Í fyrri hluta þáttarins verður rætt við tónlistarkonuna Ingibjörgu Elsu Turchi sem gefur frá sér nýja plötu í byrjun júlí. Ingibjörg hefur verið mjög virk í tónlistarlífinu undanfarin ár og hefur komið fram með mörgum af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar. Útgáfutónleikar plötunnar, Meliae verða haldnir í Kaldalóni í Hörpu ásamt hljómsveit fimmtudaginn 2. júlí.
Ármann Jakobsson heldur áfram spjalli sínu við Eirík Guðmundsson um Njáls sögu, sem er kvöldsaga Rásar 1 um þessar mundir.
Og Sigrún Margrét Guðmundsdóttir heimsækir þáttinn og segir frá nýlegri doktorsritgerð sinni í íslenskum bókmenntum sem nefnist „Húsið og heilinn. Um virkni reimleikahússins í The Shining og þremur íslenskum hrollvekjum“.
Í síðari hluta Tengivagnsins kemur uppistandsþríeykið VHS í heimsókn en það skipa þeir Stefán Ingvar Vigfússon, Vilhelm Neto og Hákon Örn Helgason. Þeir ræða lífið og listina út frá þemanu "samgöngur" og velja viðeigindi tónlist.
Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Jóhannes Ólafsson og Fanney Benjamínsdóttir