið að flestum plasttengdum verkefnum sem unnin hafa verið hjá fyrirtækinu. Hún er algjör viskubrunnur í málum sem tengjast plastvandanum í samfélaginu, umhverfisvænum lausnum þegar kemur að pökkunarefnum fyrir matvæli, leiðum til að minnka plast á heimilum og áhrifum plasts á fólk.

    Þessi þáttur er sérlega fróðlegur og fjallar um málefni sem snertir okkur öll - plast!

    44 min
  • „Þetta eru eiginlega faðernispróf". Erfðagreiningar á eldislaxi á Íslandi

    Sæmundur Sveinsson er fagstjóri erfða hjá Matís og í þessum þætti af Matvælinu ræðir hann um erfðagreiningar á laxi og verkefni þeim tengdum

    Í þættinum fer hann yfir lífsferil íslenska laxins og erfðafjölbreytileika hans eftir vatnasvæðum, erfðagreiningar á strokulöxum úr sjókvíaeldi og erfðagreiningar á laxi fyrir svokallaða fiskrækt svo eitthvað sé nefnt.

    Sæmundi er lagið að fjalla um þessi mál á auðskiljanlegan og skemmtilegan hátt svo að óhætt er að mæla með hlustun fyrir öll!

    35 min
  • Betri nýting hliðarhráefna - „þetta er ekki bara eitthvað drasl sem við þurfum að díla við"

    Hildur Inga Sveinsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís er viðmælandi að þessu sinni. Hún fjallar um verðmætin sem leynast í hráefnum sem við getum fengið út úr matvælavinnslu en eru þó ekki aðal efnið sem við erum að vinna með; svokölluð hliðarhráefni. Allt þetta tengir hún við evrópska samstarfsverkefnið Accelwater sem hún vinnur að um þessar mundir.

    Ísland hefur lengi verið framarlega í nýtingu hliðarhráefna og eitt af þeim hráefnum sem áhugavert er að meta bæði með tækifæri til verðmætasköpunar og umhverfismál fyrir augum er vatn frá t.d. fiskvinnslum og landeldisstöðvum. Verkefnið Accelwater snýr að því að finna lausnir til þess að nýta verðmæti úr vinnsluvatni og besta vatnsnotkun í sjávarútvegi og eldi.

    Ástríða Hildar fyrir því að koma inntaki Accelwater verkefnisins skýrt og örugglega til skila skín í gegn í þessu viðtali og mega hlustendur því eiga von á fróðlegri og hressandi hlustun.

    38 min
  • Íslenskar búfjártegundir - erfðagreiningar og kynbótstarf

    Sæmundur Sveinsson, fagstjóri erfða hjá Matís er viðmælandi í þessum þætti af Matvælinu og hann fjallar um erfðarannsóknir og kynbætur á íslenskum búfjártegundum á þann hátt að öll geta skilið og haldið athyglinni vel!

    Á Íslandi eru sumir búfjárstofnar séríslenskir á meðan aðrir eru innfluttir. Nautgripir, hestar, sauðfé og geitur eru alfarið af íslenskum stofnum og það felur í sér að íslenskir aðilar eru þeir einu í heiminum sem sinna kynbótum á þessum fjórum búfjártegundum.

    Hjá Matís hefur aðallega verið unnið með þrjár tegundir, þ.e. nautgripi, hesta og sauðfé og rannsóknir á þessum stofnum eru til umræðu hér.


    27 min
  • Verkaður hákarl - þjóðarréttur íslendinga?

    Snorri Páll Ólason vann að rannsóknum á hákarlsverkun, kæsingu og þurrkun, í meistaraverkefni sínu sem hann vann hjá Matís í samstarfi við Bjarnarhöfn ferðaþjónustu, stærsta framleiðanda á kæstum hákarli á Íslandi með styrk frá Matvælasjóði.

    Spjallið við Snorra er fróðlegt og skemmtilegt þar sem hann fer til dæmis yfir menninguna í kringum hákarlsát, vísindin sem liggja að baki því að verkun á hákarli er nauðsynleg fyrir neyslu þar sem kæsingin er bæði varðveisluaðferð og afeitrunarferill, lífseigar mýtur um kæsingu og margt fleira.

    22 min
  • ÍSGEM: Upplýsingaveita um innihaldsefni matvæla
    Ólafur Reykdal og Eydís Ylfa Erlendsdóttir eru sérfræðingar í Íslenska gagnagrunninum um efnainnihald matvæla: ÍSGEM. Þau eru viðmælendur í þessum þætti af Matvælinu, hlaðvarpi Matís um rannsóknir og nýsköpun í matvælaframleiðslu.

    Í þættinum ræða þau um sögu ÍSGEM og tilgang gagnagrunnsins en sögu hans má rekja aftur til ársins 1987 þegar næringarefni ýmissa matvæla voru skráð í fyrsta skipti á Íslandi. Þau ræða jafnframt um gildi ÍSGEM og koma inn á það hvers vegna mikilvægt er að fólk á Íslandi hafi aðgang að sannreyndum, og gæðametnum  upplýsingum um matvæli og næringarefni í opnum aðgangi.

    Þau koma einnig inn á það hvernig nálgast má gögnin og nýta þau, hver staðan er á gögnunum í dag, hvar tækifærin liggja og ekki síst hvernig bæta má við grunninn og víkka hann út svo hann verði allsherjar upplýsingaveita fyrir matvæli.

    36 min
  • Við erum að reyna að nota fólk eins og mælitæki... en fólk er ekki mælitæki - Skynmat Matís

    Aðalheiður Ólafsdóttir, skynmatsstjóri Matís er viðmælandi í nýjum þætti af Matvælinu, hlaðvarpi Matís um rannsóknir og nýsköpun í matvælaframleiðslu. Hún ræddi allt það sem í skynmatinu felst, af hverju það er mikilvægt og fyrir hver. Hún sagði auk þess sögur af þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún hefur fengist við sem skynmatsstjóri, allt frá því að meta mýkt og lykt af andlitskremi yfir í að meta galtarlykt af kjöti, eiginleika próteindufts úr krybbum og bragð og áferð af þara.

    Spjallið er létt og skemmtilegt og afar fróðlegt!

    Þáttastjórnandi er Ísey Dísa Hávarsdóttir

    37 min
  • Saltfiskur fyrr og nú!

    Kolbrún Sveinsdóttir verkefnastjóri hjá Matís er gestur í Matvælinu, hlaðvarpsþætti Matís. Farið er um víðan völl þegar kemur að saltfisk, sögu hans og menningu.

    18 min

About Matvælið

From the publisher's feed

Í matvælinu er fjallað um nýsköpun og rannsóknir í matvælaframleiðslu. Matvísindafólk Matís fær hér tækifæri til að tala tæpitungulaust um spennandi og mikilvægar matvælarannsóknir sem stuðla að auknu…