
Sign up to save your podcasts
Or


Kitty er magnaður aktivisti sem hefur sannarlega sett sitt mark á baráttu hinsegin fólks á Íslandi og víða um heim. Hún sat í stjórn Samtakanna '78 frá 2014 til 2018 og í kjölfarið einbeitti hún sér að uppbyggingu evrópsku intersex hreyfingarinnar Organisation Intersex International – Europe (OII-Europe). Nú í haust fagnaði hún tímamótum á vegum OII-Europe sem hún segir okkur frá.
Kitty er líka nýorðin amma og nýtur lífsins þessa dagana að huga að fjölskyldu sinni og halda áfram baráttunni fyrir bættum heimi.
Heimildir sem vísað er í:
Disrupting the multilateral order? The impact of anti-gender actors on multilateral structures in Europe:https://centreforfeministforeignpolicy.org/2023/01/17/disrupting-the-multilateral-order/
The Next Wave: How Religious Extremism Is Regaining Power:https://www.epfweb.org/node/1147
TIP OF THE ICEBERG skýrsla:
https://www.epfweb.org/sites/default/files/2021-06/Tip%20of%20the%20Iceberg%20June%202021%20Final.pdf
------
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
Til að styrkja hlaðvarpið Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkja
Hægt er að nálgast bók Bjarna, sem heitir heitir Mennska, í næstu bókabúð. Hún er einnig á stortytel.
www.bjarnisnae.com
Instagram: bjarni.snaebjornsson
Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Kolbeinn Arnbjörnsson er einstakur listamaður: leikari, myndlistarmaður og þúsundþjalasmiður, fyrir utan að vera faðir, kærasti og hið mesta gæðablóð. Í þessum þætti förum við í djúp samtöl um kulnun, sem Kolbein hefur reynt á eigin taugakerfi, við tölum um glansmyndirnar á samfélagsmiðlum, mataræði, sjálfsmildi og auðvitað listina. Kolbeinn er einstakur maður sem er óhræddur við að berskjalda sig og það var dásamlegt að setjast niður með honum og skilja ekkert eftir.
@kolbeinnarnbjornsson
------
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
Til að styrkja hlaðvarpið Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkja
Hægt er að nálgast bók Bjarna, sem heitir heitir Mennska, í næstu bókabúð. Hún er einnig komin á stortytel.
www.bjarnisnae.com
Instagram: bjarni.snaebjornsson
Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
Embla Guðrúnar Ágústsdóttir er m.a. akvívisti, dansari og móðir. Hún hefur verið virk í aktívisma frá unga aldri og er ein af stofnendum tabu (tabu.is). Embla er einnig með mastergráðu í félagsfræði og hlaut grímutilnefningu sem dansari ársins fyrir verkið Góða ferð inn í gömul sár sem sýnt var í Borgarleikhúsinu. Hún er líka ein af fyndnustu manneskjum sem ég þekki og ég fæ þann heiður að leika og dansa með henni um þessar mundir í leikverkinu Skammarþríhyrningurinn í Borgarleikhúsinu.
@emblan
www.emblan.is
@tabufem
-----
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
Til að styrkja hlaðvarpið Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkja
Hægt er að nálgast bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska, í næstu bókabúð. Hún er einnig komin á stortytel.
www.bjarnisnae.com
Instagram: @bjarni.snaebjornsson
Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
Gréta Kristín er leikstjóri sem hefur sett sitt mark á íslenskar sviðslistir á aðeins níu ára ferli sínum. Hún hefur leikstýrt fjölda atvinnusýninga og verið tilnefnd þrisvar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, sem leikstjóri ársins. Auk þess að vera einstakur listamaður starfar hún einnig sem fagstjóri sviðshöfundabrautar Listaháskóla Íslands.
Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu listina og samstarf okkar Grétu sem spannar nú fjórar leiksýningar. Gréta segir okkur frá MA náminu sínu í leikstjórn í Helsinki og hvað það þýðir fyrir henni að vera leikstjóri. Þetta er heiðarlegt og skemmtilegt spjall enda erum við Gréta bestu vinir og höfum verið frá því hún leikstýrði mér fyrst í verkinu Stertabendu árið 2016.
@gretakristino
----
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
Hér er hægt að styrkja Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkja
Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.
www.bjarnisnae.com
Instagram: bjarni.snaebjornsson
Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
Særún Lísa er þjóðfræðingur, kennari og móðir sem hefur unnið síðustu ár við að kenna unglingum íslensku. Þegar hún var í þjóðfræðinámi eyddi hún töluverðum tíma í að rannsaka birtingarmyndir homma allt frá landnámi og fram yfir síðari heimsstyrjöld. Þessar rannsóknir leiddu til útgáfu á bók hennar "Hættið þessu fikti strákar" þar sem hún skrifar um uppgötvanir sínar. Í þættinum förum við yfir þessar rannsóknir og skoðum hvernig hommar og annað hinsegin fólk birtist í ritum fyrr á öldum, hvernig var talað um okkur í annálum og hvar var ekki talað um okkur. Þetta er áhugavert samtal um söguritskoðun og hvernig opinber hinseginleiki hefur oft leitt til útskúfunnar.
