Meining
Download on the App Store

Meining episodes

  • Bakslagið VII.

    Í þættinum heyrum við í ungu fólki og menntakerfinu og skoðum hugmyndir úr nýjustu bók Judith Butler, Who’s Afraid of Gender? Í bókinni rýnir hán í kyn og kynvitund frá líffræðilegu og félagslegu sjónarmiði og skoðar þann samfélagslega ótta sem hefur orðið til í tengslum við kynjahugmyndafræði eða „gender ideology“.


    Esjar Smári Blær Gunnarsson menntaskólanemi segir frá reynslu sinni af því að koma út sem trans á unglingsárum. Við heyrum líka raddir ungs fólks úr hinsegin félagsmiðstöðinni. Íris Ellenberger, prófessor við deild faggreinakennslu í samfélagsgreinum, og Auður Magndís Auðardóttir, dósent í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, segja frá rannsókn sem unnin var í fyrra þar sem skoðuð voru áhrif bakslagsins á grunn- og framhaldsskólakennara.


    Þetta er fyrri þáttur af tveimur.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    56 min
  • Bakslagið VI.

    Í þættinum er haldið áfram að fjalla um hatursorðræðu og inntak slíkrar tjáningar skoðað nánar með hjálp lögfróðra. Velt er upp tilvikum þar sem ólík réttindi mætast, það er tjáningarfrelsi annars vegar og friðhelgi einkalífs, persónu og heimilis hins vegar.


    Er markvissu eftirliti með hatursorðræðu sinnt? Rætt er við Gyðu Stefánsdóttur, aðstoðarsaksóknara hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, um það hvernig það lítur við lögreglunni. Hvers konar ummæli eru það alvarleg að þau heimila takmörkun á tjáningarfrelsi? Hvers konar orðræðu er leyfilegt að bera á borð? Og hvenær gengur hún of langt? Halldóra Þorsteinsdóttir, héraðsdómari og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, situr fyrir svörum. Þáttastjórnandi ber undir hana ummæli af netinu og fær hana til að rýna í með gleraugum laganna. Hilmar Hildar Magnúsarson, fyrrverandi formaður Samtakanna 78, og Björg Valgeirsdóttir, doktorsnemi við lagadeild í Lundi í Svíþjóð, segja einnig nánar frá niðurstöðu Mannréttindadómstóls í þýðingarmiklum dómi er varðar efnið.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr
  • Bakslagið V.

    Í fyrra var rannsókn birt sem greindi frá því að tíunda hver athugasemd sem látin er falla um hinseginleika í athugasemdakerfum íslenskra síðna er hatursfull. Í þættinum er leitað til fræðafólks og baráttufólks í von um að skilja betur hatursorðræðu, sem og áhrif hennar. Rýnt er í félagsfræðilegar rannsóknir sem benda til þess að fordómafull tjáning á netinu geti haft slæm áhrif í raunheimum. „Hvað gerist þegar fólk verður vart við að aðrir eru að tjá andúð? Þá myndast hætta á því að ómeðvitaðir fordómar fái lausan tauminn og brjótist út,“ segir Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við HÍ. Kannanir benda til að fólk sé líklegra til að tjá andúð á netinu sjái það fleiri tjá sig með slíkum hætti, það er hatursfull ummæli leiða af sér fleiri hatursfull ummæli.


    Rætt er einnig við Lönu Kolbrúnu Eddudóttur, fyrstu konuna sem varð formaður Samtakanna 78, Kára Garðarsson, núverandi framkvæmdastjóra Samtakanna 78, Hilmar Hildar Magnúsarson, fyrrum formann Samtakanna 78, og Björgu Valgeirsdóttur, doktorsnema við lagadeild Háskólans í Lundi. Einblínt er á a-lið 233. gr. almennra hegningarlaga.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    59 min
  • Bakslagið IV.

    Í þættinum heyrum við af stöðu mála meðal yngri kynslóðarinnar. Hrefna Þórarinsdóttir, forstöðukona hinsegin félagsmiðstöðvarinnar, segir frá líðan þeirra ungmenna sem leita til þeirra í hverri viku. „Ég hef aldrei upplifað ástandið eins krefjandi og erfitt og einmitt núna,“ segir hún. Í kjölfar óvæginnar umræðu, sem hefur blossað upp annað slagið í umræddu bakslagi, hefur málum tengdum sjálfsskaða fjölgað, greinir hún frá. 


    Einnig kynnum við okkur trans teymi barna og unglinga. Rætt er við Björn Hjálmarsson, barnageðlækni og Ragnar Bjarnason, innkirtlalækni barna um starfsemi teymisins, algengar ranghugmyndir á samfélagsmiðlum og framsækna löggjöf sem tryggir tilverurétt trans fólks á Íslandi. „Það sem okkur dreymir um er að kynvitund barnsins fái að vaxa fram því það er lykillinn að farsæld og hamingju barnsins á fullorðinsaldri að það fái að vera það sjálft.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    59 min
  • Bakslagið III.