Hægt er að kaupa bókina "Hættið þessu fikti strákar" beint af Særúnu, það eru örfá eintök eftir. Best er að senda henni skilaboð í gegnum facebook eða instagram @lisa_birgis
----
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
til að gerast áskrifandi að Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkja
Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.
www.bjarnisnae.com
Instagram: @bjarni.snaebjornsson
Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir er fyrrum blaðamaður hjá Morgunblaðinu og er einnig lögfræðingur, móðir, eiginkona og fjölmargt fleira. Í þessum þætti forvitnast ég m.a. um hvernig Ragnhildur upplifði alnæmisfaraldurinn og hvernig hún sér fyrir sér stöðu heimsmálanna í dag þegar kemur að málefnum hinsegin fólks. Svo ræðum við auðvitað ógleymanlega grein sem hún skrifaði í Tímarit Hinsegindaga árið 2022 þar sem hún sagði að mannréttindi okkar eru aðeins eins og "litrík olíubrák sem liggur yfir öllu, nóg til að lægja stærstu öldurnar. En auðvitað allt of þunn til að halda aftur af kraftinum í djúpinu til lengri tíma, fari að hvessa duglega". Það var svo skemmtilegt að eiga hispurslaust spjall við magnaða konu.
Instagram: @ragnsverris
---
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
til að gerast áskrifandi að Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkja
Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.
www.bjarnisnae.com
Instagram: bjarni.snaebjornsson
Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir er fyrrum afrekskona í sundi og sagnfræðingur. Hún hefur eytt töluverðum tíma í sagnfræðirannsóknir á jaðarsettum hópum. M.a. gerði hún MA rannsókn um ungar konur sem voru dæmdar fyrir lauslæti á ástandsárunum en þessi misserin einbeitir hún sér að því að klára doktorsritgerð um HIV faraldurinn á Íslandi.
Í þættinum kynnumst við Hafdísi og fáum að heyra sögu hennar, hún segir frá afrekssundferli sínum og hvernig sagnfræði eignaðist hug hennar allan. Dásamlegt samtal um hrikalega mikilvæg málefni sem hafa kannski ekki fengið mikið vægi í Íslandssögunni.
Þann 1. ágúst næstkomandi eru liðin 50 ár frá því að Hörður Torfason birtist í Samúel og opinberaði samkynhneigð sína fyrir alþjóð. Í þættinum fáum við að vita um aðdraganda þessa merka viðtals sem er einn af hornsteinum íslenskrar hinsegin sögu og við heyrum líka hvaða toll það tók af Herði og frama hans sem þjóðfrægur leikari og söngvaskáld. Auðvitað forvitnast ég aðeins um æsku hans í miðbænum, hvernig strákaævintýrin fóru fram í hans ungdómi og hvernig hann mætti fordómum og leiðindum með húmor og galsa. Svo rifjum við upp þegar við hittumst í heita pottinum í Tálknafjarðarlaug fyrir um 30 árum síðan sem var mikilvægur fundur fyrir mig sem feiminn skápahomma. Hörður er sannarlega þjóðargersemi og það var heiður að fá hann í mikilvægt og magnað samtal um einstaka ævi.
Ævisaga Harðar kemur út í haust og ég get ekki beðið eftir að lesa hana.
-----
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
Áskrift að Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkja
Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.
www.bjarnisnae.com
Instagram: bjarni.snaebjornsson
Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
Lára Rúnarsdóttir er einstök kona með ótalmarga hatta. Þessi misserin er hún eigandi Móa jógastúdíós sem leggur ríka áherslu á andlega iðkun, eflir sjálfsvitundina, virðingu fyrir líkamanum, innri hlustun & samkennd. Tilgangur Móa er að skapa rými þar sem einstaklingar geta öðlast frið frá ytri kröfum samfélagsins og tengst sjálfum sér betur.
Þetta er einstakt samtal og við vorum fljót að fara á dýptina varðandi líkamsvirðingu, sjálfsvirði, samkennd, sárin okkar, einmanakennd og fleira.
Hér eru hlekkir á Móa:
www.moarstudio.is
www.moarverslun.is
----
We can do hard things hlaðvarpið: https://open.spotify.com/show/0eFL5HJejQHZrdgAFdPnOm?si=d7c0ec1874b94ac1
Umfjöllun um nemdanda sem stóð með Palestínu í útskriftarræðu hjá NYU: @mattxiv
---
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.
www.bjarnisnae.com
Instagram: bjarni.snaebjornsson
Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
Aldís Amah er mögnuð leikkona, höfundur og aktívisti. Hún hefur komið víða við á síðustu árum í listinni bæði á sviði og á skjánum. Svo er hún líka formaður Samtaka grænkera á Íslandi. Í þættinum spjöllum við auðvitað um listina, mýmargar tilraunir Aldísar til að eyðileggja fyrir sjálfri sér og svo komum við auðvitað inn á sameiginlega ástríðu sem er grænkeralífsstíllinn.
Svo skemmtilegt og gefandi spjall við dásamlega manneskju.
Aldís á instagram: @aldisamah
----
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.
www.bjarnisnae.com
Instagram: bjarni.snaebjornsson
Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
From the publisher's feed
Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til…
Mennska (Humanity) adresses the beauty of diversity and what unites us. I meet amazing people who are actively making the world a better place and we discuss the human condition, our frailty and strengths and how we can self-improve. In short, we delve into our humanity with vulnerability as a guiding light.
Most episodes are in Icelandic and some in English.
Tónlist/music: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun/cover design: Emilía Ragnarsdóttir hjá Forlaginu.
www.bjarnisnae.com
Instagram: bjarni.snaebjornsson
---
Hægt er að kaupa áskrift að mennsku hér: www.bjarnisnae.com/styrkja
Mennska verður þó alltaf opin og hverjum og einum er í sjálfsvald sett hversu mikið eða lítið þau vilja borga í "áskrift".