    „Viðbrögðin voru þau, að þegar þessi þáttur var sýndur þá skildist mér að það hefði mátt heyra saumnál detta. Fólk vissi ekkert af þessu. Þetta var nýtt fyrir þeim,“ segir Anna Kristjánsdóttir um viðtal sem var tekið við hana stuttu eftir að hún kom út sem trans árið 1994. Við rifjum upp sögu Önnu í þætti dagsins, og merkilegan þátt hennar í réttindabaráttu trans fólks hér á landi enda var hún fyrsti Íslendingurinn til að koma opinberlega út sem trans. Hlustað er á eldri viðtalsbrot þar sem tíðarandi 10. áratugarins skín í gegnum spurningar fjölmiðlafólks. „Þegar maður var ein að berjast fyrir þessu þá var enginn til að verja málstaðinn’’.


    Við sögu koma April Ashley, dönsk skipafélög, Tristan da Cunha, frímerki og ýmislegt fleira



    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    59 min
  • Bakslagið II.

    ,,Það sem er sárast er að horfa upp á það hatur, þann fjandskap og þá heimsku sem beinist að trans fólki á Íslandi,’’ segir Þorvaldur Kristinsson, rithöfundur og fyrrverandi formaður Samtakanna 78. Þorvaldur er einn þeirra sem tóku slaginn á fyrstu árum réttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi. Í þættinum er ferðast aftur í tímann. Spiluð eru brot úr útvarpsþætti frá 1983 þar sem hlustendum gafst kostur á að hringja inn og deila skoðunum sínum á málefnum „hómósexúal fólks“ eins og það var kallað á þeim tíma. Hljóðbrotin gefa innsýn í tíðarandann á níunda áratugnum og baráttu Samtakanna 78. 


    Rúmum fjórum áratugum síðar setjumst við niður með baráttufólki fyrir réttindum hinsegin fólks frá upphafi, fólki sem man tímana tvenna. Við ræðum líðan og stöðu mála í dag því að orðræða samtímans minnir eldri kynslóðina á hið liðna, eða eins og Þorvaldur orðar það: ,,Þarna er verið að endurtaka í rauninni allan þann vonda áróður sem ég kynntist fyrir áratugum síðan. Það er sama orðræðan, sömu viðbrögð. Þetta óttablandna hatur við það sem við ekki þekkjum.’’ 


    Í þættinum er rætt við Ragnhildi Sverrisdóttur, Þorvald Kristinsson og Þorstein Vilhjálmsson.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 1 min
  • Bakslagið I.

    „Á endanum er það fólkið sem kýs að gera ekki neitt sem veitir öfgaöflum brautargengi,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, sem er meðal viðmælenda í fyrsta þætti nýrrar stuttþáttaraðar um bakslagið í málefnum hinsegin fólks hér á landi. 


    Í fyrra kom út rannsóknarskýrsla, kortlagning á stöðu líðan og réttindum hinsegin fólks á Íslandi, þar sem í ljós kemur að líðan fólks virðist ekki í samræmi við þau lagalegu réttindi sem hafa náðst á síðustu áratugum. Þáttaröðin er og verður ferðalag þar sem leitast er eftir svörum við stórum spurningum á borð við: Hvað gerðist á síðustu árum og af hverju? Hvað veldur bakslagi? Lúmskum jafnt sem augljósum áhrifum bakslagsins á daglegt líf hinsegin fólks er velt upp og gamlir og nýir tímar bornir saman í samtali við fólk af ólíkum kynslóðum. Aðstæður og líðan fólks er skrásett, ólíkir pólar skoðaðir. 


    Við sögu fyrsta þáttar koma tröppur Grafarvogskirkju, sagan um Loch Ness, samræður við gesti og gangandi í Spönginni, kærleikslögmál Jesú Krists og ýmislegt fleira. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    57 min
  • Hryggsúlan IV.

    Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.


    Við sögu kemur raförvun útlima, spelkur, krónískir verkir, Frida Kahlo, hryggskekkja og ýmislegt fleira. Viðmælendur eru Pétur Helgason, stoðtæknafræðingur hjá Össi og Karen Helenudóttir, nemi. 


    Þáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021.



    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    43 min
  • Hryggsúlan III.

    Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.


    Við sögu kemur orðasifjafræði, skartgripir úr hryggjaliðum, stólbök og ýmislegt fleira. Viðmælendur eru Jóhanna Methúsalemsdóttir, skartgripahönnuður, Jón G. Friðjónsson, prófessor emeritus og Jósep Ó. Blöndal, læknir


    Þáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    43 min
  • Hryggsúlan II.

    Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.


    Í þessum þætti snúum við okkur að lasleika sem hrjáir marga einhvern tímann á lífsleiðinni: bakverkir, bakvandamál. Viðmælendur eru Þorvaldur Ingvarsson læknir, Edda Elísabet Magnúsdóttir, líffræðingur og Jósep Ó. Blöndal, læknir


    Þáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021. 



    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    44 min

About Meining

From the publisher's feed

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með…